Heima er bezt - 01.08.1955, Blaðsíða 4

Heima er bezt - 01.08.1955, Blaðsíða 4
228 Heima er bezt Nr. 8 bjóðið með beittri línu og hnýtti saman til að leggja hana í sjó- inn. Bað ég hann þá að hætta við það, því að mér sýndist ég sjá hvassa vindbrún inn í firði. Hann dokaði við augnablik og hætti við að leggja línuna og leit inn í fjörðinn. En það skipti engum togum. Á næsta augnabliki skall á hvassviðri af norðvestri, sem varð á skömmum tíma að ofviðri. Formaðurinn dró þá í snatri inn uppistöðuna, en við hásetarnir byrjuðum á meðan lífróður á móti veðurofsanum í áttina til lands. Þegar formaðurinn var búinn að draga inn uppistöðuna, settist hann einnig undir árar. Ég sá fram á, hve erfitt mundi, eða jafnvel ómögulegt, að róa gegn fárviðrinu að landi. Spurði ég því formanninn, hvort hann treysti sér til þess að lenda í Sel- ey, sem er gömul verstöð, en hann þvertók fyrir, að það væri mögulegt, vegna brims. Útlitið var því ekki glæsilegt. Lítið, veikbyggt þriggjamannafar velt- ist í mikilli haföldu og ofsaroki, með þrjá menn undir árum, en beint á móti ofviðrinu var að sækja. Sjólaginu þarf ekki að lýsa fyrir sjómönnum, þar sem hafaldan reis gegn fárviðrinu. Þó heyrðist ekkert æðruorð. Þög- ulir rerum við af öllu áfli og stefndum kinnungshallt við vindinn, utanvert við Krossanes, sem er yzta nes norðan Reyðar- fjarðar. Ætlunin var sú, að ná svonefndri Vatnsfjöru, sem er sunnanvert yzt á nesinu. Það var enginn ágreiningur um neitt meðal mannanna á bátnum. All- ir lögðu fram þá krafta, sem þeir áttu til. Verst var, hve oft for- maðurinn varð að leggja upp ár- ar til að ausa. Ágjöfin var mikil. Ég reri á fremstu þóttu og öld- urnar (sjóarnir) steyptust hvað eftir annað yfir mig. Þegar ég sá, hve oft formaðurinn lagði upp til að ausa, kallaði ég til hans og bað hann að ausa að- eins með skjólunni, en ekki með austurstroginu og gera það ekki fyrr en sjór væri í miðjan legg í bátnum. Eftir það jós hann sjaldnar og við vorum allir leng- ur undir árum en ella mundi. Þegar við stóðum í þessu stríði við hamfarir náttúruaflanna, kviknaði allt í einu vonarneisti um lífgjöf. Við sáum reyk úr gufuskipi norður af Gerpi og vissum, að það var strandferða- skipið Hólar, sem mundi vera á leið til Eskif j arðar, er var meðal annarra hafna viðkomustaður þess. Ég sagði félögum mínum á bátnum, að ef okkur tækist að ná inn á mið, sem nefnist Súlur, yrðum við í vegi fyrir skipinu og það mundi taka okkur. Um borð í skipinu væri margt af sunn- lenzkum sjómönnum, stéttar- bræðrum okkar, og þeir mundu vafalaust stuðla að þvi, að okk- ur yrði bjargað. Þetta varð til þess að auka lífsvonina og einn- ig fjörið. Rerum við nú af öllu afli og tókst að verða í vegi fyrir Hólum, þegar hann nálgaðist. Ég veifaði þá sjóhattinum og kall- aði einnig, en allt reyndist ár- angurslaust. Skipið beygði inn fyrir okkur og hélt áfram ferð sinni og skipti sér ekkert af okk- ur. Þetta voru fyrstu vonbrigðin og þau voru mikil og átakanleg. Við þögðum allir um sinn og svo leit út, að enginn vildi rjúfa þögnina. Líklega hefur enginn treyst sér til að telja kjark í annan. Ég mun fyrstur hafa tek- ið til máls og sagt, að nú væri ekki annað en róa áfram og ná Vatnsfjöru, eins og við höfðum ætlað okkur í upphafi. Um leið leit ég inn í Reyðarfjörðinn og sá að særokið náði upp í mið fjöll. Ég hafði ekki orð á þessu, en það fór um mig hrollur, því að á móti þessu ofviðri áttum við að halda og á árunum einum saman ná landi. Seinna mun ég geta um, hver áhrif þetta hafði á taugar mínar, en enginn má taka þetta svo, að ég hafi orð- ið hræddur. Þó að þessi hrollur færi um mig, fann ég ekki til ótta. Ég var sannfœrður um, að við mundum ná landi og bjarg- ast. Þess vegna var ég öruggur og algerlega óttalaus. En ósjálf- rátt varð nú ofarlega í hug mín- um hin stutta en kjarnyrta, fagra bæn, er dugmikill og gáf- aður formaður á Vestfjörðum norðarlega, eða á Hornströnd- um bjó til fyrir sig og háseta sína, er svo hljóðar: „Báturinn er lítill. Hafið er stórt. Hjálpa þú oss drottinn." Það mun hafa átt mikinn þátt í því, að við náðum landi, að rok- ið var öllu minna út af Krossa- nesinu og sjávarfallið (straum- urinn) lá inn og suður. Þess vegna bar bátinn að landi sunn- an við nesið, þó að við rerum ávallt kinnungs hallt við vind- inn og stefndum fyrir utan það. — Vegalengdin,. sem við vorum á róðri til lands, mun vera sem svarar til hálftíma róðri á þriggjamannafari í logni og meðstraum. En nú vorum við að róa þetta nálægt 8 klst. af því kappi og afli, sem af lífshættu leiðir og hún á þátt í að auka. Nú fannst okkur, að við hafa unnið talsvert afrek, þegar sýnt var, að okkur tókst að ná upp undir lánd eftir 8 klukkutíma róður. Nær lagi mundi þó að segja, að við hefðum leyst af hendi þrekraun. En kálið var ekki sopið, þótt 1 ausuna væri komið. Nú urðum við fyrir mikl- um vonbrigðum í annað sinn. Það reyndist algerlega ómögu- legt að komast að Vatnsfjörunni fyrir brimi, því það braut fyrir alla víkina, sem hún var í. Við urðum því þarna frá að hverfa, lamaðir og vonsviknir. Héldum við þá inn með land- inu, unz við komum að þver- hníptri klöpp, sem lá nokkuð frá landi, beint út í sjóinn og heitir Naumugilsklöpp. Þar var nokkurt hlé fyrir norðanvindinum og þar gátum við andæft í hægðum okkar og kastað mæðinni. Jafn- framt gátum við nú í næði ráðið ráðum okkar og reynt að finna úrræði til bjargar. En hér var ekki margra kosta völ. Ennþá var þó talsvert eftir af þreki okkar og kjarki og það varð úr að reyna að róa inn með landinu og freista að komast þangað, þar sem unnt yrði að lenda. Nokkurt hlé var þar fyrir vindinum. í raun og veru var nú horfið að þessu ráði, af því að ekkert annað var fyrir hendi. Þegar við rerum fyrir Naumugilsklöppina, segir mið- þóttumaðurinn Jón Þorsteins- son: „Mundi ekki hægt að skjóta hér upp manni?“ Svo mikil fjar- stæða fannst okkur Guðmundi þessi uppástunga, að við svöruð- um henni engu orði. Öldur sjáv- arins virtust stöðugt ganga yfir alla klöppina upp að grösum, svo að engum manni mundi stætt á

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.