Heima er bezt - 01.04.1956, Side 39

Heima er bezt - 01.04.1956, Side 39
Nr. 4 Heima 135 --------------------------------er bezt —-------------------------— sagði Dan snöggvast, en án þess að hreyfa sig, þótt hann sárlangaði til þess og óþolið byrjaði sem skjálfti í fótunum. Svo sá hann allt í einu bregða fyrir skilningsglampa í andliti drengsins, en í kjöh far hans hélt hræðslan, enda hafði hann komið auga á svarta hlutinn, sem Glenn hélt á. „Ég skal skýra þetta allt fyrir þér, Ralphie.“ Leiftursnöggt snerist drengurinn á hæli, stökk til aðaldyranna, tók á handfanginu og þrýsti því niður. „.Rólegur, rólegur, drengur minn,“ sagði Glenn. Ralphie þráaðist við og brast í grát. Því næst stökk liann frá lokuðum dyrunum, ámóta snöggur í hreyfingum og þegar hann gekk að þeim. Það leit út fyrir, að hann ætlaði að taka viðbragð og snúa sér við, en í þess stað datt honurn nokkuð hlægilegt í hug og fylgdi því eftir sem elding skjót- ur, að Glenn meira að segja varð sem lamaður af skelfingu. Ralphie þaut sem örskot inn í dagstof- una, framhjá Dan, þegar hann ætlaði að teygja sig til hans og ná honum, og að ólokuðum dyrum hinn- ar forstofunnar. „Ralphie!“ hrópaði Elenóra, en þó ekki mjög hátt, til þess var hún of óttaslegin. Dan hljóp á eftir drengnum, en áður en hann náði honum, heyrðist fótatak úr bókakompunni, og í sömu svifum þreif Robish bölvandi í Ralphie. Glenn slökkti ljósið í sömu andrá og Robish kom í Ijós. Nú hófst bendingaleikur og þögl mynd, ef svo má segja. Robish þreif um drenginn sterkum hrömmunum og skók hann óþyrmilega. Dan heyrði málmhljóð, um leið og Glenn dró rennitjöldin fyr- ir, og í sömu svifum sá hann hatta fyrir höfði sonar síns, sem ýmist hófst eða hné við brjóst og axlir Robish, sem sneri frá honum til hálfs. Þetta var nóg. Dan gleymdi skammbyssunni að baki sér. Hann gleymdi Glenn Griffin alveg. Hann umhverfðist alveg, tók tvö skref áfram, sá, að ljósið var kveikt í stofunni, tárvott andlit drengsins, hrika- legan haus mannsins, afmyndað andlit af heift yfir misheppnuðum áformum, og nú beygði hann sig niður að drengnum. í sömu andrá og Dan þreif í axlir mannsins, gerði hann sér ljóst, að það var vitstola reiði, sem knúði liann áfram, svo hjálpar- vana sem hann var gegn þessum villidýrum. Elenóra hafði horft óttaslegin á það, sem fram fór, hugsun hennar var klofin. Hana blóðlangaði til að ráðast á þetta óféti, en gerði sér um leið ljóst, að hún yrði að hafa hemil á sér og bæla niður heiftina. Eins og komið var, gat Elenóra ekkert að hafzt. Dan liafði þveitt þessu flikki í kringum sig, eins og þetta væri eitthvert leikfang, hálfu léttara en raun var á. Það sá bregða fyrir leiftri í augunum, sem augnapokarnir hálflokuðu, og gætti í tilliti þessu bæði undrunar og óánægju. Svo lokuðust augun, því Dan lét krepptan hnefann ganga á andliti hans og fylgdi vel eftir. í dagstofunni liafði allt verið með kyrrum kjör- um. Nú heyrðust skellir miklir og brestir, er barizt var upp á líf og dauða frammi fyrir. Maðurinn hóf sig upp, reikaði á fótum andartak og hné svo niður eins og slytti. Kyrrðin var aftur rofin með ópi frá Elenóru, þeg- ar hún, með Ralphie í faðmi sér, sá Glenn Griffin ganga aftan að Dan, lyfta skannnbyssunni af heljar- afli og miða högginu á herðar hans. Dan veitti þessu ekki alveg eftirtekt, svo ægði honum það, sem hann hafði hætt sér út í. En svo tók hann að kenna til, en fyrst var ekki um sársauka að ræða, er hann gerðist eitthvað svo sljór. Svo náði sársaukinn yfirhöndinni, rétt eins og hnífur stæði í herðum honum, og fæturnir báru hann ekki. Hægri hlið hans varð tilfinningarlaus og köld, og síðan fann hann, að hann slengdist til. Hann var sér þess einnig vitandi, að tekið var undir hann af tilræðismanninum og fleygt upp á legubekk. Svo missti hann meðvitund. Þegar hann fékk aftur heyrn og sjón, sá hann Glenn Griffin standa augliti til auglitis við Robish og miða skammbyssunni á maga hans. „. . . . ekki hegða sér svona, heyrirðu það? Ekki þannig, Robish!“ heyrði hann að Glenn sagði stundarhátt. Robish tautaði eitthvað samhengislaust og hélt lófanum fyrir andlit sér, og horfði upp undan hon- um grængulum augunum á Dan. Hann teygði sig allan í áttina til hans, þrátt fyrir manninn, sem fyrir framan hann stóð. „Farðu fram í eldhús, Robish, og það þegar í stað. Farðu!“ Robish varð enn háværari. „Heldurðu, að ég ætli að láta hann sleppa svo vel? Heldurðu, að - - . „Ekkert skal fá að hindra rétta atburðarás hér!“ sagði Glenn. „Hefur þú skilið það, Robish? Það kemur að honum síðar. En ekki eins og er. Ekkert má raska friðnum hér, skilur þú mig!“ Svo fór Dan aftur að sjá sem í þoku. Hann sá náfölu andliti Elenóru bregða fyrir, alvarlegan svip Ralphies og grimmdarlegt augnatillit Cindýjar, er henni varð litið á Glenn Griffin. Næst þótti

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.