Heima er bezt - 01.09.1956, Blaðsíða 28

Heima er bezt - 01.09.1956, Blaðsíða 28
J. M. EGGERTSSON: I SJAVARHASKA að var vorið 1931, árið eftir Alþingishátíðina miklu — þessa þúsund ára þjóðhátíð — að „kreppanu mikla kom. (Reyndar var hún kom- in áður og stóð enn um árabil, eftir að eftir- farandi saga gerðist). Ég set „kreppu?ia“ hér innan gæsalappa og undirstrika hana. Þessi kreppa var eng- inn skáldskapur, heldur sannur raunveruleiki, sem mað- ur vildi þá óska, að kæmi aldrei aftur. Sama er að segja um atburð þann, er ég ætla nú að greina hér í eftirfarandi orðum. Ég vildi óska, að ég þyrfti ekki að upplifa hann aftur. Ég átti heima í Reykjavík, þá er þetta var, nýlega kvæntur, — nákvæmlega sagt: fyrir hálfu öðru ári; bjó og leigði í nýbyggðu húsi í Reykjavík, Bergstaðastræti 83 uppi á efri hæð í því húsi sunnanverðu. Notalegt þykir mörgum að vera nýgiftur og eitthvað ævintýralegt í aðra röndina, en ekki er það ætíð sælu- ríki sveimhugum, — og nú var „kreppan“ komin. Það var enga atvinnu að fá, — ekki nokkurs staðar nokkurt handtak — væri einhvers staðar eitthvað laust, voru ótal margir um boðið. Það var engin leið að fá að læra neitt handverk heldur, — iðnaðarmenn sjálfir atvinnulausir, voru því hvarvetna á verði, að ekki fjölg- aði fagmönnum inn í atvinnulausa iðnstéttina. Kunn- ingsskapur einn réði, ef eitthvað var að fá, — handtak ellegar atvinnu. Ég auglýsti eftir atvinnu (eins og ýmsir fleiri) bæði í borginni og út fyrir hana, en allt kom fyrir ekki. Enginn þurfti á manni að halda. Þá var það næst, að leita út á landshornin. Leizt mér þá helzt að leita norður til Grímseyjar; þar átti ég frændur og þar var oft fisk að fá. Það var um miðjan maí 1931, að ég tók mig upp að sunnan og skreiddist norður fyrir land með „Novu“, sem þá var í förum fyrir Bergenska gufuskipafélagið. Við Húsavík á Skjálfanda hafði ég skipaskipti og tók „Súðina“ ísl. ríkisins, er þá var í strandferð með áætl- unarviðkomu til Grímseyjar. í Grímsey er oftast gott að koma, enda þótt eyjan sé afskekkt og liggi á mörkum tveggja heimshafa: Atlantshafsins og Norður-íshafsins. Heimskautsbaugur- inn, sem eftir útreikningi vísindamanna, er á hægri leið norður; liggur nú yfir Grímsey lítið eitt sunnan við miðju samkvæmt kortinu. Nú var það næst, með Grímsey fyrir fótum, að fara að róa til fiskjar og reyna að bjarga sér. Ekkert skipsrúm var laust. Var því ekki í önnur horn að venda en fá sér fleytu og fara að róa einn á bát, enda þótt sáralítið væri upp úr því að hafa. — Kaupmenn úr landi, aðallega frá Húsavík á Skjálf- anda, höfðu smávegis verzlunarútibú í Grímsey um þessar mundir, og jafnframt fiskimóttöku, og höfðu venjulega heimamann eða menn úr Grímsey sjálfri til móttöku fiskjar og afgreiðslu á verzlunarvöru, væri sú vara fyrir hendi. Fleytur eyjarskeggja voru aðallega smábátar og trill- ur, skipshöfn oftast 2 menn á hverri fleytu. Hafnlaust var við Grímsey og því ekki hægt að hafa þar stærri skip en svo, að ráða mætti þeim til hlunns með litlum fyrirvara. Oft var ágætisafli langróðraskipa frá megin- landinu á Grímseyjarmiðum, þótt Grímseyingum sjálf- um gæfi ekki til fiskjar fram úr landsteinum tímum saman sökum hafnleysisins. HÉR BIRTIST ÖNNIIR VERÐLAUNARITGERÐ HEIMA ER BEZT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.