Vorið - 01.09.1954, Side 5

Vorið - 01.09.1954, Side 5
V O R I Ð 83 en kepptist við að tína í baukinn sinn. Þegar þau liöíðu tínt nokkuð lengi, kallaði kennslukonan til þeirra, að þau skyldu koma að borða. Öll börnin hlupu í spretti niður að bílnum, dreifðu sér um móana í kring og fóru að snæða nesti sitt. Þau voru himinglöð þarna í sól- skininu úti í náttúrunni. Sum skiptust á bitum til að bragða á nesti hvors annars. Og það var skvaldrað og hlegið, því að allir voru í sólskinsskapi. Að máltíðinni lokinni sagði kennslukonan þeim stutta sögu. Sagan var um dreng, sem var mátt- laus í fótunum og því rúmliggjandi. En liann var svo námfús og skemmtilegur, að liann las alltaf fyrir foreldra sína, þegar þau komu inn á kvöldin frá vinnunni. Á þann hátt varð hann þeim til ánægju. „Munið nú, börnin góð, að vera foreldrum ykkar líka til ánægju, og þakklát guði fyrir að vera heilbrigð. Annars eruð þið regluleg sólskins- börn, að fá svona gott veður í berja- mónum.“ Hreini fannst undarlegt, að hún hafði kallað þau sólskinsbörn eins og pablti hans. Þegar börnin höfðu lokið við að borða, fóru allir að tína aftur. Það hækkaði lítið í bauknum hjá Heiðu. Henni fannst þó, að hún' væri búin að tína mikið „Ertu búinn að fylla?“ „Nei, ekki alveg. Viltu sjá?“ „Ég á meira eftir." „Já, þinn baukur er líka stærri." Þannig kölluðu börnin hvort til o annars. „Ertu búinn að fylla baukinn þinn, Hreinn?“ spurði einn jafn- aldri lians. ,,já, rétt að segja.“ „En Heiða?“ „Nei, blessaður vertu. Það hækk- ar lítið í bauknum hennar.“ Þegar líða tók á daginn og Hreinn hafði lokið við að fylla baukinn sinn, fór hann að hjálpa Heiðu systur sinni. Hann tíndi í bolla og hellti svo í baukinn lienn- ar. En Jrá kom óhappið. Heiða litla festi fótinn í lynginu, datt og missti niður úr ba-uknum sínum. Hreinn hjálpaði henni að tína aftur upp í baukinn, en ekki náðist nema lítið eitt áf berjunum, því að hitt hafði horl'ið niður í lyngið. Svo keþptust þau systkinin við að tína til að bæta upp óhappið. En ekki auðnaðist þeim að fylla bauk- inn. Brátt heyrðust köll kennslu- konunnar, að tími væri korninn til heimferðar. Svo var lagt af stað heim. Veðrið hélzt jrað sama og glatt var yfir barnahópnum. En á miðri leið kom nokkuð óvænt fyrir. Bíllinn bilaði. ()g bilunin reyndist svo alvarleg, að ekki reyndist unnt að koma honum

x

Vorið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.