Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.09.1996, Blaðsíða 14

Bjarmi - 01.09.1996, Blaðsíða 14
KRISTNIBOÐ Þegar andatréð brotnaði í brekkunum fyrir neðan kristniboðsstöðina Gídole í Suður-Eþíópíu var til skamms tíma gildvaxið tré, likt og snúið saman úr mörgum mjóum trjástofnum. Á fyrstu árum kristniboðsstarfs í Gidole kom prédikari þangað til að flytja fjallafólkinu boðskapinn um Jesú Krist. Ekki voru allir reiðubúnir að snúa baki við trúar- brögðum forfeðranna og má ætla að tilbeiðslan á andanum, sem átti sér bústað i trénu, hafi ráðið miklu þar um. En svo gerðist það eitt sinn að tréð mikla brotnaði. Við það brast líka andstaða fólksins og margir veittu Jesú Kristi viðtöku. Prédikari þessi hét Shamebó Adane — og var reyndar bróðir Asfás þess sem kom til íslands fyrir mörgum árum og heimsótti islenska kristniboðsvini, fyrstur kristinna Eþíópíumanna. Jóhannes Ólafsson læknir starfaði um skeið i Gídole auk annarra íslendinga. Hann segir hér frá þessum sér- stæða prédikara sem markaði þáttaskil í lífi margra á starfssvæðinu kringum Gídole. „Þarna eru verkefnin þín!" Shamebó komst til lifandi trúar á unglingsárum í Kambata- héraði, heimalandi sínu. Pað var á stríðsárunum þegar ítalir réðu yfir Eþíópíu. Fagnaðarerindið hafði borist til Kambata á árunum fyrir stríðið með kristniboðum sam- takanna SIM. Síðan varð vakning í Kambata meðan stríðið stóð yfir en þá höfðu kristniboðamir verið reknir á flótta. Kirkjan lifði þróttmiklu lífi. Frá þessari ungu, lifandi kirkju fóru nokkrir ungir menn til nálægra þjóðflokka og vitnuðu um mátt Drottins Jesú Krists yfir illum öndum og um frelsi og eilift líf fyrir trúna á Jesú Krist. Shamebó var í þessum hópi og fór suður á bóginn til Sídamóhéraðs ásamt fleiri prédikumm. Þegar Kristniboðssambandið norska hóf starf í Sídamó komst Shamebó i kynni við kristniboðana. Hann gekk í Ég held að segjfl megi að margir söjnuðir haji vaxið uppfyrir hans starj, auðvitað mcð aðstoð annarra, en Shamebó var drifjjöðurin. lið með þeim. Og þannig vildi það til að hann var ráðinn til starfs í Gídole. Kristniboðinn, sem réð hann, hét Magnús Sture. Shamebó sagði mér sjálfur frá komu sinni til Gídole, landshluta þar sem nafn Drottins Jesú var með öllu ókunnugt öðrum en þeim fáu sem tilheyrðu rétttrúnaðar- kirkjunni í bænum. Hann sagðist hafa spurt Magnús Sture: „Hvar á ég að starfa?“ Þá hafði Magnús bent út yfir hlíðarnar og sagt: „Þarna eru verkefnin þín.“ Hann varð sem sé að þreifa fyrir sér sjálfur í þorpunum hvar hann fengi áheyrn. Tungumálið var honum framandi. Hann kunni hrafl í órómómáli eða gallamáli eins og það var kallað. Að minnsta kosti margir karlmenn í Gídole kunnu það mál. Við freistingum gæt þín Um starf Shamebós má skrifa heila bók. Hann var mjög athafnasamur og ferðaðist um allt héraðið. Ég held að segja megi að margir söfnuðir hafi vaxið upp fyrir hans starf, auðvitað með aðstoð annarra, en Shamebó var driffjöðurin. Starfi hans í Gídole lauk þó á óviðeigandi hátt. Hann hrökklaðist frá Gídole og má segja að hann hafi átt nokkra sök á því sjálfur. Ungir menn voru að komast til áhrifa og þeim fannst þeir hafa lítið svigrúm til athafna. Því voru þeir oft ósam- mála honum. Það var einnig annað sem réð úrslitum í augum Shamebós. Vinsældir hans og áhrif leiddu hann í freist- ingu. Kosningar fóru fram til þings. Presturinn Gútema var samstarfsmaður Shamebós og hafði hann setið eitt kjðrtímabil á þingi. Annar frambjóðandi var Amharinn Leggese Asfá, landeigandi. Hann lagði að Shamebó að bjóða sig fram og mun hafa lagt fram fé sem til þess þurfti. Leggese notaði Shamebó til þess að dreifa þvi fylgi sem Gútema hafði notið en báðir studdust við kristna menn í Gídole. Þannig ætlaði Leggese að tryggja sér meirihluta. Raunin varð sú að Gútema missti sitt sæti og Shamebó náði ekki kosningu. Eftir þetta flutti Shamebó frá Gídole og gerðist prédikari í Vaddera með Helga Hróbjartssyni. Þar varð honum einnig mikið ágengt. Seinna varð hann prestur í Arba Minch uns hann fór á eftirlaun og fluttist til Addis Abeba. 14

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.