Bjarmi - 01.09.1996, Blaðsíða 27
VIÐTAL
Krakkarnir eru þátttakendur á fundunum, ekki bara
hlustendur. Unglingastarfið hér í Vestmannaeyjum er ekki
lagt af yfir sumartímann. Þá er opið hús tvisvar í viku án
ákveðinnar dagskrár. Stundum er horft á vídeómynd.
Miðað er við áhugamál unglinganna. í fyrra höfðum við
þrekhóp, sem fór í gönguferðir og sund, og leiklistarhóp.
Það er mikilvægt að unglingahópar, bæði safnaða og
KFUM & K, hittist og sjái að það eru fleiri en þau, sem eru
þátttakendur í slíku starfi. Við förum öðru hvoru með
hópinn okkar upp á land.“
Hvernig er best að hlúa að upprennandi leiðtogum í
kristilegu unglingastarfi?
„Það þarf að fræða þá og láta þá vita að þeir séu
mikilvægir. Það er hægt að sýna með því að vera með
þeim utan fundatíma og utan fundahússins. Það þarf
einnig að sýna þeim þakklæti fyrir störf þeirra.
Hvað tekur við næsta vetur?
„Ég mun flytja til Reykjavíkur og starfa í Bústaðasókn
og einnig innan KFUM & KFUK ef tími vinnst til.“
Hreiðar Örn Stefánsson
27