Heima er bezt - 01.08.1955, Síða 16

Heima er bezt - 01.08.1955, Síða 16
240 Heima er bezt Nr. 8 Kolbeinn Guðmundsson frá Úlfljótsvatni: Bíldsfell og bændur þar Fyrri grein Jón Sigurðsson silfursmiður. Jón Sigurðsson á Bíldsfelli, var fæddur í Nýjabæ í Ölfusi um 1746. Foreldrar hans voru Sig- urður bóndi í Nýjabæ, síðar á Litla-Hálsi í Grafningi, Jónsson, bónda á Hvoli í Ölfusi Ög- mundssonar. Jón tók við búi eft- ir föður sinn á Litla-Hálsi, en fluttist þaðan að Villingavatni og bjó þar fá ár. Keypti Bíldsfell 1788. Bíldsfell var áður í eign Skálholtsstóls. Þar bjó Jón síð- an til dauðadags. Þegar hann keypti Bíldsfell, var það að jarðamati 40 hundr. Stólsjarðir voru seldar á 5 ríxdali hundrað- ið. 20 dali varð að greiða strax, en gjaldfrestur var á eftirstöðv- um (árleg afborgun), svo að flestir, sem gátu innt af hendi festarféð, gátu eignast ábýlis- jarðir sínar. En þeir, sem ekki gátu það, urðu að verða af kaup- unum. Sumir fengu efnaða menn til þess að kaupa ábýlis- jarðir sínar. En þeir sem ekki liðar áfram, oft mann fram af manni. Jón Sigurðsson á Bíldsfelli var dugnaðarbóndi á sinni tíð og auk þess silfursmiður. Lítið mun nú vera til af smíðisgripum, sem vissa er fyrir að séu eftir hann. Sú sögn gekk um Jón, að hann mundi hafa unnið silfur úr berg- tegund þeirri, sem er í horninu á Ingólfsfjalli upp undan Kög- unarhól. Sögn þessi mun hafa verið byggð á því, að bergtegund þessi er ljósgrá að lit. En þar mun ekkert silfur vera. Jón var tvígiftur og átti fjölda barna. Er mikil ætt frá honum komin, þó að ekki verði hún rakin hér. Jón þótti góður bóndi og sómamaður á sinni tíð. Byrjaði hann þó með heldur lítil efni. Kom upp mörg- um börnum. Jón andaðist 10. apríl 1819, 72 ára að aldri. Valgerður Gunn- laugsdóttir, síðari kona hans, var þá 54 ára að aldri. Hún bjó á- fram með börnum sínum 10 ár eftir dauða manns síns. Setti hún Ögmund son sinn ráðsmann yfir allt, sem búskapnum kom við ut- anstokks. Tókst honum bú- stjórnin ágætlega, og þótti vit- urlega ráðið af ekkjunni að hafa hann fyrir ráðsmann, þótt hann væri þá ungur að aldri, aðeins 19 ára. Ögmundur Jónsson, Bíldsfelli. Ögmundur Jónsson fæddist árið 1800 á Bíldsfelli, sonur Jóns Sigurðssonar bónda þar og konu hans, Valgerðar Gunnlaugsdótt- ur. Jón faðir Ögmundar andaðist 1819. Valgerður ekkja hans bjó eftir það 10 ár á Bíldsfelli eins og fyrr er sagt, með börnum sínum 8, sem heima voru. Það yngsta var þá 7 ára. Þessi ár var Ögmundur ráðsmaður hjá móður sinni og sýndi þá strax óvenju mikinn dugnað og ráð- deild. Árið 1830 tók hann alveg við búinu og giftist sama ár El- ínu Þorláksdóttur frá Þjóðólfs- haga. Ögmundur var athafnamaður mikill. Hann sléttaði allt tún- ið á Bíldsfelli, sem áður var kargaþýft, eins og flest tún í þeirri sveit voru í þá daga. Túnið á Bíldsfelli var þá rúmir 7 hektarar. Lítið mun hann hafa stækkað það, enda voru erfið- leikar á því vegna staðhátta. Gripheldan grjótgarð hlóð hann á tvo kanta túnsins, en lét fjall- ið duga fyrir girðingu fyrir ofan það, en graflæk, sem kallaður er „gil“, fyrir neðan það. Yfir gil þetta fóru stórgripir ekki, og þó að það kæmi fyrir, sást það af hlaðinu. Eftir að Ögmundur var búinn að slétta túnið og girða, varð það með grasgefnustu tún- um og brást aldrei tilfinnanlega. Af því fengust um jafnaðar um 350 hestar af töðu. Það minnsta, sem ég heyrði talað um, var ár- ið 1881; þá fengust af því rúm 200 hestar. En það mesta 1891, 420 hestar. Það ár var grasár í bezta lagi. Eins og venja var í þá daga, var jörðinni skipt í parta á milli erfingja. Faðir Ögmundar og þeirra systkina átti Bíldsfellið skuldlaust. En Ögmundur keypti af systkinum sínum smátt og smátt þeirra parta, eftir því, sem þau vildu selj a, svo að hann varð að lokum einn eigandi. Allt, sem Ögmundur tók fyrir eða lét gera, þótti bera á sér rausnar- og myndarbrag. En svo var sumt, sem hann hélt kyrru í gamla horfinu, hélt því aðeins vel við, en breytti þar litlu, t. d. breytti hann lítið húsum, og voru þau fremur þröng og lítið í þau borið hjá honum. Hjá honum var löng og mjó bekkbaðstofa með litlum gluggum. En hjá öll- um öðrum efnabændum í hreppnum voru portbyggðar baðstofur með gestastofu undir loftinu. Það var haft eftir séra Jóni Melsteð 1 Klausturhólum, eitt sinn, er það barst í tal, hvað búskapurinn væri í góðu lagi á Bíldsfelli, að öllu öðru leyti en því, hversu þröngur bærinn væri og ekki staðarlegur: „Já, en þar eru kofarnir ekki tómir,“ sagði séra Jón. Um 1850 fóru fyrstu stunda- klukkur að koma í sveitirnar, og svo var í Grafningshreppi. Ekki flýtti Ögmundur sér að fá sér klukku. Það var ekki fyrr en þær voru komnar á flesta stærri bæi. En þá kaupir hann sér klukku af dýrustu tegund, sem þá fékkst. Flestir aðrir höfðu keypt kassalausar klukkur, smíð- að sjálfir kassana, og voru þeir lítil híbýlaprýði. Þessar klukkur gengu 24 tíma, en sú, sem Ög- mundur fékk, 8 daga og var í eikarmáluðum kassa. Klukku þessa fékk Jón, sonur Ögmund- ar, eftir föður sinn, og átti hana, þar til hann fór til Ameríku 1887, en þá fékk hana Jón Sig- urðsson, þá bóndi á Búrfelli. En

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.