Heima er bezt - 01.09.1956, Page 10

Heima er bezt - 01.09.1956, Page 10
290 Heima ---er bezt Nr. 9-10 sem staðfestingu á, hversu hátt þér metið gildi vísinda- legrar menningar. Þess vegna býður háskólinn yður og frú yðar velkomin með innilegum fögnuði.“ Um þessar mundir var Nathan Söderblom erkibiskup í Uppsölum, og var Asgeir Asgeirsson boðinn og vel- kominn á heimili hans, þegar hann vildi. Þá mun hafa komið'til mála, að hann vrði prestur í Uppsalastifti um skeið, en af því varð ekki vegna ófriðarins og erfiðra samgangna við ísland. Eftir að þau Dóra Þórhallsdóttir og Ásgeir Ásgeirs- son giftust haustið 1917, settust þau að á föðurleifð hennar, Laufási við Reykjavík. Gerðist hann þá starfs- maður í Landsbanka Islands næstu tvö ár. Sú fyrsta viðkynning af bankamálum og fjármálum mun hafa haft meiri þýðingu fyrir framtíðarstörf og áhugamál Ásgeirs Ásgeirssonar en menn grunaði þá. Árið 1919 verður Ásgeir Ásgeirsson kennari við Kennaraskóla íslands og síðar Fræðslumálastjóri 1927. Á þeim árum fór hann víða um land og kynntist þá mönnum og málefnum. Hann bar hag og störf kennara mjög fyrir brjósti, enda naut hann almennra vinsælda af stéttinni, eins og glöggt kom frarn í forsetakosning- unurn 1952. Árið 1923 var Ásgeir Ásgeirsson kosinn á þing fyrir Vestur-Isafjarðarsýslu, aðeins 29 ára að aldri, og var hann jafnan endurkosinn þar um 29 ára skeið. VTakti hin fyrsta kosning nokkra eftirtekt, og eins sumar hin- ar síðari, enda skipti Ásgeir Ásgeirsson um flokk, og var auk þess eitt sinn í framboði utan flokka, en jafnan bar Ásgeir Ásgeirsson sigur af hólmi, enda var hann nákvæmur um hagsmunamál héraðsins og vinsæll, svo af bar, af alþýðu rnanna. I málflutningi öllum og fram- komu fékk hann brátt orð fyrir að vera traustur og fastur fyrir, en þó ekki bardagamaður. Var það kunn- ugt öllum landslýð, að hann átti oft þátt í málamiðlun, þegar í odda skarst, og fáa átti hann óvini meðal þing- rnanna. Hann var fjármálaráðherra frá 1931—34 og for- sætisráðherra tvö seinni árin, en þá voru átökin hvað hörðust um kjördæmaskipun og kosningarétt. Einnig var hann forseti Sameinaðs þings Alþingishátíðarárið 1930. Var það einróma álit allra, að hversu vel tókst til um það hátíðarhald, hafi ekki sízt verið Alþingisforset- anum að þakka, og hin snjalla hátíðarræða hans snart margar taugar í brjósti þeirra, er hlýddu. Niðurlag þeirrar ræðu hljóðar svo: „Guð gefi, að oss takist að leysa svo vel sem upphafið spáir viðfangsefni mannlegs samlífs og skapa hér göfugt og glæsilegt þjóðlíf í fögru og svipmiklu landi. Til þess höfum vér hin ytri skilyrði. En skipulagið er ekki einhlítt. Á Alþingi eiga að sitja vitsmunir Snorra goða, stjórnvísi Þorgeirs, göfgi Halls af Síðu og manndómur Jóns Sigurðssonar, en hann bar allt þetta í brjósti. I dag erum vér sama hugar og forfeður vorir á hin- um fvrsta fundi Alþingis. Þingstaður er hinn sami og hátíð vor um margt lík hinu forna þingi. Tíu alda þingsaga talar til vor í þessu heilaga musteri manndóms og drengskapar undir bláum himni. Það hitar um hjarta- ræturnar. Tign fjallanna, niður ánna, grænka jarðar- innar og blámi himinsins rennur saman við minning Forsetinn syndir flesta daga í Sundlaugunum. Myndin tekin við Sundlaugamar.

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.