Bjarmi - 01.09.1996, Qupperneq 5
.
Sól skein í heiði þegar tíðindamaður Bjarma
keyrði um i gamla Vesturbænum í leit að bíla-
stæði, sem reyndust vera af skornum skammti.
Hlutust af þessu nokkrar tafir. Erindið var að
hitta fyrir prest nokkurn á Bárugötunni, a.m.k.
einn af tveimur í þeirri götu, þvi að þar býr sr. Toshiki
Toma ásamt konu sinni, sr. Helgu Soffíu Konráðsdóttur
aðstoðarpresti í Háteigskirkju.
Eftir að hafa komið fram afsökun á þvi að hafa komið of
seint fannst tíðindamanni tilvalið að hefja spjallið á því
hve erfitt gæti reynst að finna bílastæði þar um slóðir.
Viðmælandi minn, Sr. Toshiki Toma, samsinnti mér með
brosi og kaffi var hellt í bollana. Nú gat spjall okkar hafist
fyrir alvöru.
Las ævisögu Jimmy Carter
Fyrsta spurning mín er: Hvaöan ert þú og hví eru staddur
hér?
Ég er fæddur í Tokyo, Japan. Á meðan ég var í námi þá
fór ég í námsferð til ísrael og kynntist þar konu minni: Við
giftum okkur í Reykjavík en héldum siðan til Japan þar
sem ég starfaði sem prestur í 2 ár. Að þeim tíma liðnum,
árið 1992, ákváðum við svo að halda til íslands þvi að þar
voru jafnari möguleikar fyrir konu mína að starfa.
Hvaða menntun hefur þú?
Ég lagði stund á stjórnmálafræði og því næst guðfræði í
lútherskum háskóla, en í Japan er það algengt að fólk hafi
lokið námi i einu fagi áður en lagt er stund á guðfræði-
nám. Afar erfitt er að gerast prestur i Japan, frekar
frábrugðið því sem gerist hér á landi
Nú ert þú vígður lútherskur prestur. Er það ekki óalgengt að
Japanir séu kristnir?
Ein milljón Japana eru kristnir, eða um 1% þjóðar-
innar. Af þessu 1% eru u.þ.b. 60-70 þúsund lútherskir.
Lútherska kirkjan skiptist í 4 hópa og 20-30 þúsund
manns tilheyra minni kirkju.
Hvaða trúarbrögð eru ríkjandi í Japan?
Flestir Japanir eru shintoistar og eða búddistar.
Shintoismi er eins konar andatrú og er rikjandi þáttur i
japanskri menningu, tengdur keisaraveldinu. Fólk er
gjarnan búddatrúar en fer einnig í shintomusterið. Einnig
höfum við marga nýja trúarhópa, bæði góða og slæma.
Sumir eru allt að því að vera hryðjuverkasamtök.
í Japan er trúfrelsi virt. Fyrir seinni heimstyrjöld voru
allir neyddir til þess að tilbiðja keisarann. Að seinni heim-
styrjðld lokinni höfðu Bandarikjamenn mikil áhrif í Japan.
Lýðræðishugmyndir þeirra skutu rótum og nú er það
bundið í stjórnarskrá Japan að ríkið megi ekki styðja einn
trúarhóp frekar en annan. Pó er undantekning hvað varðar
keisarann og hans fjölskyldu. Stjórnarskráin kveður
nefnilega einnig á um að Japan skuli hafa keisara og
embættið er undir áhrifum shintoisma. Þegar keisarinn var
í BRENNIDEPLI
Kirkjan
verður
að þj óna
öllum
- annars brpqst hön
köllun sinni
Viðtal við sr. Toshiki Toma
til að mynda settur í embætti var vigslan að hætti
shintoista. Þetta var nokkuð umdeilt.
Hvemig stóð á þvi að þú varðst kristinn?
Á aldrinum 15-16 ára er mjög algengt að fólk fari að
velta fyrir sér tilgangi lífsins. Þannig var þvi farið með mig.
Ég las margar bækur um heimspeki, búddisma og þess
háttar. Á þessum tíma var ég einnig áhugasamur um
stjómmál. Þetta var um það leytið sem Jimmy Carter var
kosinn forseti Bandaríkjanna. Ég las ævisögu hans og þar
sá ég hvemig hann lét kristindóminn hafa áhrif á stjóm-
málaákvarðanir sínar. Þá fór ég af alvöru að hafa áhuga á
kristindóminum og um hvað hann snerist í raun. Það var
lúthersk kirkja á móti húsinu mínu heima. Ég ákvað að
fara þangað. Þar kynntist ég góðu fólki og hóf að lesa í
Biblíunni. Þar voru starfandi japanskur prestur og kristni-
boði frá Bandaríkjunum sem höfðu mikil áhrif á mig.
5