Heima er bezt - 01.04.1956, Síða 27

Heima er bezt - 01.04.1956, Síða 27
Nr. 4 Heima 123 --------------------------------er bezt---------------------------- margfalda vef úr greinum, laufi, pálmakrónum og vafningsviði. Það er ekki nema á einstöku stað, að geisli nær að skína alla leið niður á rakan skógar- botninn. Þess vegna er því þannig háttað í frum- skóginum, bæði um dýra- og plöntulíf, að þar eru margir heimar, hver yfir öðrum. Dýr þau, sem ráfa um í grænu rökkri skógarstíganna, eru allt annarr- ar tegundar en hin, sem eyða ævi sinni í sól og blómskrúði trjákrónanna. Margar þær tegundir, sem lifa í trjánum, koma aldrei niður á jörðina. Þannig er því farið um flestar apategundir, letidýrin og margar kyrkislöngur.“ Við kveðjum frumskógána og tökum að kanna enn eitt veðurfarssvæði, eyðimerkur. Takmörk þeirra skýrgreinir Köppen á þann hátt, að úrkoman sé rninni en ákveðið hámark, og fer það liámark eftir því, hvernig úrkoman skiptist á árstíðir og ennfremur eftir árshitanum. Þessi takmörk eru nokkuð flókin, a. m. k. til lestrar í útvarp, og liirði ég því ekki að tilgreina þau nánar. En Köppen hef- ur fundið, að þau falla mjög saman við takmörk þeirra svæða, þar sem lítill eða enginn gróður þrífst vegna þurrka. iHelztu svæði jarð'ir, sem lenda í þess- um flokki, eru þessi: Eyðimerkurnar Sahara og Kalahari í Afríku, allmikil landsvæði sunnan til í Miðasíu, auk þess nokkurt land við sunnanverð Klettafjöll í Bandaríkjunum. Mikill hluti ísraels- ríkis er eyðimörk. Af þeim sökum er eyðimörkin oft nefnd í Biblíunni, og því höfum við urn hana mun skýrari hugmynd en frumskóginn. Við eig- um því ekki erfitt með að lesa hug Israelsmanna á göngu þeirra út úr Egiptalandi, ímynda okkur örvæntingu kvenna og barna, þegar þorstinn kvaldi, rykið kæfði og sólín brenndi, og mikið skelfing hef- ur hún verið svalandi, lindin, sem Móse töfraði fram úr klettinum. En út úr eyðimörkinni kom- ust þeir, segir sagan, og einnig við ljúkum nú rann- sóknarferðum okkar um veðurfarssvæði jarðar. Ör- æfi, frumskóg og eyðimerkur höfum við að baki og höfnum að síðustu þar, sem akrar hylja völl og „fénaður dreifir sér um græna haga“. Það veðnr- far, sem er skilyrði þeirrar búsældar, skýrgreinir Köppen á þessa lund: Hlýjasti mánuður ársins hef- ur meir en 10 stiga meðalhita og sá kaldasti er meira en 18 stiga heitur að jafnaði. Úrkoman er meiri en svarar til þess, að um eyðimerkurloftslag sé að ræða. Hér er með öðrum orðum hvorki of heitt, kalt eða þurrt, og hér unir mannfólkið í milljóna- hjörðum. Meginhluti Evrópu, Norðurarneríku og Asíu lendir í þessum veðurfarsflokki, einnig allstór svæði í Ástralíu og Suðurafríku. Norður til íslenzkra dala nær einnig þetta veðurfar. Allt láglendi Suður- lands og hlýrri sveitir Norðurlands ná þessu marki. Þetta er í samræmi við það, sem oft hefir verið sagt, að við séum í útjaðri hins byggilega lieims. Þess ber að geta, að þessu sveitarveðurfari skiptir Köppen í tvo flokka eftir vetrarríki. Hefir hann fundið að snjór liggur að jafnaði talsverðan liluta vetrar, ef kaldasti mánuður ársins hefir meir en þriggja stiga frost að jafnaði. Þetta sannast allvel hér á landi, því að meðallagshiti janúar í köldustu sveit- um á íslandi er einmitt nálægt þriggja stiga frost. Þær sveitir á jörðinni, sem hafa vetrarríki samkvæmt þessari skýrgreiningu, eru fyrst og fremst Síbería og mikill hluti Kanada. Eru þær yfirleitt fremur strjálbýlar, og þar eru víðáttumiklir barrskógar. Eins og eðlilegt er, verða mörk þessara veðurfars- flokka víða næsta óljós. Meira að segja geta veður- farsbreytingar auðveldlega valdið því, að hérað, sem er sæmilega byggilegt á einni öld, verði að telj- ast öræfi á þeirri næstu. Sem dæmi má nefna þau býli, sem hafa grafizt undir fargi Breiðamerkur- jökuls á liðnum öldum. í hlýrri löndum eru það úrkomubreytingar, sem mestu valda. Gjarnan fer það saman, að hlýindi aukast í norðlægum löndum og sveitirnar eyðast ií suðlægum löndum af eyði- merkurþurrkum. Þess sjást jafnvel merki, að sam- tímis breiðist norður á bóginn rigningar þær, sem næra frumskóga heitu landanna. Sést vel á þessu samhéngi veðurfarsins um alla jörð. Sem dæmi þess, þegar veðurfar öræfanna eykur veldi sitt og leggur köldustu byggðirnar undir sig, skal ég nefna síðari hluta 19. aldar. Þá voru mörg sumur köld hér á landi, en gömlu fólki er sérstak- lega min-nistætt sumarið 1882, mislingasumarið svo- nefnda. í riti, sem Húnvetningafélagið í Reykjavík hefir gefið út, segir Bjarni Jónasson frá þessu sumri, og leyfi ég mér að lesa hér útdrátt úr þeirri frá- sögn: Hafísinn kom á Húnaflóa um sumarmál oa: lá í hálfan fjórða mánuð. Stórhret gerði í hverjum mán- uði nema júní, og áhlaupunum í fyrri hluta septern- ber fylgdu mikil frost, svo að kvíslar voru riðnar á ís. Þessi hret stóðu að vísu ekki langan tíma hvert um sig, en þéirra í milli voru stöðugir kuldar, eng- inn hlýr dagur, en snjógangur í hverri viku. Um Jónsmessu mátti þó heita, að kominn væri viðun- andi sauðgróður. Eftir það gerði þrálátar þokubræl- ur með töluverðri úrkomu og oft frosti á nóttum, svo að strá voru öll hrímuð, og reipi svo sýluð, að þau voru digur sem handleggur. Klaki var í jörðu allt Framhald á blaðsíðu 133.

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.