Vorið - 01.09.1954, Blaðsíða 19

Vorið - 01.09.1954, Blaðsíða 19
V O R I Ð 97 <» svo kaupa þau oft vín og vindla. ARI: Svo em þeir, sem víns neyta að ráði, ekki eins og þeim er eðlilegt að vera og aðhafast ýmis- legt í ölæði, sem þeir svo sjá eftir og þurfa að skammast sín fyrir. Við þessi fjögur skulum taka okk- ur saman um að neyta aldrei áfengis eða tóbaks. BJÖRG: Ættum við ekki líka að ganga í blótbindindi. Ef við setj- um okkur að blóta ekki og vanda tal okkar, verðum við hæglátari og athugulli og komurn miklu betur fyrirl ANNA: Hvað skyldum við, þessi fjögur, verða búin að eyða í tó- bak og áfengi, þegar við værum orðin fimmtug? BÁRÐUR: Það væri meira fé en við, hvert um sig, þyrftum til að koma okkur upp góðri íbúð eða góðu fiskiskipi. ARI‘ Ég legg til, að við, þessi fjög- ur, bindum þetta fastmælum: Notum aldrei tóbak né áfengi og reynum að forðast illan munn- söfnuð. BJÖRG: Já, þessu skulum við lofa og við skulum efna það. ANNA: Þetta vil ég og skal. BÁRÐUR: F.ruð þið nú viss um, að ykkur takizt þetta? ARI: Því segir þú ekki okkur takizt það? Eða ætlar þú ekki að vera með? BÁRÐUR: Mér er sagt. að þú sért efni í skáld og takizt þér nú að gera vísu, sem minnir okkur á þetta loforð, þá skal ég reyna að vera með, því að ég tími ekki að eyða peningum mínum til þess að gera mig ógeðslegan og líka heimskan. ARI. Við skulum hnoða saman sinni vísunni hvert, til að minna okkur á þessa mikilfenglegu ákvörðun. BJÖRG: Ég held að við ættum að reyna þetta. Jafnvel þótt þetta yrðu ekki góðar vísur, þá gæti verið nógu gaman að reyna. ARI: Ilér er þá mín vísa: Notnm aldrei nikótín, eða nokkurt eitur. Af því verða allir svín og ennjrá verri en geitur. BJÖRG: Þetta er nú ekki góð vísa, en hún getur minnt okkur á það, sem við ætlumst til. Mín vísa er svona: Vín og tóbak voða er dýrt, vont er Jrað og óhollt líka. Ég skal duga unz ég dey, aldrei neinu slæmu flíka. BÁRÐUR: Sjáum til, hvað systir * getur. Mín vísa er ])á svona: Vín og tóbak voða er dýrt, veldur öllum heilsutjóni. Óska ég að ætíð stýrt öll við fáum burt frá tjóni. ANNA: En ekki má nú ríma tjóni á móti tjóni. — Jæja — þetta eru annars meiri stórskáldin, sem hér eru saman komin. Ég er nti bara leirskáld, enda heyrið ])ið nú

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.