Vorið - 01.03.1946, Page 34
32
V O R I Ð
BRÉFAVIÐSIÍIPTI.
Við óskum eftir að koniast í
bréfasamband við börn einhvers
staðar á landinti. (Æskilegur aldur
innan sviga): Guðmundur Erlings-
son, Syðra-Velli, Flóa (13—15 ára).
Kristín Bjarnadóttir, Blönduósi (12
— 16 ára dr. eða st.). Guðrún Anna
Sigurjónsdóttir, Blönduósi (14—16
ára). ísabella Theódórsdóttir,
Blönduósi (13—14 ára). María Erla
Eðvaldsdóttir, Stöpum, Vatnsnesi
(17 ára). Marsibil Sigríður Eðvalds-
dóttir, Stöpum Vatnsnesi (15 ára).-
Það skal fram tekið, að óskir um
bréfaviðskipti verða aðeins teknar
til greina frá kaupendum iritsins.
GAMAN OG ALVARA.
HANN FÉKK MÁLIÐ AFTUR.
Maður nokkur átti páfagattk, sem var ó-
venju næmur og var alltaf sítalandi. Hafði
maðurinn páfagaukinn í dagstofu sinni og
hafði af honum mikla skemmtun. Dag nokk-
urn hafð'i páfagaukurinn sloppið tir búri
sínti fram í eldhús. Var eldabuskan að sjóða
skelfisk, cn hafði skroppið frá og sett skcl-
fiskinn á eldhúsbórðið. Varð páfagauknum
á að setja skelfiskinn niður af borðinu, svo
að hann lá eins og hráviði út um allt gólf.
í því kom eldabuskan aðvffandi, sá verksum-
merkin, reiddist ákaflega, þreif ausu með
sjóðandi vatni og skvetti því á páfagaukinn
og sendi honum tóninn um leið: „Nú, svo
þú hefur kornizt í skelfiskinn, skömmin þínl"
I’áfagauknum varð bylt við, og það sem verra
var, sjóðheitt vatnið brenndi hann svo illi-
lega, að hann varð nauðasköllóttur. Eftir
það fékkst ekki upp úr honum orð. Liðtt svo
inargir mánuðir og eigandinn var farinn að
lialda, að páfagaukurinn hefði alveg misst
málið. Þá vildi svo til, að maður nokkur kom
að Tinna hann og var boðið inn í dagstofuna,
þar sem páfagaukurinn var. ■ Maðurinn var
bersköllóttur, og þegar páfagaukurinn kont
auga á hann, hoppaði hann upp og skrækti:
„Nú, svo þú hefur komizt í skelfiskinn,
skönnuin þín! Nú, svo þú liefur komizl í
skelfiskinn, skömmin þínl" Og eftir það tók
hann aftur sína fyrri gleði og talaði engu
minna en áðttr.
„Má ég óska yður til hamingju með tví-
burana, hr. prófessor? Voru það drengir eða
stúlkur?"
„Ja, ég held að annað sé drengur og liitt
stúlka, en |>ó gelur vel verið, að það sé alveg
öfugt."
Margir menn og dýr verða fyrir miklum
áhrifum af veðrinu, þegar loftvogin brcytist
snögglega. Pegar loftvogin stígur, ertt þessir
menn ánægðir og rólegir, en cf hún fellur,
verða þcir æstir og skapvondir. Mjög tilfinn-
inganæmt fólk getur fengið höfuðverk og
þjáðst af svefnleysi nokkra daga, áður en
óveður kcmtir.
Á hverjum degi dælir hjarta mannsins
20.000 lítrum af blóði gegnum æðar, sem erti
samtals 20.000 metrar að lengd.
VORIÐ
tímarit fyrir börn og unglinga. Koma
út 1 hefti á ári, minnst ?f2 síður hvert
hcfti. Argangurinn kostar kr. 5.00 og
greiðist fyrir 1 maí.
Utgcfendur og ritstjórar:
Hannes J. Magnússon. Páls Brieros-
götu 20 Akureyri, og
Eiríkur Sigurðsson, Hrafnagilsstr. 12,
Akureyri.
Prcntverk Odds Björnssonar.