Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.1960, Qupperneq 10

Heima er bezt - 01.09.1960, Qupperneq 10
harðlyndir og hrottalegir skipstjórnarmenn oft sann- nefndir „týrannar“. (Bls. 122—123.) Frásögnin, „Höfuðklerkur á 14. öldu, greinir frá kaþólskum presti og fylgikonu hans, er þjónuðu bæði himnaföðurnum og herra Mammoni af mikilli kost- gæfni og þá ekki síður þeim síðarnefnda. Hér er niður- lagið af þætti þeirra: .... „Bæði féllu þau, Þórður prestur og Valdís, fyr- ir morðenglinum mikla, svarta dauða, líklega nærri samtímis og hurfu niðjalaus, að því er bezt verður séð, yfir landamærin miklu. Eftir lá „morð fjára, er þau höfðu af mikilli elju samandregið, en gátu ekki notið lengur en lífið entist í heimi hér.“ (Bls. 183.) í þættinum af Holtastaða-Jóhanni birtir höf. aldar- farslýsing úr Húnaþingi frá fyrri hluta 19. aldar. Lýs- ingin sjálf er sérstætt meistaraverk og enginn fræði- maður mun efa, að hún er sönn, en hvort hún er fögur til frásagnar — um það gætu verið skiptar skoðanir. Sannleikur er nauðsyn. Og því nauðsynlegri og sann- ari er sannleikurinn, sem hann er sagður af meiri snilld. En sannleikurinn getur líka orðið að Ijótri lýgi frá þeim sem lítið kann. — Og nú vaknar spurning: Eru það ekki einmitt þvílík umbrot í þjóðarsálinni og ham- ingju hennar, sem fyrst þurfa á undan að fara til að framkalla snillinginn og meistarann? Er þetta ekki þinn skóli, meistari Magnús? Er þetta ekki eldskírnin? Snilld ber snarpa elda! Risu ekki einmitt íslenzkar bókmenntir hæst upp úr og eftir umbrot og ósköp Sturlungaaldarinnar? Eftir valt veraldargengi og missi tímanlegra verð- mæta hvarf þessi þjóð inn til sinnar eigin sálar og sinna andlegu verðmæta. í dag væri þessi þjóð annars ekki til — og handritin ekki heldur. Þess vegna er það, að vér verðum að rækta minnið og muna fortíðina. Annars öðlumst vér ekki hæfileik- ann til að sjá fram. Bókin Hralchólar og höfuðból sýnir höfund með hæfileika til að rækta minnið. Gott minni þarf mikla rækt og mikinn aga. Minnið verður að ræktast á sama hátt og vel hirtur skrúðgarður. Minnið er gróður; lifandi starfsemi, auðlegð á vöxt- um. Minnið er engin rusla kista, heldur réttlætisgeymsla. Snúum oss þá að áðurnefndu broti af aldarfarslýsing: „Vart mun ein sveit á íslandi hafa verið meira ófrið- arbæli en Langidalur var á áratugnum 1820—1830 og lengur þó. Oaldarlýður og afbrotamenn óðu þar svo uppi að fáir þóttust óhultir um eignir og fémuni, mann- orð og jafnvel líf. Þar hnöppuðust saman ævintýra- menn og þrjótar, leituðu að heita mátti á hvern sem var, unnu stundum saman að ódáðaverkum, eða áttust þess á milli illt við sín á milli. iMálaferli geysuðu með litlum hléum eins og illviðrabálkur á aftakavetri. Þeir voru ótrúlega margir, er soguðust inn í iðuköst þeirra gerningaveðra er yfir gengu. Yfirvöld höfðu sem mest að vinna, að sljákka mætti í þeim, er mestir voru for- gangsmenn slíkra óskapa, framir og frakkir á hverju þingi, og sekir menn og sýknir stóðu í þrotlausum reki- stefnum, málsóknum og vitnaleiðslum.“ (Bls. 97.) Dæmi um hrakhólabörn okkar lands og allra þjóða á öllum tímum er að finna í lýsingu höfundarins á Maríu Kristrúnardóttur, en um hana segir höfundurinn: .... „María var þrjú ár hjá foreldrum mínum rétt eftir aldamótin.“ .... Höfundurinn, sem fæddur er 1889, man því mætavel þessa söguhetju sína og lýsir henni af eigin sjón og raun. Og enn fremur: iVlagnúsi tekst að glæða þetta umkomulausa og lítilsvirta olnboga- barn sveitar sinnar og sýslu, — tekst að glæða hana því lífi og þeim guðsgjafarneista og þeirri sál og þeirri hamingju, er gerir Maríu Kristrúnardóttur að mikilli mannlegri veru. Sérhver mannleg vera er mikil í sjálfri sér, með því engin ein manneskja á meiri rétt til lífsins en önnur: „Hafknörinn glæsti og fjörunnar flak, fljóta bæði, — trú þú og vak,“-------- segir skáldið Einar Benediktsson. María Kristrúnardótt- ir verður því ódauðleg og jafn rétthá hverjum þjóð- höfðingja í sínum eigin búningi af því meistarinn lýsir henni af sínum innra auði. Sannast þar orð Skógaskálds- ins: „Hver, sem á himneska auðinn frá honum stelur ei dauðinn, þótt ekki eigi hann á sig kjólinn, er hann þó ríkari en sólin.“ Og ef einhverjum fyndist þetta vera skáldaskrum, þá ætti hann að 'athuga aðra vísu, en hún er eftir Einar Benediktsson: „Mundu, þótt veröld sé hjartahörð, þótt hrokinn sigri og rétturinn víki, bölið, sem aldrei fékk uppreisn á jörð er auðlegð á vöxtum í guðanna ríki.“ En til þeirra, er ég hef heyrt segja, að lýsingar á „aumingjum og lítilmótlegu fólki“, er þeir inir sömu svo nefna, eigi ekki að sjást í „bókmenntwm siðaðra þjóðaíl, — (það jaðri jafnvel við glæp) — þeim inum sömu vil ég benda á eftirfarandi vísu eftir Matthías Jochumsson: „Sjáðu, þótt btmi blóð, blæðandi þjóðar-æð, gróðann á lífsins leið: ljómandi manna-blóm.“ Þá er hér lýsingin og styðst við lok þáttarins af Maríu Kristrúnardóttur: .... „María var lág á velli, gildvaxin og luraleg, jafnbola og herðar þykkar og kúptar, kraftaleg öll á að sjá. Fótstór var hún og steig þungt og fast til jarð- ar, hendur þvkkar og miklar. Hún var hörundsblökk, 334 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.