Vorið - 01.03.1946, Qupperneq 23

Vorið - 01.03.1946, Qupperneq 23
V O R I Ð JÓH. ÓLI SÆMUNDSSON: Rennslustandin Leikendur þrír. Leikurinn gerist úti. PERSÓNUR: Tóti, Rikki, Binna. TÓTI: Nú skulum við koma í ein hvern leik. Viljið þið það ekki? Mér finnst svo óttalega leiðin- legt að hanga svona alltaf og gera ekki n’eitt, sem vit er í. hlNNA: Jú, jú, Tóti. Við skulum leika okkur við þig. 'Þú ert alltaf svo fundvís á skemmtilega leiki. Komdu, Rikki! KlKKI: Hvað viltu? Stendur eitt- hvað til hjá ykkur? Ætlið þið nú máske að fara að koma því á að gifta ykkur,’ skötuhjúin? KlNNA: Skammast máttu þín, Rikki, hvernig þú lætur ævin- lega. Þetta er að snúa út úr og þú veizt, að það er ekki fallegt. Viltu þá ekki koma í leik við okkur? 1 ÓTI: Við látum liann þá bara eiga sig. RlKKI: Ég hef aldrei sagt, að ég vildi ekki koma í leik með ykkur. Auðvitað vil ég það, ef nokkuð verður varið í leikinni. HlNNA: Jæja, Tóti. Eigum við ekki að fara að byrja? Hvaða leik varstu að hugsa um? TÓTI: Mér datt í hug, að við lékj- um skóla. F.itt okkar gæti verið kennarinn, eða við öll til skiptis. Svo hefðnm við kennslustundir í ýmsum námsgreinum. RIKKI: Þetta gæti nú verið býsna gott. Það yrði okkur ef til vill til einhvers gagns í skólanum. BINNA (hrifin): Auðvitað verður það okkur til gagns. En hvað þetta verður ágætur leikur! TÓTI: Þá er að koma sér saman um námsefnið, og því næst ákveð- um við kennarann. BINNA: Mér finnst alveg sjálfsagt, að sá byrji að vera kennari, sem fann upp leikinn. Hvað finnst þér, Rikki? RIKKI: Það er ekki nema sann- gjarnt. Raunar eru kennararnir oftast nær kjörnir eftir hæfileik- um.’en við getum nú seinna tekið þá til greina. TÓTI: Ég vil að Rikki sé fyrst kennari. Það hefur ekkert af okk- ur verið hæst á bekkjarprófi, nema hann. Það er því réttast, að hann byrji. RIKKI: Nei, byrja þú. Uppá-

x

Vorið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.