Menntamál - 01.02.1976, Blaðsíða 33

Menntamál - 01.02.1976, Blaðsíða 33
nemenda um viðhorf til einstakra námsgreina og tómstundaiðju (já-nei) og breytingar milli ára á viðhorfum koma fram með tilliti til kynferðis, bekkja og skóla. Spurningaskrá B var lögð fyrir þrisvar sinnum: aðvori 1969, að hausti 1969 ogaðvori 1970. Þessar þrjár mælingar eru hér til hægðarauka nefndar Ml, M2 og M3. M1 var því gerð eftir að tilraun með aukna tónmenntarkennslu hafði verið í gangi i eitt skólaár, M2 var gerð við upphaf annars árs tilraunarinnar og M3 i lok þess. Á myndum A og B getur að líta heildarniður- stöður þessara mælinga. Mynd A sýnir 3 mælingar (Ml, M2 og M3) á yngri árgöngunum (2. og 3. bekk) í skólum 2, 3 og 4, en mynd B sýnir 3 mæl- ingar á eldri árgöngunum (3. og 4. bekk) í sömu skólum. Lesa ber úr myndunum þannig: lárétt standa námsgreinarnar og tómstundaþættirnir; lóðrétt er kvarði í prósentum. Við hverja náms- grein eru, eins og áður er getið, um 3 mælingar að ræða (vorið ‘69, haustið ‘70 og vorið ‘70). Stundum er þó ekki nema um 2 mælingar að ræða (M2 og M3), vegna þess að greinin var ekki kennd þegar fyrsta mæling átti sér stað (t.d. lesgreinar á mynd B eru ekki kenndar í 3. bekk; þær hefjast ekki fyrr en í 4. bekk). Hver mæling (M) er í formi súlu sem er tvískipt; vinstri helmingur súlunnar táknar pilta, hægri helmingur táknar stúlkur. Óstrikaði hluti súlunnar táknar „já“-atkvæðin í prósentum en strikaði hlutinn „nei“-atkvæðin. Til samans gefa þessi atkvæði ætíð 100%. Þegar litið er á myndir A og B, kemur í ljós að í svo til öllum tilfellum eru ,,nei“-atkvæði pilta hærri en stúlkna (eða ,,já“-atkvæði pilta lægri en stúlkna), m.ö.o. viðhorf piltanna er svo til undan- tekningarlaust hlutfallslega neikvæðara til allra námsgreina. Þetta er í sjálfu sér mjög athyglisverð niður- staða. Piltar virðast almennt hafa neikvæðara við- horf til námsgreina (skólahalds) en stúlkur, þó í mjög misjöfnum mæli eftir því um hvaða náms- greinar er að ræða. Þetta mætti e.t.v. túlka þannig að stúlkur séu „hlýðnari“ við kerfið; þær aðlagi sig betur að því og þeim kvöðum, reglum og skyld- um sem reglubundið skólastarf setur. Þær virðast sýna meiri aðlögunarhæfni en piltarnir, sem virðast hafa meiri mótþróa gegn skólastarfinu og aðlaga sig ekki eins vel að skyldum þess og kvöðum. Fyrir utan þessa almennu túlkun kemur svo til sérstakur viðhorfamunur eftir kynferði varðandi einstakar greinar (sjá síðar). Þessi reglubundni viðhorfamun- ur eftir kynferði tekur af allan vafa um, að svör nem- enda við spurningunum hafi verið tilviljunar- kennd. Þótt talað sé um hlutfallslega neikvæðara við- horf pilta en stúlkna, verður samt að taka fram að undantekning er ef neikvæðu atkvæðin eru fleiri en jákvæðu atkvæðin. Þegar litið er á myndir A og B sést að neikvæðu.atkvæðin (hjá stúlkum og piltum) eru neðan við 50% í öllum tilfellum (fyrir heildarhópinn) nema í „að hlusta á tónlist“ á mynd A í M3 og í „söng“ á mynd B í M2 og M3. Meðaltal „nei“-atkvæða hjá piltum í hefðbundnu náms- greinunum samanlagt (reikningur, lestur og skrift) á mynd A er 10.5% fyrir Ml, 13.6% fyrir M2 og 20.1% fyrir M3, en hjá stúlkunum 9.7%, 6.3% og 11.2% fyrir sömu mælingar. Þetta eru hinar „viður- kenndu“ leiknigreinar sem fá því allt að 30% nei- atkvæða hjá piltum (hver um sig), allt að 20% nei- atkvæði hjá stúlkum á mynd A (yngri árgangar) en að meðaltali nokkuð fleiri neikvæð atkvæði á mynd B (eldri árgangar). Þessi niðurstaða helst í hendur við niðurstöðurnar úr spurningaskrá A: Því lengur sem nemendur eru í skóla, þeim mun meir minnkar áhuginn fyrir skólanum (hlutfalls- lega). Til þess að skýra þessa hneigð betur eru hér TAFLA 4: Samanburður á neikvæðum viðhorfum nemenda eftir kynferði til nokkurra námsgreina Yngri hópur (8 og 9 ára) Eldri hópur (9 og 10 ára) M1 8 ára M2 9 ára M3 9 ára Piltar Stúlkur Piltar Stúlkur Piltar Stúlkur M1 9 ára Piltar Stúlkur M2 10 ára M3 10 ára Piltar Stúlkur Piltar Stúlkur Reikningur 9.6 12.2 22.9 12.1 31.7 Lestur 7.0 3.8 9.3 3.0 11.7 Skrift 14.8 13.2 8.5 3.8 16.8 Söngur 25.4 10.0 46.2 13.1 47.5 Leikfimi 2.9 4.9 7.1 5.3 5.6 20.3 19.7 9.2 32.8 18.8 35.1 16.4 9.4 11.2 12.0 29.8 7.4 21.2 6.0 3.9 13.1 10.6 29.2 15.7 28.8 16.4 21.9 45.6 14.8 61.5 13.5 58.0 21.6 1.3 1.1 5.4 8.5 7.4 7.8 2.2 MENNTAMÁL 33

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.