Vorið - 01.09.1954, Side 18
I
96 V O R I Ð
ANNA: Er hún þá ekki ljót og
ógeðsleg?
BÁRÐUR: Það getur vel verið, að
ykkur finnist hún ekki beint
falleg. Hún er að minnsta kosti
hroðaleg og ógurleg.
ARI: Ekki iízt mér á þessa sögu.
Getum við ekki teflt?
ANNA: Við skulum þá sauma.telp-
urnar, en þið teflið, karlmenn-
irnir.
BÁRÐUR: Við skulum leika full-
orðið fólk.
ARI, BJÖRG og ANNA (öll í kór):
Leika fullorðið fólk! Hvernig þá?
BÁRÐUR: Ég skal leika prestinn,
og þið komið í heimsókn til mín.
B JÖRG: Ætlar þú að leika pabba,
eða hvað?
BÁRÐUR: Því ekki það. Ekki er
það ósiðlegt, ef ég segi og geri
ekki annað en það, sem ég hef séð
og heyrt til pabba.
ANNA: Þú ert nú bara strákur enn
og ekki getur þú leikið fullorð-
inn og menntaðan mann, svo að í
lagi verði.
BÁRÐUR: Það mætti reyna þetta.
En gætir þú leikið prestskonu,
Anna, eða þú, Björg systir?
ARI: Þetta gæti verið nógu gaman,
ef Bárður tekur þá ekki upp á
einhverri vitleysunni.
BÁRÐUR: Ekkert hætt við því. En
til þess að jretta geti orðið í lagi,
þarf ég að ná í lykla pabba, þeir
eru inni í skattholsskúffu.
BJÖRG: Hvað vilt þú með lykla
pabba? Þú veizt, að við megurn
ekki snerta þá, nema pabbi
hringi eða sendi til okkar eftir
einhverju, sem hann hefur gleymt.
BÁRÐUR: Nú, ég þarf að ná í síga-
rettur, vindla, vínflösku og staup.
Svo þarf sú ykkar, sem ætlar
að leika prestskonuna, að hafa til
kaffi.
BJÖRG: Það held ég að þú sért
orðinn bandvitlaus, Bárður.
ARI: Heldur þú, að börn megi
reykja, drekka áfengi og kaffi?
BÁRÐUR: Ekki get ég annað skil-
ið, úr því að fullorðið fólk, og
það sjálfur presturinn, liefur það
um hönd og veitir gestum sínum.
ARI: Nei — þetta er eitur, og börn
og unglingar á þroskaaldri verða
að skeytingarlausum ræflum, ef
þeir nota eiturlyf.
BÁRÐUR: Því nota þá þeir full-
orðnu þennan skaðlega óþverra?
ARI: Af því að þeir eru þrælar
nautnarinnar og geta ekki hætt.
ANNA: Það vita allir, að vín og tó-
bak, og jafnvel kaffi, er heilsu-
spillandi og þar að auki dýrt, en
fólkið getur ekki ha‘tt, eftir að
það er orðið nautnasjúkt.
BJÖRG: Já, þetta er víst alveg satt.
Ég heyrði hjónin hérna í kjallar-
anum tala um jjetta, og þau vildu
svo gjarnan veita sér allt annað.
Þau sögðust eyða þremur pökk-
um af sígarettum á dag, það væru
um 30 krónur á dag ,og auk þess
eyða þau miklum eldspýtum og