Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.09.1996, Blaðsíða 26

Bjarmi - 01.09.1996, Blaðsíða 26
VIÐTAL Kjartan Jónsson Æskulýðsfulltrúi í Landakirkju Viðtal við Hreiðar Stefánsson „Ég var mjög baldinn sem strákur og alltaf til í sprell og létt spaug. Árið 1979, þegar ég var í unglingadeild KFUM við Holtaveg í Reykjavík, var ákveðið að fara með hana á drengjamót í Noregi. Ég var ákveðinn í að fara, en foringjamir vora efins um hvort það væri óhætt að hleypa mér með af ótta við að ég myndi setja allt á annan endann í ferðinni. Að lokum fékk ég að fara ásamt 32 öðrum piltum. Þetta varð afdrifarík ferð því að í henni gafst ég Jesú Kristi. Síðan hef ég verið starfsmaður í ýmsum deildum KFUM. Þar fékk ég mína starfsþjálfun fyrst og fremst. Ég ætlaði að verða matvælafræðingur og stundaði nám í þeirri iðn í 7 ár, síðustu árin í Danmörku. Rétt áður en ég útskrifaðist fékk ég að vita að ég myndi aldrei geta starfað við þetta vegna þess að ég hafði alvarlegt ofnæmi. Eftir námið stundaði ég ýmis önnur störf og fékk mjög vel launaða stöðu 1 Reykjavík. Eitt sinn var ég að ræða við starfsmenn KFUM & K þar og kvartaði m.a. yfir því að félögin ættu hús úti á landi ekki nýttust öll fyrir barna- og æskulýðsstarf. Ég sagði það ætti að senda nokkra félags- menn út á land til að bæta úr þessu. Daginn eftir var mér boðin vinna 1 Vestmannaeyjum. Ég hafnaði henni strax vegna þess að ég var í góðri vinnu fyrir. En þetta lét mig ekki í friði. Þetta varð kall frá Guði um að ég ætti að fara sjálfur út á land. Eftir mikla bæn sagði ég upp vinnunni og flutti til Vestmannaeyja. Þar fékk ég helmingi verr borgaða Strax og þár sýna áhuga á starfinujá þár ábyrgð,fyrst á ánhwjum smáatrikm og síöar smátt og smátt á stærri málum. stöðu en ég hafði haft. Ég var í henni eitt ár, eða þar til sóknarnefnd Landakirkju bauð mér stöðu æskulýðs- fulltrúa á fjölmennum fundi í kirkjunni. 21. mars 1992 var stofnuð unglingadeild KFUM í Vestmannaeyjum. Ég sé um starf unglingadeilda KFUM og K í bænum. Þetta er í rauninni æskulýðsstarf kirkjunnar á sama hátt og þegar sr. Friðrik Friðriksson, stofnandi KFUM og K, starfaði innan Dómkirkjusafnaðarins á sínum tíma. Ég sé líka um starf fyrir 10 til 12 ára börn (TTT) og syng í hljómsveitinni Prelátar." E/fir hvaða aðferðum vinnurðu? „Ég legg mikla áherslu á að unglingarnir fái ábyrgð. Strax og þeir sýna áhuga á starfinu, fá þeir ábyrgð, fyrst á einhverjum smáatriðum og síðar smátt og smátt á stærri. málum. Ég geri mér sérstakt far um að gera erfiðan ungling að leiðtoga þvi að hann fær aðra erfiða unglinga með sér og þeir slípast smátt og smátt inn í hópinn. Annars er mikilvægt að vera til staðar þar sem ungling- arnir eru, þegar eitthvað er að gerast hjá þeim úti í bæ, t.d. fótboltaleikir, og þeir eru á rúntinum um helgar og drekka sinn fyrsta vínsopa. Þeir hafa aðgang að mér hvenær sem er, alla daga, til viðræðna. Þeir nota þetta óspart og á veturna fyllist safnaðarheimilið í frímínútum skólans. Það er mikilvægt að unglingarnir hafi aðgang að einhverjum, sem er svolítið eldri en þeir, til að spjalla við um daginn og veginn. Finni þeir út að einhver fullorðinn er tilbúinn til að hlusta á þá, koma þeir. Það er hægt að koma fagnaðar- erindinu að í samtölunum. Starf leiðtoga í barna- og unglingastarfi er ekki lokið í lok fundarins. Hann er fyrir- mynd og alltaf undir smásjá. Ég legg áherslu á að þekkja hvern ungling með nafni og mæta hálfum til einum klukkutíma fyrir hvern fund. 26

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.