Vorið - 01.09.1954, Qupperneq 13

Vorið - 01.09.1954, Qupperneq 13
VO RIÐ 91 úr minninu þínu. Það er nú síð- ur! 1. KERL. (hróðug og hallar undir flatt): Ég ætti nú fyrst að fá að byrja, áður en þú ferð að telja mér trú um, að ég geti ekki getið , upp á einum fiski! Og látum okk- ur nú sjá. (Þegir um stund og veltir vöngum.) Það mun þó aldrei liafa verið hvalur? 2. KERL (kallar upp): Hvalur. Nei, ég liefði nú munað það þá. Nei, aldrei var það hvalur. 1. KERL: Þá hefur jrað verið há- karl? 2. KERL.: Biddu fyrir þér! Ekki var það hákarl. 1. KERL.: Ekki vænti ég, að það hafi verið skata? 2. KERL.: Og vertu í eilífri náð- inni! Það var ekki skata. Og gettu betur! 1. KERL.: Ég er nú bráðum búin að telja upp alla fiska í sjónum, og man nú varla eftir öðrum en þorski. 2. KERL.: Nei, blessuð mín. ekki var það þorskur. Ég liefði nú munað það þá! 1. KERL.: Þá er ekki um aðra fiska að ræða en karfa. 2. KERL.: Nei, nei, nei, ekki var það karfi, og gettu betur. 1. KERL.: Ja, nú dárnar mér að! Var það þá ekki ufsi? 2. KERL.: Þar komstu með það! Nei, ég held nú sfður. Ekki var það ufsi. 1. KERL.: Ég er nú svo standandi hlessa! Nú eru bráðum allir fisk- ar búnir, nema þetta hafi verið keila? 2. KERL.: Vertu marg krossuð, bæði að aftan og framan! Nei, ekki var það keila! ]. KERL. (stynur upp): Ég er nú alveg að gefast upp, og hélt ég þó að ég gæti upp á þessu lítilræði í fyrstu gátu. Það liefur þá verið steinbítur? 2. KERL. (skellir upp og slær á lærið): Ha, lia, lia, nei, það var ekki steinbítur! Og geta máttu ltetur! 1. KERL. (þegir við oð hugsar sig um): Það hefur þó vænti ég ekki verið ýsa? 2. KERL. (verður svo bilt við, að hún hnippir í síðuna á kerling- unni með hnífnum, svo að hún fellur dauð á liliðina): Jú, ýsa var það, heillin! T j a 1 d i ð. Ólafur Örn. Kennarinn: „Hver var keisari í Róm, þegar borgin brann?“ Páll: „Sámur.“ Kennarinn: „Hvaða þvættingur er þetta?“ Páll: „Tryggur!“ Kennarinn: „Gengur eitthvað að þér, Páll? Ertu eitthvað verri? Það var auð- vitað Neró.“ Páll: „Já, það var alveg satt. Ég mundi, að það var einhver hundur.“

x

Vorið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.