Vorið - 01.09.1954, Page 26

Vorið - 01.09.1954, Page 26
104 V O R I Ð Þegar þau komu til morgunverð- ar næsta morgun, var mamma farin eitthvað að heiman. „Farin til Lundúna," sagði Rut, og börnin urðu að sitja ein við borðið. „Hér er eitthvað agalegt á seyði,“ sagði Pétur unr leið og hann braut skurnið á egginu sínu. „Rut sagði við mig í gærkvöldi, að við mynd- um nógu snemrna fá að vita hið sanna.“ „Fórst þú að spyrja hana?“ sagði Róberta með fyrirlitningu. „Já, það gerði ég reyndar," sagði Pétur og var orðinn reiður. ,,/Þótt þú gætir háttað í makindum, án þess að láta þig nokkru skipta, hvort mamma var sorgbitin eða ekki, þá gat ég það ekki.“ „Mér finnst ekki rétt að vera að spyrja vinnufólkið að því, sem mamma vill ekki segja okkur,“ svar- aði Róberta. „Það er rétt, ungfrú Dyggðaljós, haltu bara áfram að prédika." „Ég er ekkert dyggðaljós," sagði Fríða. „En ég held, að Bobbí hafi rétt fyrir sér í ]ressu.“ „Auðvitað hefur lnin alltaf rétt fyrir sér, það finnst henni að minnsta kosti sjálfri," sagði Pétur. „Við skulum ekki vera vond, hvert við annað,“ sagði Róberta og lagði eggjaskeiðina sína á borðið. „Ég er viss um, að eitthvað óttalega sorglegt hefur komið fyrir, og við skulum ekki gera það ennþá verra.“ „Mér þætti fróðlegt að vita, hver á upphafið að því,“ sagði Pétur. „Það þætti mér nú líka,“ sagði Ró- lverta með áherzlu. „En —.“ „Já, datt mér ekki í hug,“ sagði Pétur sigri hrósandi. F.n um leið og hann fór í skólann klappaði hann á öxlina á systur sinni og sagði, að hún skyldi ekki taka sér þetta mjög nærri. Börnin koniu aftur klukkan 1 til þess að borða, en mamma þeirra var enn ókomin. Hún var heldur ekki komin, þeg- ar síðdegisteið var drukkið. Klukkan var nærri því sjö, þegar hún kom, og þá var hún svo þreytu- leg.og niðurbeygð, að börnin gátu ekki fengið sig til að spyrja hana nokkurs. Hún fleygði sér í legu- bekkinn, en Fríða tók battinn henn- ar, Róberta tók af henni hanzkana, en Pétur færði hana úr ferðaskón- um og lét á hana mjúka inniskó. Þegar hún var búin að drekka einn bolla af tei, og Rut hafði kælt höfuð henriar, því að hún hafði höfuðverk, sagði hún: „Góðu börnin mín, ég ætla nú að segja ykkur nokkuð. Mennirnir, sem komu í gærkvöldi, færðu mjög slæmar fréttir, og pabbi verður að vera að heiman nokkurn tíma. Ég er fjarskalega hrygg yfir því, og nú ætla ég að biðja ykkur að hjálpa mér, en gjöra mér ekki enn erfiðara fyrir,“

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.