Heima er bezt - 01.04.1956, Qupperneq 7
á fyrrnefndum stað sunnan gamla sjúkra-
hússins. En um það leyti, sem málinu
skyldi hrundið í framkvæmd, barst erindi
frá kaþólska biskupinum í Landakóti,
þar sem rætt var um, að vel gæti verið,
að kaþólskir menn vildu reisa sjúkrahús
á Akureyri. Erindi þetta var rætt lengi
og ýtarlega. Því miður varð þó enginn
árangur af þessum umræðum,en dýrmæt-
ur tími hafði farið forgörðum. Tímarnir
\oru hinir viðsjálustu, fjárkreppa ntikil
hérlendis og stríðsóttinn að lieltaka þjóð-
ir Evrópu. Það leit út fyrir, að enn þá
mundi rnálinu frestað eitthvað. Var þess
vegna að því ráði horfið, að reisa nú
þegar hluta af álmu hinnar væntanlegu
byggingar. Sú viðbót, sem tengd var
gömlu byggingunni með löngum timbur-
gangi, var í rauninni með öllu ónóg, en
þó revndist kleilt hennar vegna að nota
gamla spítalann enn þá nokkur ár.
A styrjaldarárunum var svo málið upp
tekið að nýju. Margir aðiljar unnu að
því, bæjarstjórn, einstaklingar og félög.
Hlutur kvenna var þar ekki síztur. Eg
gæti t. d. hér nefnt hinn góða þátt kven-
félagsins „Framtíðarinnar" í sjúkrahúss-
málinu. Ný sjúkrahúsbygging var teikn-
uð. Hún átti að vera tvær deildir, með
samtals 95 rúmum. Byggingin átti að
standa á sama stað og fyrr hafði verið
ætlað, en teikningin var nú í ýmsu
breytt frá því sem áður var. Áður en
framkvæntdir hófust eftir þessurn nýju
áformum, hreyfði Jónas alþingismaður
Jónsson frá Hriflu liugmyndinni um
.jósm. Guðmundur Bjarnason, stud. med
Guðmundur Karl Pétursson yfirlœknir með aðstoðarfólki sinu við
uppskurð i skurðstofu.
fjórðungssjúkrahús og aukin framlög ríkissjóðs til
þeirra. Enn um sinn var því framkvæmdum frestað.
Alþingi samþykkti svo lög um fjórðungssjúkrahús,
þar sem ákveðin var rnikil þátttaka ríkissjóðs í bygg-
ingarkostnaði þeirra. Forystumenn sjúkrahússmálsins
ákváðu, að horfið skyldi að þessu ráði. Öllum þótti
einsýnt, að enn yrði byggingin að vera nokkru stærri
en fyrr hafði verið áformað, en þá kom í ljós, að tæp-
ast mundi hentugt að reisa svo mikið hús á hinum
litla bletti á brekkubrúninni norðan Búðargils. Fjórð-
ungssjúkrahúsinu var því ákveðinn staður á Eyrar-
Fr. Jóna Guðmundsdóttir skurðstofuhjúkrunarkona (til heegri á
myndinni), og frú Ragnheiður Arnadóttir, aðstoðarhjúkrunar-
kona á skurðstofu (til vinstri).
Heima er bez( 103