Heima er bezt - 01.04.1956, Qupperneq 13
ærið vandasamt, ekki sízt nú á hinum síðustu
og verstu tímum dýrtíðar og fólkseklu. En
Brynjólfur Sveinsson rækir það af alkunnri
forsjá, dugandi gát og vandvirkni.
Stjórnarnefnd Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri skipa nú þau Sigurður O. Björns-
son, formaður, frú Sigríður Þorsteinsdóttir
og Sverrir Ragnars.
Öll kunnum við þessar hendingar Þor-
steins Erlingssonar, sem hann orti um spítala-
vistina:
„en langur er dagur og dauflegur þar,
sem dauðinn og læknarnir búa“.
Væri það þjóðarhneyksli, ef við snerum
hendingum hins ástsæla skálds örlítið við og
Ljosm. Gísli Ólafsson
Ljósm. Gi'sli Ólafsson.
Að ofan: Sigurður Olason, röntgen-
lœknir að starfi.
í miðju: Frá röntgendeild.
Neðst: Frá röntgendeild.
stöðustarf sitt af mikilli ósérplægni, alúð og dygð.
Deildarljósmóðir er Ingibjörg Björnsdóttir og ráðs-
kona Soffia Pdlmadóttir, en hún hefur gegnt því
mikilvæga starfi á annan tug ára.
Því miður eru engin tök á að gera hér frekari
grein fyrir starfsliði sjúkrahússins. Þó get ég varla
lokið þessum línum án þess að nefna framkvæmda-
stjóra stofnunarinnar, Brynjólf yfirkennara Sveins-
son. Hann hafði verið formaður sjúkrahússtjórn-
arinnar um árabil, en tók við ráðsmanns- og gjald-
kerastörfum, er Gunnar Jónsson lét af þeim vegna
vanheilsu haustið 1954.
Rekstur svo stórrar stofnunar er mjög umsvifa-
mikill. Stjórn og umsjá alls þess, er lýtur að efna-
hagsmálum hennar, er því bæði mikið starf og oft