Heima er bezt - 01.04.1956, Side 14
Ljósm. E. Sigurgeirsson.
segðum, að nýtízku sjúkrahús væri staðurinn, þar sem lifið
og læknarnir búa? Ég sé engin rök mæla gegn því nema
stuðlasetninguna. Auðvitað gerast enn margir harmleikir,
þar sem sjúkrahúsið er leikslokin. Svo mun ætíð verða. En
mér hefur oft virzt fólk stara um of á sjúkrahúsið sem ieik-
svið harmleiksins. Allir, sem á sjúkrahús fara, koma þangað
og dveljast þar til þess að leita sér lækninga, til þess að njóta
hinnar beztu aðstöðu og beztu vopna í stríðinu við veikindi
og dauða. Auðvitað tapa alltaf fáeinir því stríði, en tala
þeirra er þó orðin lág nú, samanborið við hinn mikla fjöida
hinna, er kveðja sjúkrahús sitt sem sigurvegarar og geta aft-
ur helgað sig lífsstörfum sínum og lífsyndi. Ég hygg, að okk-
ur sé of gjarnt að gleyma þessari staðreynd.
Ágætlega búið sjúkralnis, eins og Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri, er enginn bölvangur, heldur staður biessunar
og trausts, þar sem við vitum, að hjálp og björgun bíður, ef
myrkurský heilsutjóns hrannast fyrir sói á ævidegi okkar.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri er fögur og glæsileg
bygging, þar sem við sjáum hana neðan úr bænum bera við
dimmblá fjöll og bjartan himin. Augu okkar fagna þeirri
sýn. E.n hugur okkar og hjarta fagna þó enn þá meira því
öryggi, sem stofnunin veitir okkur, þeim vonum, sem hún
skapar og glæðir. — Við horfum þangað upp eftir með
aukinni lífstrú, kæru þakklæti
í miðju: Soffia Pálma-
dóttir ráðskona.
Neðst: Lœknar og hluti
af starfsliði Fjórðungs-
sjukrahússins á Akureyri.
Efst til vinstri: Fram-
kveemdastjóri Fjórðungs-
sjú kra h ússins, Bry njólfur
Sveinsson yfirkennari.