Heima er bezt - 01.09.1956, Blaðsíða 55

Heima er bezt - 01.09.1956, Blaðsíða 55
Nr. 9-io Heima 335 --------------------------------er bezt---------------------------- „Merkilegt,“ sagði Jessi og studdi höndinni á bílinn. „Ég þekkti hann dálítið. Hann var einn af körlunuin, sem stundum tóku í spil með pabba gamla. Það var heppilegt, að þessir geymar skyldu vera tómir.“ Hann lagði það, sem hann hafði tekið úr vösum Pattersons ofan á hlífina: veski, ökuskírteini með tuttugu og fimm dölum, fjórir dalaseðlar að auki sér í vasa, nagaður blýantsstubbur, bréfsnudda, vindlingapakki og nokkur eldspýtnahylki og níu ávísanir, og hljóðaði hver þeirra á tvo dali, er greiðast skyldu Floyd Pattersons. „Hann hefur ef til vill ekki verið svo ólánssamur," sagði Tom Winston hlýlega. Flann gat ekki haft augun af lögreglumönnunum, sem grúfðu sig yfir líkið. „Ff til vill hefði hann kosið að deyja svona?“ „En hver fær að kjósa sér dauða?“ spurði Jessi, um leið og hann fletti sundur blaðsneplunum og slétti úr þeim: Pöntunarlisti með orðinu „rakblöð", viðgerðar- reikningur, greiddur; síðan annar að auki. „Hefur verið skotinn þrem skotum í bakið. Hvers vegna, Jessi?“ Jessi neri hnakkann og gerði sér ljóst, að honum var furðu heitt þrátt fyrir kuldann og hráslagann í loftinu. „Já, hvers vegna, Tom. Þetta var ágætis náungi. Hvers vegna hefði hann átt að reyna að brjóta bílinn með því að aka á þessar dælur? Eða var það slys? segðu mér það, Tom.“ „Ríkislögreglan er í þann veginn að umkringja stórt svæði hér. Byrjar í Arlington. Vörubíllinn er ekki akstursfær, og þess vegna telja þeir — og ég er á sömu skoðun — að morðinginn hafi orðið að forða sér gang- andi. Nú eru tíu menn að leita í skóginum, og fleiri eru á leiðinni. En það torveldar rannsóknina illa, að svo langt skuli vera síðan þetta bar við. Segja má, að þessi leið sé nær aldrei farin nú orðið, þar sem Tuttug- asta og fyrsta gata er steypt svo langt sem hún nær. Ég hef á tilfinningunni.... “ „Sjáðu,“ sagði Jessi Webb sallarólega, — en þannig, að Tom rann kalt vatn milli skinns og hörunds. „Herra minn trúr,“ hvíslaði jessi. Hann hélt á síðasta bréf- sneplinum í höndunum, sem skulfu svolítið. „Herra minn trúr, Tom.“ Winston laut áfram, athugaði blýantskrotið nákvæin- lega og leit svo framan í Jessa, en úr svip hans varð ekkert lesið. Langt í burtu heyrði hann gjalla í lögreglubíl. Það fór hrollur um Jessa. „Hann hefur ef til vill séð honum bregða fyrir,“ sagði Winston, sem tók andköf. „Honum hefur kannski legið lífið á. Tölustafurinn 3 gæti bent til þess.“ „Hann hefur ef til vill heyrt þetta í útvarpinu,“ tautaði Jessi spekingslega, enda þótt hann tryði ekki orðum sínum. „Hann hefur ef til vill krotað þetta hjá sér, eftir að hann hlustaði á útvarpið, skrifað þetta niður eins og af tilviljun. Til slíks eru dæmin um gamalt fólk.“ „Já, satt er það,“ játaði Winston, en það var eins og hann ætti erfitt um andardráttinn. „En ef þú breytir þessum 3 í 8 hefur þú ráðið gátuna. Hann hefur haft nauman tíma og sjónin verið farin að bila. Ef þú breyt- ir tölunni, er gátan ráðin.“ „Andartak,“ sagði Jessi með hægð og skáskaut aug- unum til Winstons. „Andartak, Tom, breytum þessuin þremur í átta. Við gerum því skóna, að Patterson hafi ekki útvarp í litlu íbúðinni sinni hérna vestur frá. Ger- um því skóna, að hann hafi ekki séð þetta bílnúmer. Svo verðum við að staðsetja þennan bíl. Fyrst eru það ávísanirnar. Eru þær 'allar runnar frá sama hverfi? Hve mörg önnur hús í hverfinu eða í skógunum hér í kring hefur Patterson ekki heimsótt í dag? Ég verð að kom- ast að raun um, hvar hann hefur verið í dag, Tom, þótt ég verði að þvo þetta hverfi til þess.“ Nú fór hann að tala fljótar, án hiks og frekari heilabrota. „Þú ferð aftur með þessar ávísanir — og til allra annarra viðskipta- manna Pattersons — tekur upp nöfn, heimili og sími- númer og vinnustaði. Það verða nokkur hundruð menn, sem tala þarf við.“ „Nú höfum við náð í töglin eða hagldirnar, Jessi'“ „Já, Tom, víst getur það rétt verið. Alls ekki óhugs- andi. \Tið höfum aftur náð bílnúmerinu. Og náðum því hérna í bænum, eins og ég bjóst alltaf við. Ég sagði þér það, Tom!“ Hann þrammaði langstígur að bíl lög- reglustjóra. „Já, við höfum númerið, og nú er um að gera að ná bifreiðinni. Dugðu nú vel, Winston. Ef þeir verða einhvers varir í skóginum, skaltu láta mig vita það undireins. Segðu þeim, að hverjum við séum að leita, Tom, — og látum nú hendur starda fram úr ermum.“ Er hann var setztur við stýrið, fann hann, hvernig vonin hrakti kvíðann á braut. Ekki má leggja of mikið upp úr tilviljuninni, en hins vegar verður að athuga hverja smugu. Hann sté á benzíngjafann og setti síren- una í gang. Eitthvað, sem átti skylt við gleði og sterka von, tók hug hans fanginn. Bifreiðin hefur sézt í bænum. I dag! Ef til vill var hún enn í bænum. Glenn Griffin var manna líklegastur til að senda vesalings gamla manninum kúlur í bakið. Ríkissaksóknarinn mundi taka það mál að sér. Nú þekkja þeir bílinn. Allt kom heim. En símahringingarn- ar — eða rannsókn þeirra — hafði engan árangur borið. A þeim vettvangi var ekkert frekar hægt að gera. En þetta síðasta.... Honum skyldi sannarlega ekki verða nein skotaskuld úr að finna þessa bifreið, enda hafði hann skráð ein- kennistölu hennar með óafmáanlegu letri í hjarta sér. „Nú tekur jörðin að brenna undir fótum okkar, gamli minn. Viðhorfið hefur breytzt. Félagi vor, Robish, missti vald á taugum sínum og gætti þess ekla að athuga vasa karlsins, eins og hann hefði átt að gera-..." „Ég hef þegar sagt þér, að hann eyðilagði.... “
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.