Heima er bezt - 01.09.1960, Blaðsíða 12
imiiitiin
ASKRIFTARVERÐ
liækkar um næstu áramót
N'ú á þessu ári hefur tímaritið „Heima er
beztu komið út í tíu ár. Á þessum tíma
hefur ritið átt því láni að fagna, að njóta
sí-aukinna vinsælda hjá lesendum sínum um
land allt, og er nú svo komið, að hiklaust
má fullyrða að „He'mia er beztu sé orðið
lang vinsælasta og útbreiddasta mánaðarrit
landsmanna.
A þessum tíu árunt hefur ritið verið stækkað
all verulega frá því sem það var upphaflega,
þannig að í staðinn fyrir um 300 lesmáls-
síður, eins og fyrstu árgangarnir voru, er
nú hver árgangur að minnsta kosti 400 les-
málssíður.
..................................................................... n .....
Útgáfukostnaður hefur aukizt mjög veru-
lega á þessum tíu árum, og um næstu ára-
mót sjá útgefendur sig til neydda að hækka
áskriftargjaldið upp i kr. 100.00. Forráða-
menn tímaritsins treysta því að áskrifendur
„Heima er beztu sjái það í hendi sér að
hækkun þessi var óumflýjanleg vegna hins
aukna útgáfukostnaðar, hækkunar á pappírs-
verði, póstgjöldum o. s. frv., því þeir hafa í
lengstu lög reynt að halda verði ritsins
óbreyttu. E?i einskis mun látið ófreistað til
þess að gera ritið e'ms vel úr garði og unnt
er, og eru útgefendur ávallt þakklátir fyrir
ábendingar frá lesendum um það sem betur
mætti fara.
336 Heima er bezt