Heima er bezt - 01.04.1956, Side 2

Heima er bezt - 01.04.1956, Side 2
Vaxandi vandamál Með ári liverju, sem líður, ilytja nýjar hagskýrsl- ur oss þau gleðitíðindi, að meðalaldur þjóðarinnar sé að liækka. Hækkunin liggur þó ekki í því, að mannsæfin lengist í raun og veru, heldur hinu, að sífellt verða þeir fleiri, sem ná hinum hærri aldurs- skeiðum, 70 árum eða meira. Þessu fylgir og, að almennt halda menn meiri starfsorku til hárrar elli en áður var títt. Þetta eru að vísu gleðilegar framfar- ir, en samt hafa skapazt vandamál af hinum hækkaða meðalaldri. Þau vandamál eru sameiginleg mörgum þjóðum og eru, hvað gera skuli við gamla fólkið. Svo er ákveðið í lögum, að opinberir starfsmenn skuli láta af störfum 70 ára að aldri, hvert sem starf þeirra er, og hvernig sem farið er orku þeirra og heilsu. Þetta er raunar ekki ósanngjarnt, þegar á það er litið, að venjulegast bíða margir ungir menn þess, að taka til starfa, og ekki væri heppi- legt, að menn yfirleitt kæmust ekki í opinberar stöður, fyrr en farið væri að halla undan fæti. En hinu má ekki gleyma, að margir þessara uppgjafa- manna hafa enn lítt skerta starfsorku, þegar þeir falla fyrir aldursmarkinu. En það eru ekki ein- ungis starfsmenn hins opinbera, sem ýtt er til lilið- ar, þegar ellin færist nær, jafnvel þótt starfskraftar séu fyrir hendi. Frá flestum vinnustöðum og starfs- greinum er mönnum yfirleitt þokað, þegar þessum aldri er náð, enda gerist mönnum þá lengstum erfitt að keppa við yngri menn, þótt verulegir starfs- kraftar séu enn til. Eftirlaun og ellilaun tryggja að vísu að nokkru leyti afkomu þessa fólks, en ekki nægilega, og lífsbaráttan verður mörgum þeirra alltof erfið, þrátt fyrir þann styrk, af því að ekkert er gert til að tryggja þessum mönnum störf við hæfi aldurs þeirra. Annað vandamál eru dvalarstaðir gamla fólks- ins, sem ekki getur sjálft haldið heimili, eða dvalist hjá börnum sínum eða vandamönnum. Það er að sönnu margviðurkennt, að ekkert er æski- iegra, en ganila fólkið geti dvalist á heimilum barna sinna og fylgst með barnabörnunum. Og líklega mundi ekkert verða fremur til að draga úr því losi, sem svo mjög þykir bera á meðal unglinga, en að börnin fengju fyrstu árin að umgangast gamla fólkið, sem bæði hefir tíma til að sinna þeim og skilur hugsanaferil barnsins betur en þeir, sem standa mitt í önn dagsins. En oft er þessa enginn kostur, og mörg gamalmenni eiga enga niðja til að dveljast með. Lausn á þessu máli hefir verið að reisa elliheimili. Um það er ekkert nema gott að segja en sá er þó Ijóður á, að mörgu gömlu fólki finnst eins og það sé með því lagt til hliðar, líkt og einhver ónothæfur hlutur, og veldur slíkt sársauka og beiskju. Mönnum gleymist alltof oft í þessu máli, hversu sárt það er þeim, sem enn hafa nokkra starfs- orku, að fá ekki að nota hana, og verða eins og of- aukið í samfélaginu. Vandamál þetta er því tvíþætt. Annarsvegar, að sjá gömlu fólki, sem ekki getur dvalist á lieim- ilum fyrir dvalarstað, og hinsvegar að sjá öllum þeim, sem unnið geta, fyrir viðfangsefnum við þeirra hæfi, þannig að hver og einn finni, að hann sé enn starfandi þegn þjóðfélagsins, því að þannig verður ellin léttbærust. Ekki býst ég við, að hafa fundið algilda lausn þessa máls, en bent skal hér á atriði, sem verið geta til úrbótar. Eðlilegt er og sjálfsagt, að opinberir aðilar, ríki og bæir, tryggi uppgjafamönnum sín- um nokkurt starf, ef þeir óska þess, þegar þeir láta af föstu starfi, og væri vandamál þeirra þar að miklu leyti leyst. Fyrir aðra verður að koma upp vinnustöðvum, þar sem verkefni við hæfi gamals fólks með minnkaða starfskrafta eru fyrir hendi. Eðlilegt og hagkvæmt væri, að slíkar vinnustöðvar væru reknar í sambandi við elliheimilin, sem einnig sæju þá vistmönnum sínum fyrir starfi, á svipaðan hátt og nú er gert á Reykjalundi. Elliheimilunum sjálfum þarf að vera svo fyrir komið að vistmenn geti átt þar nokkurskonar einka- heimili, þótt lítið sé, því að mörgum er það sár raun, að eiga ekkert horn út af fyrir sig. Þá er og mikilsvirði, að heimilin séu þannig staðsett, að vist- 98 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.