Heima er bezt - 01.04.1956, Page 37

Heima er bezt - 01.04.1956, Page 37
Nr. 4 Heima 133 --------------------------------er bezt---------------------------- Heimsókn hjá . . Framhald af hls. 113. ---------------------- hefir þýðingarmikill strengur í skáldhörpu af völd- um konu. Einn af þeim mönnum, sem frú Sigurjónsson minntist á við mig, var Kjarval. Eitt af því, sem frúin sagði um listamanninn og mér er sérstaklega minnistætt, var: „Ég var ekki búin að kynnast Kjarval mikið, þegar mér var orðið innilega hlýtt til þessa langa sérvitrings." Kjarval mun eitt sinn hafa dvalið hjá Sigurjónssonshjónunum næstum því heilt ár. Jóhann fékk á hverju hausti senda heiman frá Laxamýri fulla tunnu af saltkjöti, og það hefir áreiðanlega ekki verið af lakara tæginu. Þegar tunnan var komin, var stór pottur settur á hlóðir og gestum boðið. Við þessar kjötveizlur mun gamla víkingseðlið hafa vaknað hjá þeim hjónum, og til að gera því einhver skil, voru kverkarnar skolaðar með brennivíni í stað mjaðar, og hnútur látnar fljúga um borð. Hvað sem því líður, þá hef ég oft óskað þess, að ég hefði verið gestur skáldsins, þótt ekki hefði ver- ið nema einu sinni í slíkri veizlu. ekki fyrir það, að ég telji, að ég hefði haft sérstaklega mikla ánægju af því að borða hjá honum kjöt og drekka brenni- vín, en ég hefði haft mikla ánægju af því að hlusta á það, sem sagt var undir borðum; á því er eng- inn vafi. Ég ætla ekki að lýsa heimili Jóhanns Sigurjóns- sonar og konu hans, og þótt fjárhagslegar ástæður þeirra væru ekki góðar, þegar ég kom á heimili þeirra, voru þau að mínum dómi rík, vegna þess að verðpappírar í lífi þeirra beggja giltu áreiðan- lega meira en öll heimsins auðæfi. En hvað haldið þið, sem þetta lesið, að mér hafi dottið í hug, þegar frú Sigurjónsson allt í einu stóð á fætur, eftir að ég hafði rætt lengi við liana, og gekk að bóka- skáp, sem var í stofunni, sem við sátum í? Úr skápnum tók hún hverja bókina á fætur annarri og henti þeim karkalega á gólfið. Þegar frúin var búin að henda fjölda bóka á gólfið, þaut hún frá skápnum fram á gólfið, beygði sig niður og tók upp hundraðkrónuseðil, sem fallið hafði úr einni bókinni. Eftir stutta stund voru á borð bornar myndarlegar veitingar. Alllöngu eftir að ég kom á heimili Sigurjónsssons- hjónanna, var mér sagt, að það hefði verið siður þeirra, þegar þau eignuðust peninga, sem einhverju nam, að taka dálítið af þeim og fela það á ýmsum stöðum í íbúðinni. Þegar þau svo voru komin í fjárhagslega erfiðleika, sem ekki kom svo sjaldan fyrir, voru þau búin að gleyma, hvar þau höfðu geymt þá. Oft hafa þau án efa orðið glöð, þegar þau fundu peninga, eftir misjafnlega langa leit. VeSriS í februar 1956 Framhald af bls. 123.---------------------- sumarið, og svo mikill á Vatnsnesi, að þegar orfum var stungið niður á engjum, stóðu þau á klaka, þó að þau gengju ekki lengra niður en svo, að þau stæðu. Taðan var svo lítil og smágerð, að sumir urðu að leggja poka á reipin til þess að 'hún tylldi í bönd- unum. Við það bættist, að óþurrkar voru miklir, svo að öll hey skemmdust rneir eða minna af illri verkun. Við þessa frásögn má aðeins bæta því, að þetta sumar, frá júní til september, var hitinn í Grímsey þremur og hálfu stigi lægri en meðallag. Fyrir miðja 20. öld komu svo mörg hlý og góð sumur hér á landi. En þá brá svo við, að í suðlæg- um löndum herjuðu þurrir og heitir vindar. I Bandaríkjum Norðurameríku varð af þessu mikið hallæri á árunum milli 1930 og 1940, og frá því segir Steinbeck í bók sinni, Þrúgum reiðinnar. Sum- arregnið brást, og svo kom stormurinn: „Alltaf hvessti meir og meir; og rokið snuðraði undir steinana, sleit upp blöð og stöngla, jafnvel litla hnausa, og þeysti með það yfir landið. Himin- hvolfið rökkvaðist, og gegnum húmið skein dimm- rauð sólin, og andrúmsloftið varð rammt og biturt. Heila nótt ólmaðist stormurinn yfir landið, gróf klókindalega frá rótum maísstönglanna, og maís- inn varðist af veikum mætti, þangað til stonnurinn hafði sleikt allan jarðveginn frá rótunum; þá hnigu stilkarnir þreytulega út á hliðina og lögðust til jarð- ar með öxin undan veðri.“ Hér lauk kaflanum úr Þrúgum reiðinnar. Víst eru þurrkarnir í Bandaríkjunum næsta ólíkir kulda- sumrum á Islandi. Hér verða stráin hrímuð, þar eru þau sorfin og sviðin af sandi. En hvorttveggja sýnir vald veðurfarsins, ekki aðeins yfir stráunum, heldur yfir heilum þjóðum. Það var ekki óheppi- leg samlíking, þegar Matthías kvað: Vér lifum sem blaktandi, blaktandi strá.

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.