Bjarmi - 01.09.1996, Qupperneq 25
heldur uppi aga hjá þeim, sem eru mjög ungir, passa
bækur, taka til o.s.frv. Allir, sem hafa hlutverk í messunni,
safnast saman fyrir hana og eiga sambænastund. Þaðan
ganga þeir út til verksins. Þetta er mikil trúarleg upp-
bygging fyrir okkur öll.“
Hver er árangur poppmessanna?
„Þetta er sáning. Fólk, sem kemur í poppmessur, verður
oft að þátttakendum í öðrum liðum starfsins. Við erum i
raun ekki að gera neitt annað en að kalla fólk til lifandi
trúar á Jesú Krist og segja því að kirkjan standi opin sem
heimili. Æ fleiri vakna til þeirrar vitundar. Poppmessumar
eru ekki eitthvert andlegt húllum hæ, heldur uppbygging
safnaðar."
Nú erum við á 4. ári og höfum unnið skv. þessu plaggi. Um
þessar mundir er heimsóknarþjónusta til aldraðra að fara
af stað. Það var einn liður í þessari áætlun.
Markmið okkar er að allir eigi eðlilegt erindi til kirkj-
unnar, þ.e. að söfnuðurinn leggi netin sem víðast í sam-
félaginu. Það á að vera sama á hvaða aldri menn em, af
hvaða kyni, hvaða atvinnu þeir stunda, þeir eiga ekki að
komast hjá þvi að verða varir við kirkjuna, hið kristna
samfélag. Við viljum að þeim séu gefnar ástæður fyrir þvi
að fara í kirkjuna, að enginn maður í samfélaginu komist
hjá því að heyra kall Krists til afturhvarfs. Við hugsum
mikið um það hvernig hægt sé að tengja bæjarlífið, hið
Framhald á bls. 29.
Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir
og sr. Bjarni Karlsson í
guðsþjónustu í
Landakirkju.
Ljósmynd:
Sigurjón Ragnar
hjá Fróöa hf.
Hugmyndafræði
safnaðarstarfsins
Hajið pið eitthvert sérstakt markmið í safnaðarstarfinu og
takið pið einhver ákveðin skref í átt að því markmiði?
„Fyrsta veturinn, sem við vorum hér, var hópur um
safnaðaruppbyggingu í gangi. Við fengum fólk með okkur
allan þann vetur og greindum safnaðarstarfið og aðstæður
þess. Siðan var lagt fram plagg, .Æskileg framtíðarsýn”, þar
sem skrifað var niður hvað við vildum gera næstu 5 árin.
Fólk, sem kemur í poppmessur, verður oft að
þátttakendum í öðrum liðum starfsins. Við
erum í raun ekki að gera neitt annað en að
kallafólk til lifandi trúar á Jesú Krist og segj a
Jm' að kirkjan stanii opin sem heimili.