Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.09.1996, Blaðsíða 20

Bjarmi - 01.09.1996, Blaðsíða 20
MENNING & LISTIR Kristindómur oq listir / Igegnum tíðina hefur verið mikið skrifað um samband og árekstra kristinnar trúar og listarinnar. Sitt sýnist hverjum og í raun er mjög auðvelt að týna áttum í allri umræðunni. Ljóst er að ekki er alls staðar að finna heilræði eða uppbyggileg tíðindi fyrir kristinn mann í þeirri umræðu. Umræðan hefur oft verið þokukennd og samhengislaus og fætt af sér deilur, oftar en ekki á röngum forsendum. Pessari stuttu umfjöllun er ætlað að varpa einhverju ljósi á þetta málefni, þó svo að vitað sé að slíkt verði aldrei fullnægjandi. Cicero og postularnir Hans Rookmaaker var evangelískur kristinn maður og prófessor í listasögu sem helgaði líf sitt skrifum um kristindóm og listir. í frumkirkjunni ber strax á deilum. Frægt er „mynd- bannið“ (Pú skalt engar líkneskjur gjöra þér né nokkrar myndir... 2. Mós. 20:4), sá arfur úr gyðingdómi sem varð til þess að sumir kirkjufeðranna áttu erfitt með að gera upp hug sinn til myndlistarinnar. Það varð þó ofan á að myndlistin var notuð í þágu boðunarinnar. Undir lok 8. aldar var uppi kristinn leiðtogi er hét Alcuin. Hann hafði miklar áhyggjur af því hversu kirkjan var orðin sýkt af heiminum, sem birtist meðal annars i áhuga munka á Bjólfskviðu og öðrum hetjusögum. Alcuin spurði „hvort guðspjöllin og Bjólfs- kviða ættu eitthvað sameigin- legt“. Spurningar líkar þessari áttu sér eldri rætur. „Hvaða samleið eiga Aþena og Jerúsa- lem, Hóras og Davíðssálmamir, Cicero og postularnir?11 hafði Tertullian spurt sex öldum áður. Siðbótinni fylgdu „myndbrjótar" sem komu oftar en ekki úr röð- um Kalvínista. Þeir bönnuðu með öllu myndlist í kirkjunni og er það viðhorf ríkjandi víða, enn í dag, í þeirra röðum. Dorothy Leigh Sayers (1893-1957), kristin listakona, skrifar í einni bóka sinna: „Kirkjan sem heild hefur aldrei tekið afstöðu til listanna." Það er nærri lagi hjá henni. Rookmaaker Hans R. Rookmaaker (d. 1977) var prófessor í listasögu við Free University í Amsterdam og einnig evangelískur kristinn maður, þekktur fyrir sannfæringu sína. Skrif hans um þetta málefni eru vel grundvölluð í ritningunni og hljóta stuðning frá yfirgripsmikilli þekkingu hans á sögu listarinnar. Hann leitast við að svara spurningum sem brenna á mörgum kristnum mönnum, um upppruna, stöðu og samhengi listarinnar. list og List List er til bæði með litlu og stóru L-i. List með stóru L-i er eitthvað sem varð til i kjölfar upplýsingastefnunnar og þróaðist síðan áfram með guðlausri heimspeki 20. aldar, þar sem hún er á vissan hátt tekin úr samhengi við raunveruleikann og gerð að ofurmannlegu fyrirbæri og Listamaðurinn (með stóru L-i líka) er einhverskonar æðsti prestur sem með list sinni gefur svör eða neitar að taka ábyrgð, og skilur fólk eftir í réttlætanlegu tómi án niður- stöðu. Sú List hefur ekkert með kristinn skilning að gera, hún er lítið annað en undarleg mynd hjáguðadýrkunar heimsins. list með litlu 1-i er eitthvað sem var þekktara fyrir upplýsingastefnuna, þar sem list var í tengslum við raunveruleikann, hluti af menningu fólksins. Listamaður með stóru L-i var ekki til. „Öll list stóð með mestum blóma þegar menn dekruðu minnst við hana, skoðuðu hana jafnvel sem handverk,11 er haft eftir Páli ísólfssyni. Skilningur krístins manns ætti að mótast af því að hann er skapaður af skaparanum (sem viðheldur sköpun sinni) til afreka á sviði sköpunarinnar. Sú sköpun er ætíð innan ákveðins lögmáls í tengslum við löggjafann Jesú Krist og án hans missir hún allan tilgang. 20

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.