Heima er bezt - 01.04.1956, Síða 6

Heima er bezt - 01.04.1956, Síða 6
i SÍK31 % ISÍ Til vinstri: Guðmundur Karl Péturs- son, yfirlœknir. Til hægri: Frú Þorbjörg Magnús- dóttir, sérfrœðingur i sviefingum. Ljósm. E. Sigurgeirsson.. Árið 1907 fluttist Guðmundur Hannesson til Reykja- víkur, varð þar fyrst héraðslæknir og síðan prófessor, en við sjúkrahúsinu á Akureyri tók Steingrímur Mallhías- son, hinn þjóðkunni læknir, gáfu- og menntamaður. Þótt þetta sjúkrahús rúmaði um 20 sjúklinga og þætti myndar- legt um aldamót, reyndist það brátt of lítið. Árið 1920 var reist norðan við húsið steinsteypt viðbótarbygging. Sjúkrahúsið rúmaði þá um 40 sjúklinga. Steingrímur Matthíasson fékk lausn frá embættum sín- um 1936, en við embætti sjúkrahússlæknis' tók Guðmund- ur Karl Pétursson. Ég hygg, að um það hafi verið rætt, er Guðmundur Karl Pétursson tók við embætti sínu, að innan skamms yrði ráðizt í byggingu nýs sjúkrahúss. Upphaflega höfðu skipulagsyfirvöldin ætlað að staðsetja nýtt sjúkrahús á ytri brekkunni, austan gatnamóta Þingvallastrætis og Oddeyrargötu. Upp úr Grófargili að lóð þessari var lögð göngubraut, sem nefndist Batavegur. Steingrímur Matt- híasson mun hafa ráðið nafngift þessari. Hann vildi, að sjúklingarnir væru allir „á Batavegi“. Frá þeirri hug- mynd, að staðsetja húsið þarna, var síðan horfið. Lóð sú, er þarna var um að ræða, var lítil og vaxtarskilyrði fyrir sjúkrahúsið engin. Þarna hefði sjúkrahúsið einnig að nokkru leyti lent inni í skarkala miðbæjarins. Það var því ákveðið að reisa nýja sjúkrahúsið á svo til sama stað og hið eldra, aðeins lítið eitt sunnar. Þarna á norður- barmi Búðargils er fallegt og friðsælt. Vel mátti rækta fagran skrúðgarð í norðurbrekku gilsins, þar sem sjúk- lingar þeir, sem ferlivist hefðu, gætu unað í hlýju sumar- sólar og góðu skjóli fyrir eyfirzkri hafgolu. Einnig mun hafa verið talið heppilegt að nota gömlu byggingarnar til ýmissa hluta í tengslum við nýtt sjúkrahús. Árið 1937 var málið mikið rætt hér nyrðra, og 1938 höfðu verið gerðar teikningar og áætlanir að 75 rúma sjúkrahúsi, sem skipt skyldi í tvær deildir og stæði 102 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.