Heima er bezt - 01.04.1956, Blaðsíða 24

Heima er bezt - 01.04.1956, Blaðsíða 24
PÁLL BERGPÓRSSON ve&urfrœ&ÍTigur VEÐRIÐ í FEBRÚAR 1956 Tvær eru aðalorsakir þess, að febrúar 1956 verður mörgum minnisstæður hér á landi. Sú er hin fyrri, að tíðarfar var fádæma milt og stillt, þegar litið er á mánuðinn í heild. Hin or- sökin er ofviðri það, sem geisaði um landið mestallt að kvöldi 1. febrúar og sumsstaðar fram á næsta dag. Lítum þá fyrst á mánaðarhitann og úrkomuna. Meðalhitinn varð 2.7 stig bæði í Reykjavík og á Akureyri, en í Stykkishólmi 2.1 stig. Allt er þetta miklu hærra en í meðalári, einkum þó á Akureyri, þar sem meðalhiti febrúar er tveggja stiga frost, nærri 5 stigum lægri. Það er mikill munur, og einkum er hann þýðingarmikill vegna þess, að hér er um að ræða umskipti úr frosti í hita. Ef frostið er tvö stig til jafnaðar í heilan mánuð, fer varla hjá því, að töluverð snjóalög fylgi, en þriggja stiga mánaðarhiti er aftur á móti tákn þess, að vorgróður sé að byrja. Hér í Reykjavík var mánaðarhitinn líka 2.7 stig, eins og áður var sagt, en það er þó ekki nema þrem stigum hærra en meðallag. Um nær allt landið hefir hitinn verið 2 stig eða meira á láglendi, enda berast þær fregnir hvaðanæva, jafn- vel frá veðurstöðinni á Hornbjargsvita, að grænum lit hafi slegið á ræktað land í mánaðarlok. Og eðli- legt er, að fólk spyrj i: Er þetta ekki einsdæmi, að vorgróður sjáist í febrúar, og hefir febrúar nokk- urn tíma verið hlýrri á íslandi, svo vitað sé? Svarið verður: Hvorttveggja er mjög sjaldgæft, en þó ekki einsdæmi. Það er aðeins einn febrúarmánuður, sem áreiðanlega var hlýrri um allt land, en það var árið 1932. Er hitamunurinn ótvíræður, því að þá var víðast tveimur og hálfu stigi hlýrra en nú, og frá því að veðurathuganir hófust í Stykkishólmi fyrir 110 árum, hefir enginn febrúar orðið þar nærri eins hlýr. Næst hlýjastir hafa þar orðið og jafnir, sá febrúar, sem er nýliðinn og sami mánuður 1929. í þeim mánuði var þó ekki eins ‘hlýtt á Akureyri og nú, en aftur á móti hlýrra í Reykjavík. Er því óhætt að segja, að þetta sé 2. eða 3. hlýjasti febrúar hér á landi síðan mælingar hófust árið 1846. En það sýnir ókyrrð íslenzkrar vetrarveðráttu, að næsti mánuður á undan var í Reyjavík kaldasti janúar síðustu 20 ára. Úrkoman var óvenju mikil um Suðvesturland, Faxaflóa, Breiðafjörð og Vestfirði. í Stykkishólmi mældust um 130 mm, og er það nærri tvöfalt meir en í meðalári, og !í rafmagnsstöðinni við Andakílsá mældust 220 mm, hins vegar ekki nema 70 mm í Síðumúla. Þetta sýnir, hve breytileg úrkoman getur verið á tveimur stöðum, þótt milli þeirra se eng- inn fjallgarður og aðeins 25 km vegalengd. í öðrum héruðum var úrkoman í minna lagi, nema e. t. v. á Fjótsdalshéraði, en þar olli mestu sú stórrigning, sem fylgdi rokinu 1. febrúar. Á Akureyri mældust aðeins 13 mm, þriðjungur af meðallagi, á Fagur- hólsmýri 150 mm, 80% meðallags. í Reykjavík 120 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.