Vorið - 01.09.1954, Page 14

Vorið - 01.09.1954, Page 14
92 V O R I Ð Hún var ekki sú heimskasta. Þetta er gamalt ævintýri um fá- tæka bóndann og konuna hans. Það eina, sem þau áttu hér í heimi, var kolinn þeirra og ein hæna. Og dag einn ákvað bóndinn að senda kon- una sína til bæjarins til að selja hænuna. — Þú verður að reyna að fá gott verð fyrir hana — sagði bóndinn — því að annars sveltum við í hel. — — Hve mikið á ég að heimta? — spurði konan. — Nú, eins og markaðsverðið er í dag, — sagði maðurinn. Konan tók nú hænuna og gekk leiðar sinnar. Þegar hún var komin í nánd við kaupstaðinn, mætti hún kaupmanninum. — Viltu kaupa hænuna mína? — kallaði konan. Kaupmaðurinn leit á liana og hugsaði: — Þessi kona lítur ekki gáfulega út. Kannske ég geti fengið þarna ódýra hænu? — Svo sagði hann við hana: — Ja, markaðsverðið er nú 10 aurar. — — Fínt! — sagði konan. — Þá kostar hænan 10 aura. — Kaupmaðurinn fékk henni nú 10 aura, en hún afhenti honum hæn- una og var hreykin yfir að hafa gert svo góða verzlun. Að því búnu gekk hún * inn í kaupstaðinn. Hún keypti sér poka fyrir tvo aura, og eitthvert lítilræði fyrir tvo aura, svo stakk hún 6 aur- unum í pokann, gekk vel fx'á öllu og hélt heimleiðis. Maðurinn hennar varð ösku- vondur, þegar luin fékk honum pokann með sex aurunum í. — Þú ættir skilið að fá ærlegan löðrung! — kallaði hann. — F.n ég ætla að láta það bíða ofurlítið. Ég ætla fyrst að fara út í heiminn og vita, hvort ég finn nokkra konu svo heimska sem þú ert. Og ef ég finn einhverja, sem er heimskari en þú, skaltu sleppa við löðrunginn. Og svo fór hann. Brátt kom hann að lnisi einu, og frúin í húsinu var að horfa út um gluggann. Þá tók hann til að hoppa upp í loftið og teygði hendurnar til himins. Frúin horfði á hann litla stund, en sendi því næst þjón sinn út til hans og lét hann spyrja, hvað þetta ætti að þýða að láta svona. — Ég er að reyna að komast upp til himins — sagði bóndi. — Ég lenti áðan í dálitlu þjarki við vin minn þarna uppi, og hann henti mér út. Mér er ómögulegt að finna aft- ur gatið, sem ég datt niður um. — Þjónninn skundaði aftur til húss- ins og sagði frúnni allt saman. En

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.