Vorið - 01.03.1946, Síða 24

Vorið - 01.03.1946, Síða 24
22 V O R I Ð stungumaðurinn fyrst. Það mun vera reglan. BINNA: Já, Tóti minn. Þú. . . . RIKKI (grípur fram í): Hvað átt þú í honum ennþá, nema ekki neitt? Ég vil setja þá reglu til að byrja með, að við séurn ekki að gera leik til þess að brjóta það boðorðið, sem bannar okkur að seilast með eignarréttinn lengra en góðu hófi gegnir. BINNA: En að heyra þessa siða- vendni! Við skulum nú heldur snúa okkur að leiknum. Er ekki sjálfsagt, að Tóti byrji? RIKKI: Hann byrjar auðvitað. TÖTI: Jæja, það er þá nokkuð sama, hver byrjar. Við höfum það þá þannig, að ég byrja. Hérna á hólnum er flatur steinn. Hann er ágætt að liafa fyrir kenn- araborð. Sæti má búa til með öðrum steinum minni. BINNA: Já, já! RIKKI: En hvað er nú að segja um námsefnið? Hvað á það að heita? TÓTI: Ég hef hugsað mér að taka sykurinn í fyrsta tímanum. Hvað segið þið um það? BÆÐI: Það er fyrirtak! RIKKI: Mér þykir bara verst, að ég veit eiginlega ekkert. um bless- aðan sykurinn, og þykir mér hann þó góður. TÓTI: Við byrjum þá. BINNA: Nei, heyrðu! Er ekki eftir að útbúa skólaborðin Iianda nem- endunum? TÖTI: Jú, en við getum gert það snöggvast. Verkefni er hér nóg. (Þau hlaða upp borð og bekki úr torfi og grjóti). RIKKI: Þetta er mitt borð. Hér sit ég. TÓTI: ög svo situr Jrú hérna, Binna. Nú getum við byrjað. BINNA: Já, já. TÓTI (gengur að kennaraborðinu. Setur sjg í stellingar): Jæja, börn- in góð. Þið munið sjálfsagt vel eftir því, sem þið hafið ævinlega með kaffinu ykkar. Er ekki svo? BINNA: Jú, jú. RIKKI: Ég bragða aldrei kaffi, nem!a á jólunum og hef þá mest- megnis brauð með því. TÖTI: Eitthvað vænti ég, að þú hafir fleira með því. Læturðu ekkert út í það? Eitthvað, sem rennur? BINNA: Jú, sykurmola. RIKKI: Bjössi vinnumaður lætur ævinlega sex mola í'sinn bolla og stundum sér á hrúguna upp úr bollanum hans. TÖTI: Nú er ekki alltaf hafður molasykur. Stundum er sykurinn mulinn. Hvað nefnist hann þá? BINNA: Strausykur. RIRRI: Steyttur sykur. TÓTI: Sumir kalla hann líka strá- sykur’, eða sáldsykur. Líklega er bezt að nota strásykursnafnið. En nú snúum við okkur að mola- sykrinum, því að hann mun vera algengastur. Vitið þið nokkuð

x

Vorið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.