Bjarmi - 01.05.1985, Page 27
FRÁ STARFinU
Kristnibods-
vikur
Boðun, von, gleði, barátta,
líkn, bœn, hlýðni og frœðsla
voru átta umhugsunarefni á
jafnmörgum samkomum í
kristniboðsviku sem SÍK
gekkst fyrir á Amtmannsstíg
2B í Reykjavík 10.-17. mars
■— en yfirskrift vikunnar var
„Lofið Drottin, allarþjóðir".
Fluttir voru þœttir um kristni-
boð í Eþíópíu, Kenýu,
Bútan, Perú, Japan og ísrael
og um notkun útvarps í
kristniboði. Pá varýmis kon-
ar söngur.
Sr. Kjartan Jónsson bauð
UPP nokkra muni frá Afr-
íku. „Kristniboðskaffi" var
jafnan á boðstólum eftir sam-
komurnar. Hugvekjur
önnuðust sr. Guðmundur Óli
Ólafsson, sr. Jónas Gíslason,
sr. Karl Sigurbjörnsson, Ást-
ráður Sigursteindórsson, sr.
Ólafur Jóhannsson, sr.
Kjartan Jónsson, Bjarni
Gunnarsson, Páll Skaftason
°g sr. Jón D. Hróbjartsson.
Málfríður Finnbogadóttir
°g sr. Kjartan Jónsson stjórn-
uðu samkomunum. Alls gáf-
ust kristniboðinu rúmar 90
Þúsund krónur í gjöfum og
Frá kristniboðssamkomu í
ReyHJavík.
fyrir kaffisölu og uppboð.
Samkomusókn var nokkuð
misjöfn en flest var um helg-
arnar.
Orð Jesú, „Pérskuluð einn-
ig vitni bera", voru yfirskrift
kristniboðsviku í Keflavík
17.-24. mars. Samkomurnar
voru haldnar í félagsheimili
KFUM og KFUK við Hátún.
Þœr hófust jafnan kl. 20 og
féllu inn í þœr nokkrir fundir
í föstu vetrarstarfi félaganna
meðal barna og unglinga.
Ýmsir komu við sögu í
dagskrá vikunnar, m.a. ungl-
ingar í Keflavík. Kynnt var
margvíslegt kristniboðsefni,
hópar og einstaklingar sungu,
ávörp voru flutt í upphafi
hverrar samkomu og predik-
un í lokin eins og vera ber.
Peir sem predikuðu voru Páll
Friðriksson, Guðmundur
Guðmundsson, sr. ÓlafurJó-
hannsson, sr. Kjartan
Jónsson, Katrín Guðlaugs-
dóttir, Guðni Gunnarsson,
Málfríður Finnbogadóttir og
Ástríður Haraldsdóttir.
Ágóði af uppboði og samskot
námu 15 þúsund krónum.
Vikan var vel sótt og var ungt
fólk jafnan í meirihluta.
Samkomunum stjórnuðu sr.
Kjartan Jónsson og Benedikt
Arnkelsson.
Aðalfundir
Aðalfundir KFUM og
KFUK í Reykjavík voru
haldnir í mars sl. A fundun-
um voru lagðar fram tillögur
stjórnarmanna um byggingu
nýrrar starfsmiðstöðvar á
svœði KFUM og KFUK við
Holtaveg, og rœtt var um
framtíð starfs félaganna að
kristilegu barna- og unglinga-
starfi og nauðsyn þess að
hefja starf á nýjum stöðum í
borginni.
Aðalfundur KFUM sam-
þykkti ályktun þar sem skor-
að er á stjórnvöld að efla
stuðning sinn við starfsemi
Frá aðalfundi KFUM í Reykja-
vík.
frjálsra æskulýðsfélaga sem
hafa að markmiði að stuðla
að alhliða uppbyggingu og
þroska œsku landsins.
Núverandi formaður
KFUK er Málfríður Finn-
bogadóttir en formaður
KFUM frá 1. júní er Sigurður
Pálsson.
Vesturferð
Benedikt Arnkelsson og
Kjartan Jónsson, starfsmenn
Kristniboðssambandsins,
vitjuðu nokkurra staða á
Vestfjörðum í apríl og lögðu
fyrst leið sína til ísafjarðar.
Þar predikaði Kjartan í guðs-
þjónustu í kirkjunni. Einnig
var komið í spurningatíma til
vœntanlegra fermingarbarna.
Kristniboðið var kynnt á elli-
heimilinu og í Hlíf íbúðum
aldraðra, svo og í Hjálprœð-
ishernum. Einn daginn sýndu
þeir nemendum barnaskólans
myndir frá kristniboðsstarf-
inu. Kristniboðssamkoma
var haldin í kirkjunni.
Kjartan predikaði einnig í
Hólskirkju í Bolungarvík og
hann heimsótti skólann þar.
Haldin var samkoma í kirkj-
unni á Suðureyri við Súg-
andafjörð. Einnig var efnt til
samkomu í skólanum á Flat-
eyri en þann dag höfðu þeir
félagar hitt skólabörnin kynnt
kristniboðið í fiskvinnsluhúsi
í þorpinu. Loks komu þeir í
grunnskólann á Þingeyri.
Gjafir til kristniboðsins námu
um fjórum þúsundum króna.
Þeir komu heim á sumardag-
inn fyrsta.
'21