Menntamál - 01.02.1976, Qupperneq 30
B. Spurningar um sérgreinar.
1. Tímanum betur varið til bóklegs náms?
2. Sérgreinum dreift eða á einum degi?
3. Sérgreinar felldar í, eða utan við, samfellda stundaskrá?
4. Gildir sama um allar greinar?
5. Sérgreinar áhrif á einbeitni?
6. Áhrifin jákvæð eða neikvæð?
7. Valfrelsi í sérgreinum?
C. Spurningar um viðhorf bekkja til sérgreina.
1. Afstaða jákv. eða neikv. til ákveðinna sérgreina ?
2. Gagnvart hvaða grein jákvæð?
3. Gagnvart hvaða grein neikvæð?
D. Spurningar um tónmennt.
1. Láta syngja lag í tímum ?
2. Hlakka nem. til tónmenntartímans ?
3. Koma nem. hressir eða leiðir úr tónmenntartímanum?
4. Á að fjölga eða fækka tónmenntartímum ?
E. Spurningar um kennaramenntun.
1. Sérhæfing kostur eða galli?
2. Sérgreinakennarar jafnvel, betur eða verr undirbúnir?
3. Almennir kennarar fái viðbótarnám?
4. Sérgreinakennarar fái viðbótarnám ?
5. Breyta kennaramenntun eða hafa hana eins?
27 sv. neitandi 27
23 sv. „dreift“, 3 sv. „á einum degi“ 26
24(5) sv. „samfelldar", 4(1) sv. „utan við“ 28
5 sv. leikfimi, 2 sv. handav., 11 sv. söngur 18
11(4) sv. já, 12(2) sv. nei 23
11 sv. jákv., 1 sv. neikv. 12
24 sv. nei, 4 sv. já 28
20 sv. jákv., 0 sv. neikv. 20
10(4) sv. leikf., 13(1) sv. handav., 12(3) sv. tónl. 35
4(1) sv. tónlist
28(5) sv. já, 1(1) sv. nei 29
12(1) sv. já, 9(1) sv. nei 21
13(4) sv. hressir, 1(0) sv. leiðir 14
19(5) sv. ,,fjölga“, 9(0) sv. „hæfilegt“ 28
19(2) sv. kostur, 4(1) sv. galli 23
15(0) sv. jafnvel, 6(4) sv. betur, 1(0) sv. verr 22
26(5) sv. já, 2(0) sv. nei 28
27(5) sv. já, 1(0) sv. nei 28
16(6) sv. ,,breyta“, 5(0) sv. „eins“ 21
Ef spurningarnar og svörin við þeim eru athuguð
nánar fást eftirfarandi niðurstöður:
A. Svo til allir kennarar álíta nemendur mót-
tækilegri fyrir námsefni fyrri hluta kennslustundar
og skóladags. Þeir álíta leikræna þætti og tónlist
hafa uppörvandi áhrif á nemendur í námi og fara
svo til allir í ýmis konar leiki með bekknum. Rúm-
lega helmingur kennaranna hefur áhuga á tónlist.
B. Langflestir kennarar álíta sérgreinarnar nauð-
synlegan þátt í námi nemenda og finnst rétt að
dreifa þeim á vikuna, en nauðsynlegt að þær séu
felldar inn í eða við samfelldan skólatíma nem-
enda. Sérstaklega finnst þeim (11 af 18 sem svör-
uðu) nauðsynlegt að fella tónmennt inn í eða við
skólatímann. Flestum finnst valfrelsi nemenda í
sérgreinum á barnaskólastigi óæskilegt.
U.þ.b. helmingi kennara (11 af 23) finnst sér-
greinarnar hafa áhrif á einbeitni nemenda í almennu
námi, en hinn helmingurinn finnur þar engin áhrif.
Öllum sem finnast sérgreinarnar hafa áhrif á ein-
beitni nemenda dæma þessi áhrif jákvæð.
C. Flestum kennurum sem svara (20) finnst af-
staða nemenda sinna til sérgreina jákvæð og falla
jákvæðu atkvæðin u.þ.b. jafnt á sérgreinarnar
leikfimi, handavinnu og tónmennt. Tónmennt fær
hins vegar neikvæð atkvæði í 20% tilfellanna; ein
allra sérgreina.
D. Svo til allir kennarar láta nemendur stundum
syngja lag í kennslustundum. Rúmlega helmingur
þeirra sem svara segja að nemendur hlakki til
tónmenntartímans í næsta tíma á undan en tæp-
lega helmingur verður ekki var við slíka tilhlökk-
un. Svo til allir (13 af 14 sem svöruðu) segja að
nemendur komi hressir úr tónmenntartímanum.
f af kennurunum álíta að fjölga eigi tónmenntar-
tímum (miðað við 1 kennslustund vikulega), en
^ álíta tímafjöldann hæfilegan.
E. Flestir þeirra sem svöruðu spurningunni álíta
sérhæfingu sérgreinakennara kost; f álíta sér-
greinakennarana jafnvel undirbúna til starfs og
almennu kennarana en ^ betur undirbúna.
Langflestir kennaranna töldu gagnlegt, ef Kenn-
araskóli íslands veitti almennum kennurum ein-
hverja starfsmenntun í sérgreinum í viðbót við
almenna kennaranámið og sömuleiðis sérgreina-
kennurum nokkra almenna kennaramenntun í við-
bót við sérgreinanámið. Aðeins ^ þeirra sem svör-
uðu álitu heppilegt að kennaramenntunin væri með
sama sniði og hingað til en f álitu breytinga þörf.
MENNTAMÁL
30