Menntamál - 01.02.1976, Blaðsíða 39

Menntamál - 01.02.1976, Blaðsíða 39
2) Skóli 3 M1 M2 M3 8 ára 9 ára 9 ára P S P S P S BekkurY (tilraun) 18.2 40.0 91.7 0.0 91.7 14.3 Samanb. hópur sama skóla 31.0 9.0 47.0 12.7 41.0 0.0 Hér aukast nei-atkvæði pilta úr tilraunabekkn- um frá 18.2% í 91.7% milli M1 og M2 og breytast ekki úr því, en nei-atkvæði stúlkna minnka úr 40% í 0% milli M1 og M2 og vaxa svo aftur í 14.3% við M3. Eins og í fyrra dæminu er um mun minni sveiflur að ræða hjá samanburðarhópnum. Þessi tvö dæmi verða að nægja til þess að sýna fram á þann gífurlega mun sem getur ríkt í við- norfi nemenda innan sama skóla til sömu greinar (eftir kynferði). Af öllu þessu sést að þótt skýr heildarmynd af viðhorfum tilrauna- og samanburðarhópanna til söngs fáist (sbr. töflu 5), þá er tilkoma þessarar myndar mjög flókin; um mikinn mun er að ræða eftir kynferði, milli skóla og milli einstakra bekkja innan skólans. Að lokum var kannað hvort munur væri á við- horfi nemenda til söngs eftir því hvort um „bestu“ eða „verstu“ bekki væri að ræða. Jafnvel þótt einhverjar sveiflur væru á þessu kom samt í ljós að hér var ekki um kerfisbundinn mun að ræða og þar sem munur var fyrir hendi var hann yfirleitt ekki marktækur. IV. LOKAORÐ í þessari rannsókn hafa viðhorf skólanemenda til ýmissa námsgreina verið könnuð. Niðurstöður sýna, að kerfisbundinn munur er á viðhorfamynstri nemenda eftir kynferði og að viðhorf nemenda til námsgreina er mjög misjafnt eftir því um hvaða námsgreinar er að ræða. Ýmsar tilgátur hafa verið settar fram sem gera tilraun til að skýra þennan viðhorfamun til hinna ýmsu námsgreina. Vafalaust skýrir engin ein þeirra nægilega þær niðurstöður sem fengist hafa; heldur er heildarmyndin öllu fremur samverkan margþættra áhrifa sem móta viðhorf nemenda til námsgreinanna. Til þessara þátta mætti e.t.v. telja: 1. Kynferði nemenda. 2. Gerð og eðli námsgreinarinnar sjálfrar. 3. Inntakgreinarinnarmeð hliðsjónafþroskastigi nemenda. 4. Miðlunaraðferð kennarans (kennsluaðferðir og kennslustíll). 5. Viðhorfamótandi öfl innan skólans (skóla- andi). 6. Félagsleg viðurkenning á námsgreininni. Vafalaust eru fleiri þættir sem áhrif hafa á við- horf nemenda, þ.á.m. félagslegur bakgrunnur nem- andans sjálfs (þ.e. heimilið), áhrif jafnaldranna á viðhorf nemenda o.fl. Hvað snertir hinn kerfisbundna viðhorfamun eftir kynferði til námsgreinanna og þá reglu að við- horf pilta er ætíð neikvæðara en viðhorf stúlkna, er freistandi að varpa þeirri tilgátu fram að stúlkur séu að jafnaði jákvæðari gagnvart skólahaldi vegna þess að þær.eigi auðveldara með að samsama sig kennarapersónuleikanum og viðurkenna kennar- ann sem valdboða. Því til viðbótar kemur sú stað- reynd að kennarinn er í flestum tilfellum kven- maður. Einmitt þetta gæti gert piltunum erfiðara fyrir; þeir eiga e.t.v. erfiðara með að viðurkenna valdboð kennarans ef hann er kona. Hér vaknar spurningin um hlutverkasamsömun (role-taking) milli kynjanna. Hvað kjarna-spurningu rannsóknarinnar við- kemur, þ.e. viðhorf til tónmenntar (söngs) hjá bekkjum með aukna tónmenntarkennslu, hafa þegar verið settar fram nokkrar tilgátur til skýringar og túlkunar á niðurstöðunum. Þær helstu voru: 1. Að hefðbundið inntak tónmenntar sé ekki nógu forvitnilegt fyrir nemendur. 2. Að hefðbundnar miðlunaraðferðir megni ekki að viðhalda áhuga nemenda og dragi úr viðfangs- gleði þeirra. 3. Að þessi grein njóti almennt ekki félagslegrar viðurkenningar, hvorki innan skólans né utan. Aðrir þættir koma hér vafalaust einnig til og þá sennilega aðallega þessir: 1. Tilraunabekkirnir fengu 3 tíma vikulega með lítið breyttu kennsluefni og svipuðum kennslu- aðferðum og tíðkast hafði áður. Árangurinn hefur e.t.v. verið eins konar ofmettun hjá nemendum. Sérstaklega kann það að hafa haft neikvæð áhrif, eins og áður hefur verið minnst á, að nemendur í tilraunabekkjunum bæta þessum 2 tímum ofan á MENNTAMÁL 39

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.