Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.09.1996, Blaðsíða 28

Bjarmi - 01.09.1996, Blaðsíða 28
UM VÍÐA VERÖLD BANDARÍKIN: Blikur á lofti Margir kristnir söfnuðir i Bandaríkjunum hafa orðið fyrir því að kveikt hefur verið í kirkjum þeirra. Frá árinu 1990 hafa um 60 kirkjubrunar orðið vestra, flestir í Suðurríkjunum, þar af rúmlega helmingurinn á undanfömu hálfu öðm ári. Allt em þetta kirkjur svertingja. Clinton forseti hefur látið til sín taka og hvatt landa sína í útvarpsræðu til að kveða niður það kynflokkahatur sem íkveikjurnar spretti af. Forsetinn hét því að 200 menn úr alríkis- lögreglunni myndu koma til samstarfs við yfir- völd heimamanna. Þetta er því orðið eitt viða- mesta lögreglumál í sögu Bandaríkjanna. Þá hefur verið opnaður ókeypis sími sem menn geta notað til að gefa upplýsingar ef þeir telja sig hafa séð eða heyrt eitthvað gmnsamlegt í tengsl- um við atburðina. Einungis þriðjung þessara 60 íkveikjumála hefur tekist að upplýsa. Margir Bandaríkjamenn líta það alvarlegum augum hve múslímum vex fiskur um hrygg í landi þeirra enda fjölgar þeim meira en nokkr- um öðrum trúarhópum í landinu. Þeldökkir múslímar vestanhafs em þrisvar sinnum fleiri nú en fyrir fimm ámm og hvítir fimm sinnum fleiri. Vöxtinn má rekja nær eingöngu til þess að menn hafa gerst trúskiptingar. Alls eru bandarískir múslímar um sex milljónir. Haldi svo fram sem horfir er talið að múslímar verði ráðandi í öllum stórborgunum fyrir árið 2020. Margar kirkjur, sem hætt var að nota til guðsþjónustuhalds, hafa verið gerðar að mosk- um, og fé, sem varið er til að reisa nýjar moskur, skiptir hundmðum milljóna. SVÍÞJÓÐ: Fleiri börn skírð Þeim Svíum fjölgar nú sem ganga til altaris og láta skíra börnin sín. Á síðasta ári fjölgaði þeim sem gengu til altaris um 100 þúsund og þátt- takendum í guðsþjónustum sænsku kirkjunnar um 50 þúsund. Hlutfall barna sem em skírð hefur aukist um um 8% síðan árið 1990. Ung- mennum sem láta ferma sig hefur hins vegar fækkað jafnt og þétt á undanfömum ámm og nálgast hlutfallið nú 50%. 86% Svía tilheyra nú sænsku þjóðkirkjunni. Nýjar biblíuþýðingar Wycliffe-stofnunin hefur nú eftir margra ára starf lokið við að þýða Nýja testamentið á mál þjóðflokksins Mapuche í Chile. Þá vinnur stofn- unin að því að gera nútímalega þýðingu á Biblíunni handa þeim 50 milljónum manna sem tala persnesku eða farsi. Það er m.a. opinbert tungumál í íran. Starfsmenn Wycliff gleðjast nú yfir því að Raymond Rising, sem starfar fyrír stofnunina í Kólombíu, var látinn laus úr tveggja ára fangelsi hryðjuverkamanna í júní sl. DANMÖRK: Fjölgar í þjóðkirkjunni Það gerist nú í fyrsta sinn í mörg ár að fleiri ganga í þjóðkirkjuna í Danmörku en þeir sem hverfa af skrám hennar. Sjö þúsund manns bættust við á liðnu ári, fimm þúsund vom strikaðir út. Athygli vekur að þriðji hver nýliði var á aldr- inum 12-14 ára. Þetta er útskýrt svo að nú séu fermingar aftur í tísku. „Uppreisn æskunnar í gagnstæða átt,“ kalla sumir þetta. Menn em skráðir í þjóðkirkjuna þegar þeir em skírðir en skírn er jafnframt skilyrði þess að verða fermdur. í sumum árgöngum eru fáir skírðir. Þessir hópar em nú margir að komast á fermingaraldur og hefur nýskráningum í kirkj- una fjölgað. Kjeld Holm, biskup í Árósum, segir í blaða- viðtali að rekja megi þennan nýja straum ung- menna á vit kirkjunnar til þess að áhugi fari vaxandi á kirkju og kristindómi meðal æsku- fólks og að fjölskyldur átti sig betur en áður á gildi gamalla hefða. Fleiri hafa tekið í sama streng. Sagt er að æskan sporni við horfnum hugsjónum kynslóðanna frá sjöunda áratugnum og lifnaðarháttum og skoðunum efnishyggjunnar og sætti sig ekki við hirðuleysi um andleg verðmæti. Þá er bent á að tilvist múslíma og nýaldarmanna veki unga fólk- ið til umhugsunar um gildi kristinnar trúar. Því er ekki að leyna að 1 mörgum söfnuðum vantar lifandi og virkt æskulýðsstarf. Er það talið ein ástæða þess að allstór hópur hugsandi unglinga leitar til kristilegra trúarsamtaka utan þjóðkirkjunnar. Hótað lífláti Robert Hussein er frá Kuwait. Hann var múslimi en varð kristinn í október sl. Nú er honum hótað lífláti. Dómstóll shía-múslima hvetur til þess að hann verði tekinn af lífi. Þegar konan hans heyrði að hann væri orðinn kristinn fór hún frá honum með börnin þeirra. Hann hefur einnig misst vinnuna í fyrirtæki fjölskyldunnar og fer nú huldu höfði í heima- landi sinu samkvæmt fréttum í blaðinu Ápne Dorer. Frá því hann snerist til trúar hefur hann óttast um líf sitt. Samt segir hann frá því að hann eigi frið í hjarta og hafi eignast góða og trausta kristna vini. í Kuwait eru almenn lög sem eiga að tryggja trúfrelsi. Nú ríkir hins vegar óvissa um það hvort þau verða látin gilda í máli Husseins eða þau islömsku lög sem shía- dómstóllinn dæmdi hann eftir. Margir fylgjast með málinu og ofsóknunum gegn honum hefur verið mótmælt harðlega, m.a. af norskum stjórnmálamönnum. NOREGUR: „Sjómannakirkja" í Atlanta Sjómannakirkjan er þar sem fólkið er. Á meðan á Ólympíuleikunum i Atlanta stóð var norsk sjómannakirkja með opna „sjómannastofu11 fyrir þá Norðmenn sem komið höfðu til borgarinnar í tilefni af leikunum. Þar var lesstofa, síma- sjálfsalar, kaffi og ýmsar veitingar og sjónvarp frá Ólympíuleikunum. Að sögn Óyvinds Kvarstein, stjórnanda sjómannastofunnar, var hugmyndin sú að útbúa „kæliskáp" fyrir þá sem vildu kæla sig svolítið niður í óbærilegum sumarhitanum. Ýmiss konar dagskrá var í boði og kvölds og morgna voru helgistundir. 28

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.