Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.09.1996, Blaðsíða 22

Bjarmi - 01.09.1996, Blaðsíða 22
ORÐIÐ Katrín Þ. Guðlaugsdóttir: Fyrir árþúsundum stóðu Aron og synir hans, prestar í helgidómi Guðs í eyðimörkinni, og báru lýðnum blessunarorðin: „Drottinn blessi þig og varðveiti þig! Drottinn láti sína ásjónu lýsa yfir þig og sé þér náðugur! Drottinn upplyfti sínu augliti yfir þig og gefi þér frið!“ (IV Mós. 6,24-26). Þetta var meira en mannleg ósk, það var kveðja frá Guði sjálfum, og aldrei siðan hafa þessi náðarorð þagnað. Allt frá fyrstu kristni til dagsins í dag hafa þau hljómað yfir landi og lýðum. Ytri aðstæður hafa verið misjafnar; samfundatjald, musteri, bænahús, strákirkjur og íburðar- miklar kirkjur, en boðskapurinn hinn sami um blessun, sem felur í sér varðveislu Guðs, fyrirgefningu og frið. Katrín Þ. Guðlaugsdóttir er láti sína ásJónu Yfir Þ'g ritari. og sé þér náðugur! Þar kemur SONURINN inn í myndina, sem grundvöllur náðarinnar að fyrirhugan Guðs, til bjargar föllnu mannkyni. Og þriðji hlutinn: Drottinn upplyfti sinu augliti yfir þig og gefi þér frið! er eins og fyrirboði um verk ANDANS (útskýring Roseniusar). Því fyrir heilagan anda fyllir Guð Sumir biblíuskýrendur tala um þessa svonefndu „Aronísku“ blessun sem þríþætta eins og Guð er þríeinn, faðir, sonur og heilagur andi, og ef að er gáð má vissulega sjá heilaga þrenningu birtast í hinni Drottinlegu blessun likt og í postullegu blessun- inni (II. Kor. 13,13). Við að íhuga hana með þetta í huga skynjaði ég nýjar víddir í þessari dásamlegu kveðju. Fyrsti hlutinn: Drottinn blessi þig og varðveiti þig! Hér er það FAÐIRINN sem talar, hann sem er upphafið og uppspretta allrar blessunar og máttugur vemdari líkama og sálar. Annar hlutinn: Drottinn okkur friði fyrirgefningarinnar og krafti af hæðum, sem við þurfum svo mjög á að halda í baráttu lífsins og trúar- innar. Og baráttu komumst við ekki hjá, meira eða minna, meðan við lifum, en blessun Drottins andar friði inn i óró- legt hjarta. „Ó, djúpi friður, helgur, hlýr, í hjarta mínu Guð nú býr.“ Það er þessi nálægð Drottins sem Davíð óttast að missa, er hann í Sálmi 51 hrópar angistarfullur: „Varpa mér ekki burt frá augliti þínu og tak ekki þinn heilaga anda frá mér.“ í Davíðssálmum má víða finna sterkan samhljóm við Drottinlega blessun eða jafnvel beint orðalag. Þessi náðarkveðja frá Drottni hefur mikla þýðingu fyrir mig og þig. Um leið og okkar eigið nafn var nefnt í heilagri skírn var nafn Drottins lagt yfir okkur og oftlega siðan, - og hve margar mæður skyldu ekki hafa staðið við vöggu bamsins síns og úr ásjónu þeirra skinið brennandi kærleikur, er þær bókstaflega lögðu nafn Drottins yfir drenginn sinn eða telpuna með þesum hætti? Sjálf gleymi ég aldrei er ég stóð álút yfir fyrsta barninu mínu og klökk af gleði hvíslaði þessa undursamlegu bæn um blessun Drottins yfir drenginn, og áfram yfir börnin eitt af öðru. Slik blessunarorð em ekki haldlitlar mannasetningar, vægi þeirra byggist á himneskri tilskipun hans sem sagði: „Þannig skulu þeir leggja nafn mitt yfir ísraelsmenn, og ég mun blessa þá“ (v. 27). Það er sem sé loforð bundið við hina Drottinlegu blessun, því skulum við ekki gleyma á hverju sem gengur. Menn bera fram orðin, en GUÐ GJÖRIR! Þess vegna heitir það í messugjörðinni: „Með- takið Drottinlega blessun." Með öðmm orðum ,,þiggið“. Ég minnist frásagnar prests um lítinn dreng, sem ævin- lega kom I lok guðsþjónustunnar og læddist hljóðlega inn, til þess að hverfa jafnharðan aftur eftir stutta viðdvöl. Þetta henti sunnudag eftir sunnudag og fór orðið í taug- arnar á presti: „Gat ekki drengurinn mætt á réttum tima og til hvers var hann yfirleitt að koma þegar öllu var að ljúka?“ Loks stóðst presturinn ekki mátið en sat fyrir drengnum á leið út. Þá fékk hann hrífandi skýringu. Drengurinn hafði skyldum að gegna við járnbrautarhlið í grenndinni og átti þess engan kost að vera við guðs- þjónustu. Hann hafði hins vegar reiknað út nákvæmlega, 22

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.