Vorið - 01.09.1954, Síða 21

Vorið - 01.09.1954, Síða 21
V O R I Ð 99 hurfu allar hans áhyggjur, og hann flýtti sér út til að kaupa sér frakka. En hann fór ekki í fínu fatabúðirn- ar, en í búðir, þar sem verzlað var nreð notuð föt. í lítilli búð fann hann að lokunr frakka, sem var mátulegur á hann. Hann var hlýr, en ekki var hann fallegur, því að hann var grænn af elli. Hann var líka of síður, en það óttaðist Hans ekki, því að hann kunni að fara með nál. Svo skipti frakkinn og peningarn- ir um eiganda, og Hans hélt himin- lifandi heim til sín. Það var ekki góð lykt af frakkan- um. Hann var bæði myglaður og ljótur, en sem betur fór, var Hans ekki gikkslegur. Hann byrjaði þegar að spretta saumunum að neðan, en þá datt allt í einu eitthvað á gólfið, eitthvað spegilfagurt og kringlótt. Og það komu fleiri á eftir! Þetta voru gullpeningar, sem liöf'ðu verið saumaðir inn í frakk- ann. Það var talsverður auður, senr geymdur var í garnla, ljóta frakkan- um. Þegar Hans hafði reiknað, hve mikið það var, varð hann alveg undrandi, því að svo mikla peninga hafði hann aldrei fyrr séð. Fyrir honum voru þetta takmarkalaus auðæfi. Nú gat hann lært án þess að hugsa um, hvernig hann ætti að fá mat og föt. Með titrandi höirdym taldi hann peningana einu sinni enn. Hann gat ekki hugsað skýrt — peningar — rniklir peningar — auðæfi — fín föt — góður matur. — En í sæluvímunni skaut allt í einu upp kollinum ný liugsun: Þú ætlar þó ekki að gerast þjófur! Þetta eru ekki þínir peningar! Ljóminn í augum hans hvarf, og hann lagði peningana frá sér. En hann gat þó ekki losnað við töfra peninganna. Það var ekki auðvelt fyrir þennan fátæka námsmann, að láta af hönd- um alla þessa peninga, en heiðar- leiki hans sigraði. Hann tók baeði frakkann og peningana og fór aftur til Gyðingsins, sem seldi honum frakkann. Þegar Hans hafði skýrt málið, stóð Gyðingurinn og hugsaði sig urn áður en hann svaraði: „Ég veit ekki, hver hefur átt þennan frakka, hann hefur legið hjá mér í mörg ár. En fyrst þú hefur keypt hann, þá Iilýtur þú að eiga liann með öllu, sem í honum er.“ ,,En ef ég á samt ekki peningana með réttu?“ sagði Hans. Gyðingurinn klóraði sér bak við eyrað: „Farðu til borgarstjórans og skýrðu málið fyrir honum." Þetta leizt Hans vel á, og hann flýtti sér til borgarstjórans. En hann ætlaði ekki að trúa sögu námssveins- ins fyrr en hann sá peningana. „Þetta eru fallegir gullpeningar," sagði hann. „Mér virðist, að þér

x

Vorið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.