Vorið - 01.09.1954, Síða 17

Vorið - 01.09.1954, Síða 17
V O R I Ð 95 og siðlegt og hvað sé ljótt og and- styggilegt. BJÖRG: Ekki lætur Ari eins illa og þú, og kann líka miklu betur. — Þó er pabbi hans nálega aldrei heima og hjálpar honum ekki við námið, eins og pabbi gerir þó oftast við þig. BÁRÐUR: Já, það er einmitt í kvöld, sem þau ætla að koma hingað, Anna og Ari. BJÖRG: Það er líka alveg satt, ég mundi það ekki í svipinn. BÁRÐUR: Lánáðu mér greiðu. Ég braut mína í dag. BJÖRG: Jú, jú, auðvitað þarftu að greiða þér áður en Anna kemur. Heldur þú, að þú sért fullorðinn maður, eða hvað? BÁRÐUR: Þú ættir nú að vera að stríða mér á Önnu, sem sjálft ert bandvitlaus í Ara. BJÖRG(roðnar):Þú skrökvar þessu . nú bara til að hefna þín á mér. BÁRÐUR: Nú, það er sagt út um allan bæ, að þú eltir hann á rönd- um. BJÖRG: Þú ert nú meiri dóninn og lygalaupurinn. Þú ert heppinn, að pabbi er ekki hérna. Hvað heldur þú líka að mamrna segði, ef hún heyrði til þín? BÁRÐUR: O, jæja. Mér væri víst sama. Þú ert mesta stráka. . . . BJÖRG (hendir bók af borðinu í Bárð): Hafðu þetta, asni. BÁRÐUR (sprettur á fætur og þríf- ur til systur sinnar): Þú skalt. . . . (Þá er barið að dyrum. Börnin hætta og reyna að jafna sig.) ARI og ANNA (í gættinni): Komið þið blessuð! BJÖRG og BÁRÐUR: Komið þið sæl! BJÖRG: Gjörið þið svo vel að koma inn. ANNA: Sækjnm við illa að? BJÖRG: Nei, nei. Bárður lætur æv- inlega eins og fífl, þegar pabbi er ekki heima. Hann þarf alltaf að láta passa sig. En það var gott að þið komuð. ARI: Sleppum nú því. Hvað eigurn við að gera okkur til gamans í kvöld? BJÖRG: Spila hjónasæng. BÁRÐUR: Nei/alls ekki. Heldur Hanahopp. ANNA: Við skulurn biðja Björgu að spila á orgelið, og svo syngjum við með hl jóðfærinu. Það er svo gaman. ARI: Getum við ekki komið í landafræðileik? BÁRÐUR: Æi, nei. Ég held að það sé nóg að læra og stagla í skól- anum. ARI: Við skulum nú samt reyna að koma okkur saman; ekki er svo skemmtilegt að þrátta og rífast. BJÖRG: Við gætum gripið í handa- vinnu og sagt sögur á meðan. BÁRÐUR: Við skulurn slökkva ljósin, og svo skal ég segja ykkur magnaða draugasögu, sem ég heyrði í gær.

x

Vorið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.