Heima er bezt - 01.04.1956, Síða 26

Heima er bezt - 01.04.1956, Síða 26
122 Heima Nr. 4 ----------------------------------- er foezt ------------------------------ æ£in séu dreifð um alla jörð, og þetta eitt sýnir, að ógerlegt er að flokka veðurfar á nokkurn skynsam- legan hátt eftir breiddarstigum eingöngu. Til marks um það, hvort tiltekið landsvæði teljist til öræfa, notar Köppen meðallagshita hlýjasta mánaðar árs- ins á staðnum. Telur hann sig hafa fundið allgreini- legt samband milli þessa hita og gróðurfars á hverj- um stað. Hér á norðurhveli er júlímánuður víðast lieitasti mánuður ársins. Köppen telur það mjög þýðingarmikið, að meðalhiti þessa mánaðar nái 10 stigum, og má færa því ýmis dæmi til sönnunar. Það má heita undantekning, ef barrskógar vaxa þar, sem heitasti mánuðurinn er kaldari en 10 stis;. Hins vesr- ar eru til víðáttumiklir barrskógar, þar sem júlíhit- inn nær aðeins 11 stigum. Það er alkunna, að kart- öflu- og matjurtarækt er mjög ótrygg og lítil á an- nesjum norðan lands, t. d. á Melrakkasléttu, þar sem júlíhitinn er tæp 9 stig, en aftur á móti er slík rækt- un árviss og arðbær á Suðurlandi, þar sem júlíhitinn er nálægt 11 stigum að jafnaði. Hér á Islandi virð- ast því þessi takmörk milli sveita- og öræfaveður- fars ei«a ágætle«a við. Hér er ekkert farið eftir vetrarkuldum, enda hafa þeir hverfandi lítil áhrif á gróðurinn. Ekki er úrkoman heldur látin ráða neinu um það hver takmörk öræfunum eru sett. Það mun líka vera rétt, að sjaldan hindri þurrkar gróður, þar sem júlíhitinn er jafn lágur og á mörk- um öræfa og sveita. Nú skulum við athuga nánar, hvar öræfaveður- farið ríkir á jörðinni. Eins og áður sagði, má finna dæmi urn það á fjöllum allt suður undir miðbaug. Þó er það að sjálfsögðu mest áberandi, þegar nær dregur heimskautunum. Allt ísland fyrir ofan um 400 m hæð verður að teljast með öræfum, og raun- ar einnig talsverður hluti af því landi, sem lægra liggur, t. d. útskögum Norður- og Austurlands. Grænland er allt í þessum flokki, og ennfremur allt Kanada fyrir norðan og austan Hudson-flóa, einnig allur nyrzti hluti Síberíu. Oll Suðurskautsálfan hef- ur öræfaveðurfar og ennfremur fjölmörg fjöll og fjallgarðar, Alpafjöll, Himalajafjöll, Klettafjöll, Andesfjöll og mörg önnur. Eins og áður segir er allur gróður á landi af skornum skammti. En í höfunum getur verið mikið af lífi jafnvel undir þykkri íshellu er fjölskrúðugt jurta- og dýralíf í djúpinu. Þar er nóg viðurværi fiskum og selum, og sá sem kann að afla þeirra, þarf ekki að deyja hungurdauða. Hér eru engin tré, sent gefa mönnum húsavið og efni í skip og báta. Selurinn leggur húð sína til skipagerðar, snjór, leir og grjót veita mönnum skýli í íshafsnepjum. Sel- spikið er fæða og eldsneyti, skinnið verður að hlýj- um og hentugum fötum í höndum húslegra Eski- móakvenna. Hér vantar ekki neitt, hér er sjálfstæð menning sem á ekkert undir sól eða regni, hér gerir uppskerubrestur engum mein. Allur hugsunarhátt- ur fólksins er annar en í sveitum hlýrri landa. Hér er auganu engin gleði að grænum völlum eða lit- skrúðugum trjálundum, slíkt er hér einskis virði, ekki býtur selurinn eða fiskurinn gras, og þess vegna veitir það mönnum enga öryggiskennd. „Það er fallegt á Hvítárvöllum, þegar vel veiðist,“ var einu sinni sagt. Þarna er rétt lýst því hugarfari, sem þarf til þess að geta unað glaður á íshafsströnd, fjarri blómum og skógum. Við höfum nú rætt nokkuð um þann hluta öræf- anna, sem að vísu er óbyggilegur vegna gróðurleysis á landi, en getur þó verið svo ríkur af gæðum hafs- ins að af þeim megi lifa. Mestur hluti þessara köldu landa er þó óbyggilegur með öllu, jöklar og nakin fjöll. Víst geta þau veitt yndi ferðalöngum á sumar- degi, en lífsbjörgina verða þeir að hafa með sér, sem þangað leita. Frá ísauðnum bregðum við okkur nú inn í allt aðra veröld. Það svæði er þannig takmarkað sam- kvæmt flokkun Köppens, að ársútkoman er meiri en 1000 mm og kaldasti mánuður hlýrri en 18 stig. Þetta er með öðrum orðum ákaflega hlýtt og þó svo rakt landsvæði, að vatnsskortur hindrar ekki gróður. Hér iðar því allt af lífi. Þar, sem vætan er mest og jöfnust, klæðir frumskógurinn landið, þéttur og blaðríkur, og veldur mannfólkinu ýmsum erfiðleikum. Krókódílar og eiturslöngur leynast í ánum og röku skógarþykkninu. Skordýr útbreiða sjúkdóma. Hitasvækjur, helliskúrir og þrumur eiga líka sinn þátt í að gera þessi lönd óaðgengileg mönnum. Helztu frumskógar jarðar eru í Suður- Ameríku og Miðafríku, en þeir eru einnig í Suð- austurAsíu og á Kyrrahafseyjum. Við skulum nú heyra, hvernig sjónarvottur lýsir frumskógi. Pe^iöst segir í bók sinni, Frumskógur og íshaf: „í slíkum skógi gengur maður allan guðslangan daginn í grænu rökkri. Yfir og allt í kring er þétt- riðið net vafningsjurta og lágra runna, sem oft hafa langa þyrna. Upp úr þessu öllu rísa hávaxnir pálm- ar, manaca, coroza og óteljandi aðrar trjátegundir mynda samfellt þak. Hátt yfir því gnæfa svo aftur hinir tröllauknu stórviðir skógarins, quipo- og ceibatré, allt að 50 metrum á hæð. Maður gengur í rauninni undir þreföldu þaki, og sólargeislarnir hafa fáa möguleika til að smjúga gegnum þennan

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.