Bjarmi - 01.09.1996, Blaðsíða 9
Gunnar Þór Pétursson
I BRENNIDEPLI
Gasíuv vav
fflUi,
IlýS'LUí
'kkíí
/
Isíðasta tölublaði Bjarma birtist lítil frétt sem glöggir
lesendur Bjarma hafa tekið eftir. Þar kom fram að á
undanförum árum hafi margir Tamilar, sem komið
hafa til Sviss sem flóttamenn frá Sri Lanka vegna borgara-
styrjaldar þar, snúið sér frá hindúasið og tekið kristna trú.
Frá því 1983 hafa verið stofnaðir 20 söfnuðir með yfir
540 meðlimum. Starfið hófst með því að indverskur
predikari og kristnir menn í Sviss hófu að aðstoða
flóttamennina og sýna þeim umhyggju. Tamílamir eru nú
sjálfir farnir að starfa meðal landa sinna og boða þeim trú.
Þetta er eftirtektarvert afsprengi aðstoðar og umhyggju.
Á íslandi í dag búa tæplega 270 þúsund manns. Þar af
eru erlendir ríkisborgarar tæplega 5000. Þar á meðal er
ekki sá fjöldi fólks af erlendum uppruna sem nú eru
íslenskir ríkisborgarar. Flestir gera sér ljóst að þjóðfélag
okkar er ekki lengur eins einangrað og menningarlega
einlitt og áður. Hér hefur fólk sest að sem kemur úr ólíku
menningar- og trúarumhverfi. Er íslenska þjóðin tilbúin
til þess að meta þetta fólk að verðleikum? Er rúm fyrir þá
ólíku strauma sem það flytur með sér?
Margir hafa eflaust velt þessum spurningum fyrir sér og
þeir sem ekki hafa gert það ættu að finna sér tóm til þess.
Útlendingar munu halda áfram að flytjast til íslands og
setjast hér að. Hvers á þetta fólk að vænta frá þjóðkirkju
okkar og þeim ríflega 90% þjóðarinnar sem hana skipa?
Kristinn einstaklingur hlýtur að hugleiða hvað Biblían
segir um þetta tiltekna málefni.
Biblian talar oft um útlendinga. Það að vera útlendingur
var t.a.m. ísrealsmönnum vel kunnugt. í Gamla testa-
mentinu (3. Mósebók 19. kafla, versi 33-34) stendur:
„Ef útlendur maður býr hjá þér í landi yðar, þá skuluð
þér eigi sýna honum ójöfnuð. Útlendan mann, sem hjá
yður býr, skuluð þér svo með fara sem innborinn mann
meðal yðar, og þú skalt elska hann eins og sjálfan þig, því
að þér voruð útlendingar í Egyptalandi. Ég er Drottinn,
Guð yðar.“
í Nýja testamentinu er oft minnst á útlendinga. Eftir-
tektarvert er það hlutverk sem Jesús veitti þeim í dæmi-
sögum sínum, sbr. söguna um miskunn-
sama Samverjann. Áminning Jesú skildist
öllum sem á hlýddu. Athyglisvert er líka að
lesa um í Nýja testamentinu hvað margir
urðu til þess að taka kristna trú er þeir voru
fjarri heimahögum, sbr. t.d. söguna um Sál
er hélt til Damaskus og gerðist síðar
krafmikill postuli (Páll) (sjá 9. kafla
Postulasögunnar).
Það starf sem sr. Toshiki Toma (sjá viðtal
hér að framan) hefur unnið sl. 2 ár hlýtur
að teljast mjög brýnt. Kirkja sem vill láta
taka sig alvarlega getur ekki setið aðgerðar-
laus þegar að því kemur að sinna útlendu
fólki i landinu. Þessir einstaklingar verða að
fá að vita hvers þeir mega vænta af þjóð-
kirkjunni og hvort þeir séu yfirhöfuð vel-
komnir í hana.
Hlutverk hins kristna einstaklings er að sýna náung-
anum kærleika. Jesús lagði áherslu á að það sem við gerð-
um hinum minnsta bróður gerðum við Jesú sjálfum, sbr.
orð Jesú í fyrirsögninni hér að ofan (fengin úr Matteusar-
guðspjalli 25. kafla).
Allir menn eru skapaðir í Guðs mynd, eins einkennilega
og það kann nú að hljóma. Hvergi er minnst á að t.d.
Evrópubúar séu sérútgáfa sköpuð i annarri mynd. Margir
ólíkir litir hljóta að eiga rúm í mósaikmynd kristinnar
kirkju. Spurningin sem hljómar er: Hverjum reynist þú
náungi?
Gunnar Þór Pétursson
stundar nám í lögfræði
viö Háskóla íslands.
9