Vorið - 01.09.1954, Qupperneq 25

Vorið - 01.09.1954, Qupperneq 25
V O R I Ð 103 „Nú eru þeir að fara,“ sagði Fríða. „Pabbi hefur verið að hringja á Rut, til þess að fylgja þeim út.“ En í stað þess að fylgja nokkrum til rlyra, kom Rut sjálf inn, og böm- unum sýndist hún vera eitthvað svo skrítin á svipinn. „Ó, frú,“ sagði hún. „Húsbónd- inn biður yður að koma inn í skrif- stofuna. Hann er náfölur, frú, ég hugsa að hann hafi fengið einhverj- ar sorglegar fréttir, þér skuluð bú- ast við hinu versta, ástvinamissi, bankahruni, eða einhverju þess háttar." „Þakka yður fyrir, Rut mín,“ sagði mamma vingjarnlega. Því næst gekk hún inn í skrifstof- una. Ennþá heyrðust háværar radd- ir, og nú var bjöllunni hringt og Rut sótti léttivagn. Því næst heyrðu börnin lótatak niður dyraþrepin, vagnir.n ók burtu, og útidyrahurð- nnum var lokað. Síðan kom mamma inn. Elskulega andlitið hennar var hvítt, nærri því eins og knipplingakraginn, sem hún bar um Iiálsinn, og augun voru ein- kennilega gljá'andi. „Það er kominn háttatími," sagði hún. „Rut hjálpar ykkur til að af- klæðast." „En þú varst búin að lofa okkur, að við mættum vera lengi á fótum í k öld, af því að pabbi er kominn héi.n," sagði Fríða. „Pabbi hefur verið kallaður uð heiman — í verzlunarerindum," — sagði mamma. „Farið nú undir eins að hátta, góðu börnin mín.“ Þau kysstu mömmu sína og fóru síðan út úr stofunni. Róberta varð síðust, til þess að geta kysst mömmu sína ennþá einu sinni og hvíslað að henni um leið: „Það hafa þó von- andi ekki komið neinar vondar fréttir, elsku mamma? Hefur nokk- ur dáið, eða — ---?“ „Nei, það hefur enginn dáið,“ sagði mamma, og það leit nærri því út, sem hún hrinti Róbertu frá sér. „Ég get ekkert sagt þér í kvöld, vina mín. Nú verður þú að fara að hátta." Rut greiddi báðum litlu stúlkun- um og hjálpaði þeim til að hátta. Anniars var mamma alltaf vön að gera ]>að sjálf. Þegar Rut var húin að slökkva ljósið og komin út, rakst hún á Pétur í stiganum. . „Heyrðu, Rut, hvað hefur komið fyrir?“ spurði liann. „Vertu ekki að spyrja mig. Ég vil ekki segja þér ósatt. Þú munt nógu snemma fá að vita hið sanna." Seint um kvöldið kom mamma upp og kyssti öll börnin, sem voru sofnuð. Róberta var sú eina, sem vaknaði við kossinn, en hún lá graf- kyrr og sagði ekkert. „Ef mamma vill ekki láta okkur vita, að luin hafi grátið,“ sagði hún við sjálfa sig, er hún heyrði mömmu vera að gráta í myrkrinu, „þá vilj- um við ekki vita það.“

x

Vorið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.