Heima er bezt - 01.09.1956, Blaðsíða 26

Heima er bezt - 01.09.1956, Blaðsíða 26
30G Heima Nr. 9—10 --------------------------------er bezt----------------------------- sögu og sameiginlegra áhugamála, sem tengja hinar tvær þjóðir saman og skapa ný tengsli í framtíðinni, sem vér vonum að verði í senn auðugri og betri.“ — (Norges sjöfarts og handelstidende) En hver var svo skoðun manna hér heima á þessari utanför forsetahjónanna. Eg hygg henni verði bezt lýst með eftirfarandi ummælum: Forseti bæjarstjórnar Reykjavíkur, frtt Auður Auð- uns, komst meðal annars svo að orði í ræðu við heirn- komu þeirra: „Þær glæsilegu móttökur, er þér hafið hvarvetna hlotið, hafa í vitund okkar orðið vottur um virðingu og vinarhug þessara þjóða í garð hins íslenzka lýðveldis, og við erum þess fullviss, að för yðar hafi orðið til þess að treysta enn frekar tengslin milli íslenzku þjóð- arinnar og nágrannaþjóða okkar á Norðurlöndum. Höfuðborg íslands heilsar yður í dag, virðulegu for- setahjón, umvafin geislum vorsólarinnar, og borgarbú- ar hafa fjölmennt hingað til þess að fagna heimkomu yðar. Vér óskum og vonum, að sú birta, er hvílir yfir þessum degi, megi ávallt fylgja yður í öllu starfi yðar í þágu lands og þjóðar. Alþýðublaðið segir svo: „íslendingar hafa fylgzt með ferðum forsetahjón- anna dag frá degi í fréttum blaða og útvarps. Öllum er ljóst, að ferðalag þeirra hefir orðið þeim sjálfum til sóma og þjóðinni mikill álitsauki. Forsetahjónin hafa hvarvetna vakið athygli og unnið hylli með framkomu sinni. Þau hafa rækt skyldu sína þannig, að íslenzka þjóðin stendur í ærinni þakkarskuld við þau heimkom- in. Enginn efast um, að utanför þessi hafi reynzt ís- landi og íslendingum mikils virði. Tengslin milli okkar og hinna Norðurlandaþjóðanna hafa styrkzt, skilning- urinn og samhyggðin aukizt. Forsetahjónin hafa fært frændum okkar og vinum á Norðurlöndum heim sann- inn um, að Islendingar eru og ætla að verða norræn þjóð. Ásgeir Ásgeirsson var kjörinn forseti íslands í óvæg- inni kosningabaráttu. En Islendingar hafa borið gæfu til að sameinast um kjörinn þjóðhöfðingja sinn. Það hefur komið glöggt í ljós í sambandi við utanför for- setahjónanna. Landsmenn hafa fylgzt með ferðum þeirra af athygli og áhuga og fagnað sigrinum. Reyk- víkingar kvöddu forsetahjónin einhuga og fögnuðu þeim í gær í aðdáun og fögnuði. Þjóðin finnur, að hún stendur í þakkarskuld við forsetahjónin, og hún lætur þær tilfinningar í ljós á þann hátt, að vonin um einingu fólksins gagnvart þjóðhöfðingja okkar á hverjum tíma verður að veruleika. Slíkt er íslendingum ótvíræð nauð- syn. Smáþjóð á uggvænlegum vegamótum þarf á því að halda, að standa saman um þjóðhöfðingjann, sem á að kosningu lokinni að vera hafinn yfir dægurþras og ríg og fá aðstöðu til að rækja embætti sitt til sóma og heilla. Þetta hefur forsetanum tekizt með fulltingi þjóðarinnar. Stærsti sigurinn í þessari viðleitni er Norð- urlandaför forsetahjónanna.“ Vísir kemst svo að orði: „Einhverjar raddir höfðu heyrzt um það, að nokkurt álitamál gæti verið,' hvort forseti hins minnsta lýðveldis ætti að fara í opinberar heimsóknir til annarra landa. Fleiri munu þó telja, að því meiri ástæða sé til slíkra ferða sem ríkið er minna og möguleikar þess takmark- aðri til þess að kynna málefni sín og menningu á vett- vangi hinna venjulegu samskipta þjóðanna. Og það er, eins og forsetinn sjálfur sagði í ræðu sinni á skipsfjöl við heimkomuna, skylda vor sjálfra að auka þekkingu annarra þóða á landi voru og menningu og um leið skilning þeirra og vinarhug í vorn garð. Slík för sem þessi getur haf mikla þýðingu í því efni, þegar hún er farin af fulltrúum, sem koma fram með þeim virðuleik og glæsibrag, sem alls staðar vekur hrifningu og athygli, eins og öllum ber saman um, að framkoma forsetahjónanna hafi gert, hvar sem þau komu. Hinar hjartanlegu viðtökur, sem þau fengu hvarvetna, voru sýnilega meira en formsatriði við slík tækifæri. Fyrir þessa ágætu landkynningu þakkar öll íslenzka þjóðin forseta sínum og frú hans og býður þau hjartan- lega velkomin heim.“ Fleiri tóku í þann sama streng. Engin óánægju- eða nöldursrödd heyrðist, sem óvanalegt er vor á meðal. Þjóðin öll var stolt af forseta sínum og frú hans og hinni góðu og virðulegu för þeirra til frændþjóðanna. IX. í undanfarandi köflum hefir verið leitazt við að bregða upp nokkrum myndum af störfum forseta Is- lands, Ásgeirs Ásgeirssonar. Vitanlega er hér um ófull- komna tilraun að ræða, og til þess að skilja hana til fulls þurfa menn að kynnast honum sjálfum og pcr- sónutöfrum hans, ef svo mætti að orði kveða. Störf hans öll í hinu virðulega embætti hafa hnigið að því að sameina hin sundurleitu öfl í þjóðfélaginu, efla skiln- ing og samúð, þar sem áður ríkti sundrung og úlfúð, og benda þjóðinni á þau verðmæti lífsins, sem mölur og ryð fá ekki grandað. Ut á við hefir hann aflað þjóð- inni virðingar og vináttu, en inn á við leitazt við að efla trú almennings á landið, þjóðina og framtíðina. Hann hefir hvað eftir annað lýst skilningi sínum á starfssviði forsetans á þann hátt, sem vér helzt mynd- um óska. Það er gæfa þjóðar vorrar, meðan hún fær notið, í hinu virðulega og mikilvæga embætti, starfs- krafta manns, sem hefir jafn heilbrigðan skilning á starfssviði og skyldum forsetans og er jafnframt gædd- ur manndómi til að breyta þar eftir. Að endingu vildi ég mega bera fram innilegar árn- aðaróskir til forsetahjónanna, herra Ásgeirs Ásgeirsson- ar og frú Dóru Þorhallsdóttur, með ósk um, að íslenzka þjóðin fengi sem lengst notið starfskrafta þeirra í hinu virðulega embætti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.