Heima er bezt - 01.09.1956, Blaðsíða 9

Heima er bezt - 01.09.1956, Blaðsíða 9
Forsetinn undirritar eiðstaf við emhættistökuna 1952. Að baki hans standa Dóra Þórhallsdóttir, forsetafrú, Hákon Guðmundsson, hæstaréttarritari, og Steingrimur Steinþórsson, þáverandi forsætisráðherra. VI. Veturinn 1916—17 dvaldist Ásgeir Ásgeirsson er- Iendis við háskólanám, fyrst við háskólann í Kaup- mannahöfn og lýðháskólann í Ryslinge á Fjóni, en seinni hluta vetrar við háskólann í Uppsölum í Svíþóð. Var í þá daga fremur fágætt, að íslendingar leituðu til Svíþjóðar í námserindum. Kynntist hann ýmsum merk- um mönnum og eignaðist góða félaga á þessum ferðum, sem hann hefir jafnan síðan haft samband við. Náms- dvalar Ásgeirs Ásgeirssonar í Uppsölum minntist há- skólarektor Fáhræus, er forsetinn kom þar í heimsókn 1954 á þennan hátt: „Kveðja Uppsalaháskóla mótast af sérstökum hlý- hug vegna þess, að þér, herra forseti, fyrir nær 40 ár- um síðan stunduðuð nám hér. Á þessum tíma hefir há- skólinn vaxið, nýjar stofnanir hafa bætzt við, prófessor- um hefir fjölgað og stúdentafélögunum fjölgað um helming. En ég held ekki, að þessi aukning hafi veru- lega breytt sál háskólans eða anda stúdentalífsins, sem í meginatriðum er hið sama og á námsárum yðar. Eins og sennilega gerist hvarvetna í heimi, leita gamlir stú- dentar aftur til háskóla síns hér í Uppsölum til þess að rifja upp minningarnar frá stúdentsárunum, og oft höf- um vér heyrt gamla landsmenn vora við hátíðahöld „nationanna“ segja með hrærðum huga: Að ekkert sé þó eins og Uppsalir. En það, sem aldrei hefir áður gerzt, er það, að fyrr- verandi Uppsalastúdent heimsæki sinn gamla háskóla sem erlendur þjóðhöfðingi. Fláskólinn dirfist að skilja þetta sem tákn þess, að þér hafið góðar minningar um námstíma yðar hér. Þegar ég segi erlendur þjóðhöfðingi, er það einungis rétt eftir hinu lagalega formi. Vér köllum ekki Dani, Norðmenn og Finna útlendinga, og því síður gætum vér kallað fulltrúa íslenzku þjóðarinnar útlendinga. Tengsli Islands og hinna norrænu landanna með tilliti til sögu, tungu og trúarbragða standa of djúpum rótum til þess, að vér skyldum ekki líta á oss alla saman sem frændur. Og að því er vér fáum séð, er það einungis utanaðkomandi ofbeldi, sem gæti knúið þessar frænd- þjóðir til að víkja frá hinu sameiginlega, norræna lífs- viðhorfi voru. Uppsalaháskóli lítur ekki aðeins á heimsókn yðar sem merki um góðar minningar yðar, heldur einnig Heima er bezt 289
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.