Bjarmi - 01.05.1996, Síða 24
INNLIT
„Böm eru skemmtileg
ogsönna
-segja húsvarðahjónin í aðalstöðvum KFUM og K við Holtaveg
Hlýlegt - tónlist - Afríka, orð er koma í hugann þegar ég geng inn til
Hennings Emils Magnússonar og Bylgju Dísar Gunnarsdóttur. Það var
eftir sólríkan dag að ég heimsótti þau á heimili þeirra í KFUM og KFUK
húsinu við Holtaveg. Henning starfar þar sem húsvörður auk þess að vera í
hlutastarfi sem æskulýðsfulltúi KFUM og KFUK. Bylgja Dís hefur stundað nám
við Fósturskólann og Söngskólann í Reykjavík. Reyndar gerði hún hlé á fóstru-
náminu frá áramótum til að geta lagt sig alla fram í söngnáminu. Þau ólust bæði
upp í Keflavík og þar urðu fyrstu kynni þeirra af kristilegu starfi.
Bylgja Dfs fór í sunnudagsskóla og var í yngri deild
KFUK. Hún hélt sfðan áfram í KFUK þar sem hún starfar
enn 1 dag sem leiðtogi.
Henning kynntist lftið KFUM sem strákur, fór reyndar á
einn fund en segir það framtaksleysi sem hafi komið í veg
fyrir frekari þátttöku. Stuttu eftir fermingu kynnist hann
aftur á móti unglingastarfi KFUM og KFUK. Síðan þá
hefur hann tekið þátt í kristilegu starfi. Bylgja Dís fór á
yngri árum f sumarbúðir KFUK í Vindáshlíð, en Henning
eyddi þeim sumrum flestum á Siglufirði.
Hvaða áhrif hafði sunnudagsskólinn í kirkjunni og
fundirnir í KFUM og KFUK?
Bylgja Dís: „Ég átti alltaf mína barnatrú sem óx með
mér. Þegar ég fermdist var ég byrjuð í unglingadeild KFUM
og KFUK. Það hafði mikil áhrif á mig og ég vissi að þegar
ég sagði já á fermingardaginn minn þá meinti ég það.“
Henning: „Ég kom á fundi, þar varð ég fyrir áhrifum
og fór að tala við Guð þegar ég var úti að ganga. Þar gat
ég verið hreinskilinn við Guð. Ég hef þó alltaf verið að
koma aftur og aftur því við þurfum að taka við fyrirgefn-
ingu Guðs daglega."
Bæði hjónin taka virkan þátt í kristilegu starfi í dag.
Þau eru með sunnudagsskólann í Laugameskirkju. Bylgja
Dís er leiðtogi í KFUK-deildum í Keflavík og Hafnarfirði.
Henning er leiðtogi í deildum KFUM í Keflavík og
Reykjavík auk þess sem hann hefur verð í Ten Sing ungl-
ingastarfi á Holtavegi. Mér var því efst í huga hvernig
þetta gengi upp að vera í fullu námi/starfi og taka jafn-
framt þátt í svo miklu starfi með börnum og unglingum.
Bylgja Dís: „Að vera í barnastarfi hefur gefið trúarlífi
mínu líf. Börnin kenna mér svo margt. Ég hef fengið mik-
ið til baka og lært að njóta þess að vera með börnunum.“
Henning tekur undir þetta og segir að starfið í yngri
deild KFUM við Holtaveg hafi gefið sér mjög mikið,
strákarnir sem mæta séu frábærir og sannir.
„Þetta gengur upp með því að njóta þess sem maður er
að gera og kunna að meta það sem maður fær til baka frá
bömunum.“
Þið hafið einnig starfað í sumarbúðum KFUM og KFUK.
Bylgja Dís. „Ég hef starfað í Kaldárseli í sjö sumur. Byrjaði
sem aðstoðarstúlka í eldhúsi. í sumar verð ég svo
forstöðukona i stúlknafiokkunum.“
Henning: „Ég hef starfað í Vatnaskógi síðastliðin sex
sumur en verð nú í sumar í Kaldárseli í strákaflokkunum.“
Það fólk sem tekur þátt í kristilegu starfi þarf sjálft að fá
uppörvun og andlega næringu til að geta haldið áfram og
notið þess. Bylgja Dís segir það að taka þátt í kristilegu
starfi uppfylla þörfina fyrir að boða orð Guðs. „Við lesum
og biðjum saman daglega. Auk þess sækjum við fundi hjá
Kristilegu stúdentafélagi (KSF). Það hefur gefið okkur
mikið. Við erum einnig í Biblíuleshóp og sækjum sam-
komur þegar tækifæri gefst.“
Er þá einhver tími fyrir áhugamál ?
Henning : „Ég hef mjög gaman af að lesa. Ég reyni að
taka fyrir höfund eða efni sem ég einbeiti mér að í ein-
hvern tíma. í dag er ég að lesa bók eftir þýska guðfræð-
inginn Dietrich Bonhoeffer. Það sem hann hefur skrifað
hefur haft mikil áhrif á mig að undanförnu. Auk þess hef
ég gaman að hlusta á tónlist eftir Stravinski, Satie, Vivaldi
og Hándel." Bylgja bætir við að hann hafi líka gaman af
fótbolta og safni frímerkjum.
24