Heima er bezt - 01.08.1955, Side 19

Heima er bezt - 01.08.1955, Side 19
Nr. 8 Heima er bezt 243 Guðmundur Gíslason Hagalín: verði um ullkistuna Ræningjaklærnar. „Bóndi er bústólpi, bú er land- stólpi, því skal hann virður vel,“ segir ástsælasta skáld okkar ís- lendinga, og víst er um það, að veigamikil sannindi felast í þess- um orðum, þó að margt sé breytt um atvinnu- og menningarhætti frá því á dögum skáldsins. Hver blettur, sem bóndinn gerir að sléttu og fagurgrænu túni, er fjársjóður, sem lagður er í lófa æsku landsins og falinn henni til ávöxtunar og varðveizlu til handa óbornum kynslóðum. Hann er fémæti, sem eykst á vori hverju við himindögg og geisla hækkandi sólar. Þetta þarf allri þjóðinni að vera svo ljóst, að sá, sem byggir malar- eyrina, býr við malbikaða götu eða fleytir sér á sætrjám, gleðjist hjartanlega yfir þeim framfara- gróðrar- og menningaranda, sem setur nú sinn svip á framkvæmd- irnar í sveitum landsins, þar sem stórhugur bóndans, fegurðarskyn húsfreyjunnar, tækni veraldar og sólin og döggin hjálpast að við sköpun nýrra og varanlegra verðmæta. En ekki er síður nauðsynlegur skilningur allra landsmanna, hvort sem þeir búa í dalabæ, þorpi við fjörð eða borg með steindum strætum, á þeirri miklu þjóðarþörf, að staðinn sé örugg- ur vörður um þá gullkistu lífs- bjargar og velmegunar, sem sjór- inn er við strendur landsins, — að alger einhugur ríki um fram- lög til vörzlu íslenzkrar land- helgi, svo sem hún er nú — og að það sé haft í huga sem ófrá- vikjanlegt takmark að vinna al- þjóðlega viðurkenningu á rétti okkar íslendinga til alls land- grunnsins. Unga fólkið — og raunar þeir af eldri kynslóðinni, sem hafa alið aldur sinn í uppsveitum eða hinum stærstu af bæjunum — getur ekki gert sér eins ljóslif- andi grein fyrir mikilvægi land- helginnar og því ráni fjár og lífsmöguleika, sem þar hefur far- ið fram, og við, sem ólumst upp í byrjun þessarar aldar við fiski- sæla firði og víkur. í Auðkúlu- og Ketildalahrepp- um í Arnarfirði bjuggu á upp- vaxtarárum mínum mörg hundr- uð manns. í þessum sveitum var ekkert sjóþorp, og hver fjöl- skylda hafði eitthvert kvikfé og einhverja garðrækt, en samt sem áður var fiskifangið veigamikill þáttur í afkomu allra og mun mikilvægara allmörgum en kvik- fé og garðagróður. Dag hvern á vorin reru tuttugu til þrjátíu bátar úr þessum sveitum út á fjörðinn og á haustin fjörutíu til fimmtíu, og að landi komu þeir tíðum með góðan afla og oft drekkhlaðnir. En svo fór það að verða oftar og oftar, sem menn sáu reyki við hafsbrún, reyki, sem þokuðust nær og nær, unz það sýndi sig, að þar voru á ferðinni enskir togarar. Þeir hófu veiðar í firðinum, og oft var það, að tvö, þrjú eða fjögur skip drógu botnvörpur sínar fram og aftur um miðin, komu jafnvel svo nærri landi, að skarkið í vindunum barst að eyrum fólks- ins, sem stóð fyrir dyrum úti og horfði á ræningjaskipin, sem rændu ekki einungis fiskinum, heldur líka veiðarfærunum og spilltu möguleikum fólksins til lífsbjargar, eigi aðeins þetta vor- ið eða haustið, heldur um ófyrir- sjáanlega framtíð. Stundum hættu menn lífi sínu til þess að reyna að bjarga veiðarfærunum úr klóm ræningjanna, og mörg konan og margt vitkað barnið horfði á bát, sem barðist áfram í háa roki og leitaði lands gegn- um rjúkandi brimgarð — með eiginmann, bróður eða son inn- anborðs. Smátt og smátt minnkaði fiskigengdin í fjörðinn, og þar með var sterkum stoðum kippt undan afkomumöguleikum fólks- ins. Aðgerðum hinna erlendu ræningja má líkja við það til skýringar og skilningsauka, að erlendir ribbaldar hefðu komið með stórvirkar heyvinnuvélar í engjar bænda í uppsveitum landsins á þeim árum, sem tún- rækt var lítil, slegið, rakað og bundið, þar sem slægjan var bezt og nærtækust, og flutt hey- ið af landi brott. Nú er svo kom- ið í Auðkúlu- og Ketildalahrepp- um, að þar eru ekki aðeins gras- býlin komin í eyði, heldur líka margar bújarðir, og þar búa nú einungis nokkrir tugir manna, sem áður bjuggu mörg hundruð manns. Sagan, sem gerðist þarna vest- ur í Arnarfirði, er ekkert eins- dæmi. Ræningjaklærnar erlendu sviptu lífsbjörg þúsundir manna, sem bjuggu við fiskisæla firði, flóa og víkur þessa lands, og þær eyddu svo byggðina, að misjafn- lega gamlar rústir mæta nú auga forvitins ferðalangs, þar sem áður lagði reyk úr strompi, bóndi stóð í túni eða við bát í vör, börn voru að leikjum sín- um og hjörð dreifði sér um haga. Og enn sækja erlendir ráns- menn að gullkistunni við ís- landsstrendur, og suður í Bret- landi er stétt reyfara, sem legg- ur kapp á að rægj a af okkur rétt okkar og æru og koma því til leiðar, að með ofbeldi verðum við knúðir til að leyfa ræningja- klónum að eyða lífsbjargarmögu- leikum alinna og óborinna í þessu landi. Sjálfs er höndin hollust. Á fyrstu áratugum þessarar aldar höfðu Danir einir á hendi gæzlu landhelginnar hér við ís- land. Þeir notuðu aldrei nema eitt skip við gæzluna, og þetta skip, hvort sem það hét Hekla, Hejmdal, Islands Falk, Beskjrtt-

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.