Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.09.1996, Blaðsíða 16

Bjarmi - 01.09.1996, Blaðsíða 16
HVAÐ ER ... Guðmundur Karl Brynjarsson Afoort? Margir hafa án efa heyrt „moonista” nefnda, en trúlega eru færri sem gera sér grein fyrir hverslags trúarbrögð hér er um að ræða. Hér á landi ber söfnuðurinn nafnið Samtök heimsfriðar og sameiningar, en félögin Heimsfriðarsamband kvenna og Heimsfriðarsamband fjöl- skyldna eru einnig á vegum moonista. í raun er hér um íslenskt útibú að ræða frá kirkjudeild sem er þekkt á Vesturlöndum sem The Holy Spirit Association for the Unification of World Christianity, Unification Church eða Unified Family, sem ég leyfi mér að kalla Sameiningar- kirkjan, í þessari stuttu grein. Sameiningarkirkjan byggir trú sina á persónu og kenningum kóreska klerksins Sun Myung Moon, eða séra Moon, eins og hérlendir áhangendur kalla hann. Sun Myung Moon fæddist í Norður-Kóreu árið 1920. Hann heldur því fram að Kristur hafi birst honum í sýn, sextán ára gömlum, á páskadagsmorgun 1936 og beðið hann að fullkomna hjálpræðisverkið sem Kristi sjálfum hefði mistekist 2000 árum áður. Að sögn Moon sjálfs glímdi hann við Satan í níu ár eftir þetta, en sá síðarnefndi reyndi ýmist að hafa hann undir með því að freista hans eða gera hann efins um að hann gæti fullnað hjálpræðisverk guðs. Moon var tvívegis fangelsaður og pyntaður af kommún- istum, árið 1946 og 1948. Þeim hremmingum líkir hann við píslargöngu Krists. Árið 1954 stofnaði hann söfnuð sinn, sem upp á kóresku heitir Tong-il-Kyo. Þremur árum siðar gaf hann Ham heldur þvífram að Kristur hafi birst honum í sýn og beðið hann aðfullkomna hjálpmðisverkið sem Kristi sjálfum hefði mistekist 2000 árum áður. út bókina The Divine Principle, eða Hið guðdómlega lögmál, sem moonistar álíta vera þriðja testamenti Biblíunnar. Árið 1960 kvæntist hann síðari konu sinni Hak Ja Han. Meðal moonista er talað um brúðkaup þeirra sem „brúðkaup lambsins" (sbr. Op. Jóh. 21). Moon og Han eiga þrettán börn saman, en flestir áhangendur safnaðarins trúa að öll fjölskylda Moons sé syndlaus. Augu hins vestræna heims beindust fyrst að Moon þegar hann gekk fram fyrir skjöldu og reyndi að verja Richard Nixon, þáverandi Bandarikjaforseta, í kjölfar Watergate-hneykslisins. Þegar Nixon bauð Moon í heimsókn í Hvíta húsið fékk hann gífurlega umfjöllun í fjölmiðlum vestanhafs. Eftir þetta varð mikill vöxtur í Sameiningarkirkjunni í Bandarikjunum og í Evrópu. Fljótlega fóru að heyrast raddir í fjölmiðlum um að ekki væri allt með felldu í söfnuði séra Moons. Helst var rætt um gífurlegt peningaveldi Sameiningarkirkjunnar og að margir meðlimir hennar hefðu verið heilaþvegnir til hlýðni við hana. Fyrrum meðlimir Sameiningarkirkjunnar hafa sagt frá því að þeim hafi verið kennt að Satan noti allt fólk sem stendur utan safnaðarins til að tæla meðlimina til falls, einnig foreldra, systkini og vini. Séra Moon og Sam- einingarkirkjan hafa margoft verið sótt til saka i Banda- ríkjunum. Meðal annars var hann dæmdur fyrir skattsvik 1982. Hin síðari ár hefur farið minna fyrir Moon í fjölmiðla- umræðunni og virðist í raun sem áhugi fjölmiðla á honum og söfnuði hans hafi dvínað verulega. í raun hefur það gefið honum svigrúm til að vinna traust fólks á ný. Moon leggur nú mikla áherslu á að vera í góðum tengslum við forkólfa annarra trúarbragða. Merki þess sjást einnig hér á landi, því einhverjir örfárra íslenskra moonista eru við- riðnir Samstarfsnefnd trúfélaga fyrir heimsfriði. Talið er að á milli ein og tvær milljónir manna tilheyri Sameiningarkirkjunni í heiminum nú á dögum. Hér á landi eru einungis þrettán meðlimir, en að öllum líkind- um mun einnig vera nokkuð um íslenska moonista búsetta erlendis. 16

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.