Vorið - 01.03.1946, Qupperneq 3

Vorið - 01.03.1946, Qupperneq 3
06 O V<rf VORID Oscar Wilde: Konungssonurinn hamingjusami Á geysiháum stalli var standmynd af konungssyninum hamingj usama og gnæfði hátt yfir borgina. Hann var allúr logagylltur, því að hann var næfraður þynnum úr skíru gulli; í augnastað hafði hann tvo leiftrandi fagurbláa safíra, en stór og glaestur roðasteinn glóði á með- alkaflanum á sverði því, er hann var gyrtur. Það lék ekki á tveirn tungum, að hann vakti aðdáun meðal borgar- búa. „Hann stendur ekki að baki vindhana á kirkjuturni að fegurð- inni til,“ sagði einn bæjarstjórnar- fulltrúinn, sem gjarna vildi fá orð á sig fyrir að bera gott skynbragð á listir; ,, en hann kemst ekki til jafns við vindhanann að nytsemi,“ bætti hann við, því að hann var hræddur um, að sér yrði brugðið um óhagsýni, en því fór víðs fjarri, að hann kynni ekki skil á slíkum efnum. „Hvers vegna getur þú ekki tekið konungssoninn hamingjusama þér til fyrirmyndar," sagði skynsöm móðir við drenghnokkann sinn, sem heimtaði þá ólíklegustu hluti. „Aldrei lieimtar hann neina fjar- stæðu.“ „Mér þykir vænt um, að einhver er þó til hér í heimi, sem er ham- ingjusamur að öllu leyti,“ tautaði fyrir munni sér vonsvikinn maður, sem virti fyrir sér hina glæsilegu standmynd. ,Hann lítur út eins og engill,“ sögðu börnin úr munaðarleysingja- skólanum, þegar þau komu út úr

x

Vorið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.