Bjarmi - 01.09.1996, Blaðsíða 17
HVAÐ ER ...
Helstu trúaratriði
Sameiningarkirkjunnar:
í upphafi ætlaði Guð Adam og Evu, hinum flekklausu
fyrstu mannverum, að eignast flekklausa fjölskyldu. Pað
sem setti strik í reikninginn var að Lúsífer, engill Guðs,
girntist Evu í aldingarðinum og hafði mök við hana. Sá
verknaður gerði Lúsífer að djöflinum og leiddi mennina til
andlegs falls og setti þá í andstöðu við Guð. Jesús Kristur
kom á andlegri bót mannkyninu til handa, en tókst ekki
að frelsa holdið, því hann dó einhleypur á krossinum. Því
hefur séra Moon verið falið að koma til leiðar, að helga
mannlegt hold fyrir augliti Guðs. Hann er útvalinn til að
koma á fót guðsríki á jörðu með því að stofna hina
fullkomnu fjölskyldu, allir meðlima Sameiningar-
kirkjunnar tilheyra fjölskyldunni. Þannig ætlar hann að
frelsa þjóð sína og að lokum allan heiminn. Moon
velur meðlimum kirkju sinnar maka. Fræg eru
fjöldabrúðkaup hans, þar sem Moon hefur
gefið saman hundruð þúsunda hjóna í
einu, jafnvel gegn um gervihnött.
Af þrettán börnum Moon og
Han eru tólf á lífi. Þau endur-
spegla tólf ættkvíslir ísraels.
Sonur Moons, Heungjin Nim,
sem lést í umferðarslysi
1984, sér um mál Moons á
himnum. Hann er hinn
himneski Kristur, en Moon
hinn jarðneski.
Guð hefur opinberað Sun
Myung Moon sannleikann og
hann er falinn 1 ritningum
Hins guðdómlega lögmáls.
Opinberanir séra Moons hafa
mun meira gildi en Biblían.
Búið er að ritskoða og breyta
Hinu guðdómlega lögmáli all-
nokkuð frá fyrstu útgáfu, því þar
mun margt hafa staðið sem ekki
var hægt að verja. Liggur því í
augum uppi að þessi mooníska
viðbót við Biblíuna er ekki Guðs orð.
Sé hún í raun og sanni opinberun
Guðs til síns útvalda, þá hefði hún
varla þurft endurskoðunar við.
Sameiningarkirkjan kennir að allir
kristnir menn sem afneita séra Moon og
Messlasi og frelsara heimsins munu að öllum
líkindum verða dæmdir til helvitis. í raun leika
kristnir menn sömu rullu gagnvart séra
Moon og fræðimennirnir og farísearnir
gagnvart Jesú, þeir ofsækja hinn útvalda guðs, Sun Myung
Moon.
Jesús varaði við villukennendum á borð við séra Moon.
Hann sagði: „Varist að láta nokkurn leiða yður í villu.
Margir munu koma í minu nafni og segja: „Ég er Kristur!“
og marga munu þeir leiða i villu“ (Matt. 24:4-5). Jesús
sagði einnig: „Enginn kemur til föðurins nema fyrir mig.“
Aöalheimild:
Yamamoto, J. Isamu. 1995. Unification Church. Carlisle.