Heima er bezt - 01.04.1956, Síða 11

Heima er bezt - 01.04.1956, Síða 11
Til vinstri: Ólafur Sigurðsson, yfirleeknir lyfleeknisdeildar á „stofugangi" með starfsliði sinu. Heima er bezt 107 Guðmundur er þúsund þjala smiður í íþrótt sinni og tekst flest ágætlega, en þekktastur mun hann þó um land allt fyrir brjóstaðgerðir sínar á berklasjúkl- ingum. Okkur, sem aðeins berum óljóst skyn á list Guð- mundar Karls við skurðborðið, verður þó maðurinn ef til vill enn minnisstæðari og kærari. Dugnaður lians og atorka, samvizkusemi hans og ósérhlífni, fjör hans og lífsgleði hafa ætíð rík áhrif á þá, sem eiga einhverja samleið með honum, hvort heldur þeir eru sjúkir eða heilbrigðir. Hinn sterki persónu- leiki hans er magni þrunginn og geislandi orku, sem hleypir hita og fjöri í allt umhverfi hans. Hann er rnaður hreinskiptinn og hreinskilinn, svo að jafn- vel sumum mun stundum hafa þótt hann helzt til hispurslaus og ómjúkur í tilsvörum. Eg þekki þetta af eigin raun, en hitt reyndi ég líka, að fáum lækn- um hef ég kynnzt, sem reynzt hafa umhyggjusamari og ljúfari, já, ástúðlegri en Guðmundi Karl, ef hann sá og vissi, að um alvarleg veikindi var að ræða. En þótt Guðmundur Karl sé framúrskarandi verk- maður, bæði að snilli og dug í starfi sínu, hinn starfs- fúsi og starfsglaði maður, er aldrei hefur skeytt um að telja vinnustundir sínar, heldur oft lagt nótt við dag í þjónustu sinni, þá er hann engan veginn alveg allur innan veggja sjúkrahússins. Hann er félags- lyndur maður og hefur ævinlega tekið mikinn þátt í félagslífi samborgara sinna. Mætti þar nefna for- ystu hans í málefnum Rauðakrossdeildar Akureyrar og Skógræktarfélags Eyfirðinga. Hann er gleðimað- ur mikill, og gaman er að sjá hann geislandi af fjöri og lífsgleði spretta úr spori á dansgólfi, þótt tólf stunda strangur vinnudagur sé að baki. Og honum Ólafur Sigurðsson, yfirleeknir lyflœknisdeildar á „stofugangi“ með starfsliði sinu. eru allir gleðivakar nautnalyfja með öllu óþarfir, því að hann er eindreginn reglumaður í hvívetna. Guðmundur Karl Pétursson er óvenjulegur mað- ur. Fáir munu þeir vera, sem í jafnríkum mæli. og hann eru hvort tveggja í senn, gáskafullir gleðimenn og menn hinnar djúpskyggnu og innilegu lífsalvöru. Og þetta veldur engum tvískinnung í skapgerð hans. Ef til vill er það einmitt þessu að þakka, hve heill hann er, góður læknir og góður maður. En við hlið Guðmundar Karls á Fjórðungssjúkra- húsinu stendur valið lið yngri manna. Eer þar fyrst að telja Ólaf Sigurðsson, yfirlækni lyflæknisdeildar- innar. Hann er fæddur 1915, sonur hinna þjóð- kunnu hjóna, Sigurðar Guðmundssonar, skólameist- ara, og Halldóru Ólafsdóttur. Hann varð stúdent 1934 og lauk læknaprófi við Háskólann 1941. Fram- haldsnám hefur hann stundað í Bandaríkjunum og Englandi og hlaut viðurkenningu senr sérfræðingur í lyflækningum árið 1951. I lann var starfandi lækn- ir á Akureyri 1945—49 og síðan aftur frá 1951. Ólafur var ráðinn yfirlæknir lyflæknisdeildarinnar, þegar Fjórðungssjúkrahúsið tók til starfa í árslok 1953 og hefur getið sér ágætan orðstír í starfi sínu. Hann er gæddur mikilli íhygli, glöggskyggni og samvizkusemi. Hann er ljúfmenni hið mesta, skiln- ingsríkur og tillitssamur í rannsóknum sínum. Öíl störf hans eru unnin af mikilli þekkingu, nákvæmni

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.